7.4.2018 | 09:11
Fáein orð um sameiningarpólitík !
Enn er verið að fá fólk í hinum dreifðu byggðum til að sameinast í nýjum og stórum sveitarfélögum þar sem öllum á að líða miklu betur. Það er talað um miklu öflugra þjónustustig þegar svo er komið og lítil sveitarfélög ráði bara ekki við verkefnin !
Jú, jú, ætli menn kannist ekki við þetta frá fyrri tíð og enn eru sameiningar-rökin þau sömu þó talsvert sé nú farið að slá í þau sum hver. Og ekki sýnist manni að lausn félagslegra vandamála verði neitt auðveldari þó sveitarfélög séu stór eða verði stór við sameiningu.
Þó sjá megi nauðsyn hins hjálpandi halds,
þá hamlar oft ráðandi klíka.
Það gleymist í áróðri gleypandi valds
að gallarnir margfaldast líka !
Sama tilhneigingin virðist nefnilega löngum til staðar sem áður á kerfislega vísu að lágmarka alla þá þjónustu sem getur orðið almenningi til hagsbóta. Hinsvegar er oft eins og einhver sérþjónustu við einhverja útvalda geti verið fyrir hendi og þá ekki í smáskömmtum !
En samt er boðskapur kerfisins alltaf í uppörvunarstíl þó efndir verði oft litlar og alltaf á björgin sem blessar að vera á næstu grösum eða í það minnsta á leiðinni:
Í heiminum margt er svo veikburða og valt
og vegferðin þúsunda erfið og sár.
Við erum á leiðinni að laga hér allt
en líklega tekur það fjöldamörg ár !
Hvernig var til dæmis með ábyrgð og öryggi barnaverndarmála í stærsta sveitarfélaginu þar sem hættulegur maður lék lausum hala í þeim geira árum saman án þess að kærumálum gegn honum hafi verið sinnt ? Þurfti ekki einhver að segja af sér út af því ? Nei, auðvitað ekki, það þarf fyrst einhver að vera ábyrgur !
Hvernig hefur réttindum fatlaðra verið sinnt í Vesturbyggð þar sem fötluð kona fékk ekki lögboðna akstursþjónustu og það í sameinuðu sveitarfélagi ? Er það ekki áfellisdómur yfir viðhorf og vinnubrögð í kerfi hins eflda þjónustustigs ?
Sameiningarsinnar segja þegar á svonalagað er minnst : ,, Já, en þetta eru einstök tilfelli ! Já, er það, en eru þau ekki orðin nokkuð mörg yfir það heila ? Og hvernig á svonalagað að geta gerst í stórum sveitarfélögum þar sem þjónustustigið á að sögn að vera miklu betra ?
Af hverju gerist slíkt þar sem sagt er - að eftir sameiningu verði miklu betur að málum staðið ? Það mætti vissulega halda að ýmislegt sé hreint ekki á hreinu þó marglofuð sameining hafi átt sér stað !
Mál Leonhards Haraldssonar og fleiri vekja til dæmis miklar efasemdir um þá velferð sem sögð er búa í kerfisþjónustunni því býsna oft virðist gyllingin ein til staðar þegar á reynir. Það er vissulega slæmt ef svo er !
Fæst viljum við borða eitthvað sem við vitum ekki hvað er og það er nú svo með þessi sameiningarmál að þar er oftast eitthvað líkt á ferð. Fólki er sagt að gleypa eitthvað sem það veit ekki hvað er og ef afleiðingarnar verða slæmar þá á það bara að sitja uppi með þær meltingartruflanir. Engin leið er til baka. Kerfið hefur talað og svo er nánast sagt ef einhver er með gagnrýni : ,,Æi, þegiðu nú !
Aðalatriðið af kerfisins hálfu virðist vera að koma upp einhverri stjórnsýsluhöll á einhverjum tilteknum stað, þar sem nóg verði líklega um innihaldslitla pappírsvinnu fyrir einhverja útvalda, en ávinningur fyrir almenning vill oft verða næsta lítill !
Og svo þarf bara eitt símtal ofan úr ráðuneyti í stjórnsýsluhöllina og ekki þarf að tala víðar. Þvílíkur léttir fyrir kerfið !
Það virðist alveg vilja gleymast í svona umræðu að fyrir nokkrum árum varð hér efnahagslegt hrun sem fór með allt traust í samfélaginu norður og niður. Þá var stolið svo miklu af fólki um allt land að það verður aldrei tölum talið og margir hafa verið í sárum síðan !
Og ekkert hefur gerst eftir það sem unnið hefur upp traust á yfirvöldum eða kerfi. Það var bara lögð táli vígð teppisdrusla yfir ósómann og þagnarlögmálið látið gilda. Það hefur sem sagt hvergi verið tekið á neinu til að byggja upp traust aftur og því er það í núll stöðu !
En enn á fólk samt að treysta því að eitthvað óskilgreint, eitthvað loftkennt sem hvergi má festa hönd á, sé á leiðinni í stóru fallegu batteríi til að bæta alla þjónustu og það í stjórnkerfi sem hefur gjörsamlega brugðist eins og sannaðist í hruninu, kerfi sem alltaf er duglaust og auralaust þegar kemur að félagslegum lausnum !
Löggetan er þá bara sett í afsláttargírinn og fólki sagt að bíða og þar við situr !
Það er svo sem ekkert nýtt að almennum borgurum sé boðið upp á hluti með þeim hætti að um leið sé það undirstrikað að ekki muni talið að glóran þvælist fyrir þeim !
Hitt má svo auðvitað segja og það með töluverðum rétti að menn séu ekki að detta úr háum söðli frá því sem verið hefur víðasthvar á sveitarstjórnarstiginu. En alltaf er þó æskilegast að breytingar verði til bóta og þegar engin trygging er fyrir því að svo verði, er bara mannlegt að margir séu tortryggnir og hugsi sitt. Menn vita svona nokkurnveginn hvað þeir búa við en ekki hvað breyttar aðstæður bjóða upp á. Tilraunadýr kerfisins hreppa yfirleitt ekki háa vinninga !
Mistök í íslenskri stjórnsýslu eru sem vitað er daglegt brauð og enginn býst svo sem við miklu úr þeirri áttinni, allra síst eftir að sérfræðingar allra mála hafa tekið völdin meira og minna í sínar hendur með þeim afleiðingum sem það hefur. Milljarðar hafa fengið að fjúka í tóma vitleysu og þjóðin fær að borga margfaldan gráðuskattinn !
Og undarlegustu umsagnir varðandi hin ýmsu mál koma oft frá mönnum sem ættu að vita betur. Þar virðist koma fram - allt að því ósjálfrátt - sú tilhneiging að verja kerfið og vitleysur þess hvað sem tautar og raular !
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum sagði til dæmis nýlega í útvarpi varðandi Landeyjahöfn að sumir hefðu sagt að hún myndi sökkva í sand en ekki hefði það nú gerst. Jæja, hver væri staðan þar ef ekki væri búið að dæla ógrynni af sandi burt árum saman fyrir tugi ef ekki hundruð milljóna ? Hverskonar blekkingartal er þetta hjá þjóðkunnum reynslubolta í íslenskum sveitarstjórnarmálum ?
Málið er að raddir kerfisins skeyta oft lítið um sannleikann og því kemur oft upp staðan sem lýst er í vísunni góðu :
Satt og logið sitt á hvað,
sönnu er best að trúa.
En hvernig á að þekkja það
þegar flestir ljúga ?
Þegar búið er að sameina allar lygarnar sem í gangi eru til að rugla fólk enn frekar í ríminu, verður líklega hálfu erfiðara að henda reiður á sannleikanum ; eða hvort boðskapur að sunnan varðandi breytingar í stjórnsýslumálum hafi eitthvað gott í för með sér fyrir þá sem eiga að njóta hinna allt að því ósýnilegu ávaxta !
Að ofan kemur ýmislegt
sem ekki er gott að skilja,
er sérvaldið í sinni mekt
svínar á fólksins vilja !
Það er sýnilega ráðrík sameiningarstefna í gangi. Hún þarf svo sem ekki að vera alslæm, en margt er við hana að athuga, ekki síst það að valdið verður oftast fjarlægara og ópersónulegra, vald skriffinnsku og aukinnar kerfishyggju sem endar kannski að lokum í Brussel !
Það er full ástæða til að fara varlega í öllum málum sem hafa með frelsi einstaklinga og almennings að gera og valkostir sem leyfa ekki að stigið sé til baka ef mönnum hugnast ekki boðnar breytingar hljóta jafnan að teljast tortryggilegir !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:27 | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 190
- Sl. sólarhring: 235
- Sl. viku: 759
- Frá upphafi: 365657
Annað
- Innlit í dag: 185
- Innlit sl. viku: 670
- Gestir í dag: 183
- IP-tölur í dag: 181
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)