Leita í fréttum mbl.is

Betra seint en aldrei !

 

Nýveriđ birtist í bćndablađinu, ţjóđlegasta og besta blađi landsins, grein eftir Guđna Ágústsson fyrrverandi Framsóknargođa sem var í alla stađi athyglisverđ. Gekk hún međal annars út á ţađ ađ Íslendingar reyndu ađ vera vakandi en ekki sofandi gagnvart ţeirri hćttu sem óneitanlega felst í ţví ađ auđugir útlendingar séu ađ kaupa hér upp land í stórum stíl !

 

Ţađ er helst ađ heyra á ţessari grein Guđna ađ sofandahátturinn sé slíkur hjá ráđamönnum ađ uppkaup lands fari senn ađ nálgast hlađiđ á tilteknum Gunnarsstöđum, ţar sem ţekktur vökumađur frá ţví fyrir hrun var alinn og leiddur á legg á sínum tíma, en sá skallagrímur hefur ađ ţví er virđist dregiđ ýsur ađ mestu síđan, en ţó líklega ekki laxa !

 

Bitleysi og rćfildómur forustumanna í hérlendri pólitík, einkum ţeirra sem taka ţátt í ríkisstjórnar-samstarfi, er reyndar síreynt vandamál í sögu íslensku ţjóđarinnar. Allskonar frjálshyggjusýking virđist hafa spillt ţjóđlegri framtíđarsýn ţeirra flestra svo mikiđ ađ fátt eitt sé ţar eftir af heilbrigđum viđmiđum !

 

Guđni segist í grein sinni harma ţađ ađ hafa sjálfur veriđ nokkuđ sofandi í ţessum efnum međan hann var ráđherra og valdamađur, en ţađ er ekkert nýtt ađ slíkir menn tali um ţađ eftir á ađ ţeir hefđu viljađ gera meira. Jafnvel ţeir sem ekkert gerđu taka ţannig til orđa og ţykir mörgum ţađ skrítiđ. Međ ţessu er ég ekki beinlínis ađ segja ađ Guđni hafi ekki gert neitt, en hinsvegar hef ég ţá skođun ađ ţađ liggi engin umtalsverđ afrek eftir hann frá stjórnmálaferlinum !

 

Til ţess ađ hann kćmi einhverju slíku í verk, var hann líklega oftast of önnum kafinn sem skemmtikraftur hér og ţar. Guđni ţykir nefnilega skemmtilegur mađur og er ţađ líklega. Sjálfsagt er hann fjölbreyttur til eđlis og anda, en ekki vil ég á nokkurn hátt halda ţví fram ađ hann sé vondur mađur. Líklega er hann miklu nćr ţví ađ vera góđur mađur, en ţađ er nú einu sinni svo ađ viđ sendum menn á ţing og í ráđherrastóla til ađ ţeir geri gagn. Ţađ hafa hinsvegar oftast veriđ afskaplega mikil afföll á ţeim vćntingum ţjóđarinnar !

 

En umrćdd grein Guđna í Bćndablađinu er gott framtak og líklega er hann ađ gera eitthvert gagn međ svo skeleggu tilskrifi. Ţađ var ţá kominn tími til. Ég var eiginlega svo ánćgđur međ hinn bláeyga hugsjónamann fyrir vikiđ, ađ ég klippti greinina úr blađinu og ćtla ađ geyma hana um sinn !

 

Viđ ţurfum alltaf á ţví ađ halda ađ eiga forustumenn sem geta svarađ kalli ţjóđarinnar á hverjum tíma og variđ sjálfstćđi hennar og lífshagsmuni.

Ţegar menn eru valdamenn og geta látiđ verkin tala ţurfa ţeir ađ gera ţađ !

 

Tíminn er nefnilega býsna fljótur ađ líđa og ţađ verđur ađ nýta tćkifćrin međan ţau gefast. Ţađ er öllu leiđinlegra fyrir menn ţegar ţeir neyđast kannski til ađ segja síđar afsakandi : ,, Eftir á ađ hyggja sé ég ađ ég hefđi átt ađ gera ţetta og gera hitt !”

 

En samt er alltaf á vissan hátt mannsbragđ ađ ţví ađ menn gangi í sig og játi ađ betur hefđi mátt gera í ýmsum málum. Og um frelsismál lands og ţjóđar verđur alltaf ađ standa vörđ. Sú barátta krefst ţess af hverri nýrri kynslóđ ađ menn séu á verđi – vakandi !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 152
  • Sl. sólarhring: 338
  • Sl. viku: 1561
  • Frá upphafi: 315542

Annađ

  • Innlit í dag: 147
  • Innlit sl. viku: 1273
  • Gestir í dag: 146
  • IP-tölur í dag: 145

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband