21.1.2017 | 12:54
Maturinn er til !
Í auglýsingu kringum síðustu jól og áramót mátti heyra þessa setningu og var hún sögð ein sú fegursta sem við ættum í okkar máli. Og ég fór að hugsa út í þá staðhæfingu. Það er líklega alls ekki út í bláinn að halda henni fram.
Víða er það nefnilega svo að matur er ekki til. Og í eina tíð dugði ekki að segja slíkt hérlendis. Í þá daga fóru margir svangir að sofa á Íslandi !
En nú snýst lífsbarátta meginhluta Íslendinga ekki lengur um að mæta frumþörfunum, það eru komnar svo margar aðrar þarfir til sögunnar og því miður eru þær flestar ekkert annað en ómerkilegar gerviþarfir, pumpaðar upp af græðgi þess sjálfs sem aldrei fær nóg og vill stöðugt meira !
Það er sem betur fer nógur matur til í landinu, en skömm að því hvernig oft er farið með hann. Þar þarf mikið um að bæta því það er synd að fara illa með mat !
En sumir hugsa afskaplega lítið út í það hvað náunganum líður og virðast lifa algerlega sjálfum sér í upphafinni eigingirni. Gamall læknir sagði í viðtali um 1990 að peningagræðgi Íslendinga væri orðin svo langt úr hófi að hún væri að nálgast það að verða sjúkdómur. Og víst er að ekki hefur það batnað síðan !
Fullyrt er að fátækt fari nú vaxandi á Íslandi vegna verulega aukinnar misskiptingar og ekki er erfitt að sjá hvaða afl grefur gjána í þeim efnum !
Við vitum líka að hungursneyð á sér víða stað í heiminum. Það verða þurrkatímabil og uppskerubrestir og allskyns hörmungar og maturinn er þá ekki til. Verst af öllu eru þó stríðin, sem eru af mannavöldum, þar sem einhverjir vilja drýgja sinn hluta til lífsgæða með hlífðarlausu ofbeldi og drápum.
En hvað gerist þegar hungursneyð er í gangi einhversstaðar, til dæmis í Afríku ?
Jú, meðal annars það að páfinn í Róm kemur fram á svalirnar sínar og biður almenning um að gefa. Hann sem situr á því sem kallast ómetanlegir fjársjóðir biður venjulegt fólk að gefa. Ef hann seldi eitt málverk í eigu páfagarðs myndi það leysa vandann ! Mestu listamenn heims þjónuðu undir páfaveldið á sínum tíma árum saman og veraldlegur auður í fórum þess er líklega algerlega ómælanlegur !
Einhversstaðar stendur Safnið yður ekki auði sem mölur og ryð fær grandað ! Og það er talað um að mannleg gæska safni sér himneskum fjársjóðum. Ef menn eigi tvennt af einhverju eigi þeir að gefa náunganum annað. En það er ekki hlustað á hinn biblíulega boðskap í þeim efnum og allra síst af kirkjulegum yfirvöldum.
Það er - þvert á móti kristnum meginkenningum - safnað veraldlegum auði sí og æ og honum staflað upp í geymslum gróðans, meðal annars í ofurskreyttum musterum páfadómsins í Róm !
Hvað myndi mönnum finnast um að auðmenn heimsins kæmu fram á einhverjar svalir háhýsa sinna og brýndu almenning til að gefa til mannúðarmála, Warren Buffett, Bill Gates og aðrir slíkir ? Það yrði líklega svipur á sumum, en þetta gerir páfinn reglulega fyrir hönd kirkjudeildar sem er svo veraldlega rík, að hún uppfyllir alla lýsinguna á hinni sérgæskufullu Laodíkeu-kirkju, ein og sér !
Fyrir nokkrum árum var safnað fé hérlendis fyrir hönd kirkjunnar til að mæta neyð út í heimi. Birtar voru myndir í fjölmiðlum af þekktu fólki með söfnunarbauka, á fullu við að eltast við aura almennings, jafnvel á reiðhjólum. Og hverjir skyldu þar hafa verið að leggja manngæskunni lið ?
Jú, Dorrit Moussajev þáverandi forsetafrú, óhemjurík forréttindakona, í mikilli þörf fyrir hámarks athygli, Halldór Ásgrímsson þáverandi ráðherra með meiru, ekki beint auralaus sjálfur, og Björgólfur Guðmundsson bankastjóri, þá vaðandi í peningum, og því sleiktur daglega enda á milli, af öllu hinu aurasjúka menningarhyski landsins !
Þessir sérútvöldu einstaklingar áttu að virka svo sterkt á venjulegt fólk við að safna peningum til góðra verka ? Ég verð nú að segja að þessi hræsnisuppstilling hafði alveg þveröfug áhrif á mig. Mér blöskraði sýndarmennskan á bak við þetta, að fólk sem í raun var þekkt af því að gefa aldrei neitt, nema þá í auglýsingaskyni, væri fengið með þessum hætti, til að kroppa krónur út úr launalágri, alþýðu manna !
En svona er yfirleitt afstaðan hjá þeim ríku: Gefið þið, gefið þið, gefið þið !
Páfinn á nógan mat til. Það er ekki svelti í Vatikaninu, kardinálarnir fitna og hafa gert það um aldir. Þeir ganga um eins og útblásnir, rauðir loftbelgir. En heimurinn í kring mæðist í mörgu og sveltur stundum heilu hungri !
Og þá kemur hvítklæddur páfinn, maðurinn sem kallar sig staðgengil Krists á jörðinni, út á svalirnar sínar, og segir við fólkið : Gefið þið !
Hann segir ekki, ég ætla að sjá til þess að kaþólska kirkjan eigi áfram allar sínar ómetanlegu gersemar og haldi áfram að auðgast og dafna. Það er fyrst og fremst mín skylda ! Nei, hann segir það ekki, en sú tjáningarafstaða býr samt í hegðun hans og framferði. Hann gætir auðsins í eigin garði eins og hinir auðjöfrarnir og ef einhversstaðar er ekki matur til, þá býður hann öðrum að bæta úr því og hrópar út yfir mannfjöldann á torginu : Gefið þið !
Þannig er heimsgæskunni stjórnað af þeim sem eiga miklu meira en nóg, af þeim sem vita alltaf að maturinn er til, af þeim sem safna meðan þeir hvetja aðra til þess að gefa.
John D. Rockefeller var sagður hafa látið taka myndir af sér á sínum tíma við að gefa börnum smáaura, maðurinn sem varð að skipta upp risafyrirtæki sínu Standard Oil vegna þess að stærð þess braut í bága við hina yfirtaks rúmu bandarísku auðhringalöggjöf. Og páfinn í Róm situr alltaf botnfastur á sínum ómælanlegu, veraldlegu fjársjóðum, en hvetur aðra til að hjálpa. Forríkt fólk á Íslandi er auglýst upp á þeytingi með söfnunarbauka - allt eru þetta birtingarmyndir sama falska eðlisins, sýndarmennskan í fullum gangi !
Maturinn er til er vissulega falleg setning og þyrfti svo sannarlega fá að hljóma í hvers manns garði. En vöntunin í þeim efnum er fyrst og fremst vegna ómannlegrar græðgi annarra, þeirra sem éta stöðugt yfir sig, þeirra sem éta stöðugt frá öðrum, þeirra sem gera sig þannig til eðlis og anda, að þeir eru og hafa verið öllu mannkyni til skammar allt fram á þennan dag !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 25
- Sl. sólarhring: 74
- Sl. viku: 594
- Frá upphafi: 365492
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 507
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)