1.12.2016 | 17:43
Ekki benda á mig !
Launahækkunin sem Kjararáð skenkti ríkisaðlinum nýlega, er þegar orðin alræmd og verður áreiðanlega sagnfræðilega bókuð í siðleysukafla þjóðarsögunnar !
Enginn sem kemur til með að fá þessa hækkun vill þó taka ábyrgð á henni. Forsetinn segir að hann þurfi hennar ekki með, ráðherrar virðast hneykslaðir og margir þingmenn mótmæla henni, en svo nær það sjálfsagt ekki lengra. Á endanum fá allir þessir sérvernduðu yfirsamfélagsþegnar sína dúsu og gjáin milli kjara almennings og opinberra þjónustumanna þjóðarinnar breikkar enn sem því nemur !
Það er gömul varnarhefð varðandi svona ferli, að segja ekki benda á mig og gera málið jafnframt sem ópersónulegast. Láta eins og náttúrulögmálin hafi talað en ekki vallgróin embættismannaklíka hjá Ríkinu. En kerfisdraugurinn Sir Humphrey Appleby gengur líka - og ekki síður - í ljósum logum um litla ríkiskerfið á Íslandi og er þar síst fyrirferðarminni en í stórkerfum milljónaþjóðanna !
Embættismannakerfið og hin staðlaða valdaklíka þess er nánast alls staðar eins og reynist oftast til bölvunar fyrir almannaheill þegar á allt er litið. Eðli hvers manns, sem ekkert vill af Meistara sannleikans vita, spillist fljótt, og það gerist ekki síst þar sem hlynnt er einna mest að sjálfselsku mannsins og sérhyggju í siðvilltum ríkiskerfum nútímans !
Svo hvað verður með hina alræmdu launahækkun ? Gerir forsetinn eitthvað í málinu, nei ! Gera ráðherrarnir eitthvað í málinu, nei ! Gera þingmennirnir eitthvað í málinu, nei ! Hvað gerist þá ? Umrædd blóðsuguhækkun verður vísast að veruleika og allir útvöldu alikálfarnir fá það sem embættismannakerfið vill veita þeim svo þeir verði þægir og viðráðanlegir við Humphrey gamla og hans sívolduga setulið !
Ein rökleysan við umrædda launahækkun er að ráðamenn þurfi að vera á svo góðum launum að ekki verði hægt að múta þeim ! Hafa menn heyrt annað eins ? Er nokkur maður á svo háum launum að hann vilji ekki meira í raun og veru ? Hafa menn aldrei heyrt um græðgisvæðingu hins íslenska þjóðfélags sem gengur út á það eitt að mikið vill meira. Vita menn ekki að hin öfugsnúna siðfræði íslenskrar yfirklíku og alls verslunarauðvalds kemst fyrir í einni setningu ÉG, um MIG, frá MÉR, til MÍN !
Íslenskir háembættismenn eru eiginlega orðnir eins og rómversku munaðarseggirnir sem Seneca sagði að ætu til að æla og ældu til að éta. Ofgnótt nautnalífsins er að fara með þá. Þeir þjóna nefnilega ekki fólkinu heldur arðræna það og aféta, Þeir segjast að vísu þjóna kerfinu en sjá aðallega til þess að kerfið þjóni þeim. Þeir fylgja ekki neinni þjóðlegri hugsjón í einu eða neinu. Hver getur haldið því fram eftir það sem á undan er gengið ? Þeir hafa fallið - allir sem einn - á öllum manngildisprófum varðandi þá hluti síðasta aldarfjórðunginn !
Af hverju skyldi það yfir höfuð vera talið álitamál hvort umrædd kauphækkun eigi að standa ? Auðvitað vegna þess að siðferðileg undirstaða er ekki fyrir hendi hjá svo mörgum. Menn horfa skakkt á réttlætið og vita ekki fremur en Pílatus hvað sannleikur er. Ef það kemur spurning í Útsvari, annaðhvort úr Biblíunni eða Íslendingasögunum, standa hin gráðum prýddu lið á gati og vita ekki neitt. En ef það er spurt úr efni kvikmyndarinnar Sódóma Reykjavík, eru keppendur aldeilis með á nótunum !
Afstaða til réttlætismála tekur auðvitað mið af siðferðisþroska. Gangi siðferðisstaða manna til baka, gerir réttlætisvitundin það líka. Maður sem gengur fyrir lygum í lífi sínu á ekki til mikla ást á sannleikanum. Þjóðin er farin að dýrka falsguði í svo stórum stíl að siðagrundvöllur hennar er farinn að skekkjast meira en lítið.
Siðlaus kauphækkun til útvalinna alikálfa virkar eðlileg í augum þeirra sem hafa skekkt öll sín viðmið vegna þess að einsýn hagsmunagæsla ræður hugsun þeirra. Það er hvorki þeim né þjóðinni til ávinnings að þeir hegði sér þannig. Það kemur alltaf að skuldadögunum varðandi öll rangindi. Efnislegur hagnaður verður oftar en ekki andlegt tap !
Íslenska þjóðin býr við sárgrætilega litla og lélega forustu. Sjöföld óhamingja er nú sest að í þingsölum hennar og sundrungin vex að sama skapi. Tvær þjóðir eru vissulega nú þegar fyrir í landinu hvað öll kjör og aðbúnað snertir !
Skyldu þær eiga eftir að verða sjö ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 29
- Sl. sólarhring: 78
- Sl. viku: 598
- Frá upphafi: 365496
Annað
- Innlit í dag: 26
- Innlit sl. viku: 511
- Gestir í dag: 26
- IP-tölur í dag: 26
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)