Leita í fréttum mbl.is

Ţankar um yfirstandandi heimshremmingar !

 

 

Ţađ fár sem nú er ađ ganga yfir heimsbyggđina sýnir glöggt hversu viđkvćmt allt okkar alheimskerfi er. Ţađ sprettur einhver fjandi upp á einum stađ og eftir nokkrar vikur er hann kominn um allt. Enda hvernig á annađ ađ vera ? Flugiđ gerir ferđalög skjót og greiđ og fjarlćgđir eru ekki lengur sú hindrun eđa vörn sem áđur var. Ţađ er fátt svo ađ ţađ fylgi ţví ekki bćđi gott og slćmt !

 

Nú er ţađ meira en mikilvćgt, ađ menn viti sem fyrst af hverju veira eins og Covid -19 kemur upp, hverjar eru orsakirnar ? Getum viđ búist viđ öđrum hliđstćđum árásum á heilsufar mannkynsins á nćstu árum ? Er ţessi veira eitthvađ sem viđ sjálf höfum komiđ af stađ og framleiđum jafnvel í gegnum eitthvađ sem viđ gerum rangt ? Getum viđ búist viđ ýmsum stökkbreyttum útgáfum af ţessum fjanda í komandi tíđ ? Í stuttu máli sagt, af hverju gerist ţetta ?

 

Viđ erum nú líklega mitt í heilsufarslegum afleiđingum ţessarar sóttkveikju, en allar líkur benda til ţess ađ í framhaldinu verđi um ađ rćđa mjög erfiđar efnahagslegar afleiđingar af ţessu fári víđa um heim. Ţćr munu trúlega geta valdiđ kreppu í mörgum ţjóđlöndum, sem mega ekki viđ miklu, og ţannig haft slćm áhrif á afkomu milljóna manna !

 

En umfram allt vekur ţetta ástand miklar spurningar um almennt öryggi, ţegar sú stađa er uppi, ađ einn sýkist af öđrum og hćttan felst međal annars í of miklu og nánu samneyti viđ annađ fólk ? Ţađ er vafalaust fyrir flesta óţćgileg upplifun ađ ţurfa ađ neyđast til ađ breyta háttum sínum og atferli varđandi almenna umgengni viđ ađra !

 

Flestu fólki er ţađ svo eđlilegt ađ tjá vćntumţykju sína og hlýju viđ hvert annađ, ađ ţađ er erfitt ađ koma sér upp einhverri fjarlćgđarvörn í ţeim efnum. En lífshćttulegur veirufaraldur eins og Covid-19 gerir ţađ í meira lagi varasamt ađ viđhalda fyrri háttum. Stađreyndirnar tala sínu máli varđandi ţađ. Svo stöđumatiđ er : Haldiđ ykkur í hćfilegri fjarlćgđ frá hvert öđru. Engin handabönd, ekkert knús, engir kossar !

 

Úff ! Ţađ er óskemmtilegt fyrir flesta ađ ţurfa ađ una slíkum kćrleiks-takmörkum, en ţannig verđur ţađ víst ađ vera međan ţetta hćttuástand varir, vegna sameiginlegrar velferđar okkar allra !

 

Samfélagskennd okkar Íslendinga hefur nú oft ţótt býsna einkennileg og margir segja hana felast allt of mikiđ í ţví ađ fá eitthvađ hjá öđrum en láta lítiđ af hendi á móti. Ef ţađ er rétt mat er meiri vandi fyrir dyrum en ella. Ţađ felst nefnilega mikil áskorun í ţví ađ takast á viđ Covid -19 veiruna !

 

Okkur er fyrirlagt af forsvarsmönnum ríkisvalds og heilbrigđismála, ađ standa ţetta veraldarfár af okkur sameiginlega og međ trúverđuga ábyrgđarkennd allra landsmanna ađ kjölfestu. Ţađ er sem sagt kallađ eftir ţjóđlegri samstöđu varđandi ţetta mál. Ţađ ţýđir ađ samfélagskennd okkar Íslendinga mun verđa ađ taka sitt próf í gegnum ţetta ferli !

 

,,Vandi fylgir vegsemd hverri,” segir máltćkiđ og höfum viđ ekki jafnan litiđ svo á, ađ ţađ vćri ţjóđleg vegsemd ađ vera Íslendingur ? Ţurfum viđ ţá ekki ađ sýna í verki, enn og aftur ţegar á herđir, ađ viđ getum virkilega stađiđ saman ? Ađ viđ eigum áfram fulla samleiđ í gegnum súrt og sćtt ?

 

Vonandi mun fyrrnefnt próf ábyrgđar og samfélagskenndar fćra okkur og öđrum viđhlítandi sönnur fyrir ţví ađ viđ séum fćr um ađ halda velli á sćmilega heilbrigđum grundvelli á vettvangi lífsins !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 197
  • Sl. viku: 978
  • Frá upphafi: 383593

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 849
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband