Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2019
21.2.2019 | 14:59
Vanhæfa Valdaþríhrossið !
Meðan hér er hægri stjórn
og hægri þrennu flokkur,
verða að gjalda fulla fórn
þeir fátækustu af okkur !
Það þarf ekki að koma neinum á óvart að útspil stjórnvalda til að liðka fyrir kjarasamningum hafi verið jafn aumt og takmarkað og það var. Hægri stjórnir hafa aldrei greitt götu verkalýðshreyfingarinnar þegar um það er að ræða að greidd verði mannsæmandi laun og lífskjör í landinu verði þannig að fólk geti lifað af þeim !
Samtök atvinnulífsins gátu alveg gefið sér það fyrirfram, að stjórnvöld myndu verða þeim bakhjarl í þessum málum og það hlakkar líka í þeim eftir að stjórnvaldið, sem samanstendur auðvitað af sama liði, gaf út sinn Salómonsdóm, sem er auðvitað Satansdómur og ekkert annað !
Þegar launabilið í þessu litla þjóðfélagi er frá ofurlaunum og niður í ekki neitt sést ljóslega hverskonar stjórnvöld við búum hér við. Og þegar þau hin sömu bakka í raun og veru upp ofurlaunin en neita hinum lægst launuðu um launaleiðréttingar, ættu allir að sjá hvert innrætið er !
Ég undrast líka hvernig framferði sumra fréttamanna er þegar þeir segja frá framvindu samningamála. Það er eins og þeir líti á forustumenn launþega sem eitthvert vandræðafólk, æsingamenn sem séu að spilla hér friði og umturna einhverju ætluðu kærleiksheimili ? Það er stórfurðulegt hvað fjölmiðlavaldið leggst oft lágt þegar það fjallar um sum mál !
Svo þegar rætt er við talsmann Samtaka atvinnulífsins, þennan með engilhreinu ásjónuna, þá verður tónninn allt annar. Þá er líka talað um ábyrgð gagnvart þjóðarheill og hættuna á því að allt fari hér um koll ef farið sé fram á of mikið. Þvílík helvítis hræsni !
Það vita allir að þeir eru til hérlendis sem fara ekki bara fram á mikið heldur allt of mikið, og þeim er veitt það með glöðu geði af hálfu hægrisinnaðra stjórnvalda, en almenningur hefur aldrei farið fram á of mikið, enda aldrei fengið sanngjarna og réttláta meðferð !
Almenningur hefur aðeins reynt að fylla upp í skörð arðráns og tekjuskerðinga sem hann verður stöðugt fyrir, en það hefur aldrei tekist !
Söngur hinna tekjuháu og betur megandi er alltaf sá sami. Jafnvel fyrrverandi forustusauður í Æskulýðsfylkingunni getur sungið með og náð fullum samhljómi, enda löngu kominn á jötuna og vel það !
Maður fær óbragð í munninn af þeirri uppskrúfuðu misréttisklíku sem tröllríður öllu hér og er langt komin með að sölsa undir sig sömu feigðarstöðuna og hún hafði fyrir 2008. Fái hún enn á ný að fara með allt til andskotans, verður ekki aftur snúið úr þeirri helför !
Það verður að koma þessari ógeðslegu og skinhelgu hægri stjórn frá sem fyrst, því á meðan hún situr kemst ekkert réttlæti að í þessu samfélagi. Ráðherrarnir eru væflur en allir sem einn staðráðnir í því einu að sitja sem lengst, hvað sem öðru líður. Þar er stóllinn númer 1, 2 og 3 !
Svo verður að koma hér á lýðræðislegum stjórnarháttum í alvöru !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook
16.2.2019 | 11:23
Hið óseðjandi græðgislið !
,,Magnast enn í málum hér
meiriháttar spilling.
Út og suður ýtir sér
allra klækja fylling !
Nýleg umræða um bankastjóralaun hefur opnað augu margra enn frekar fyrir því hvað lítil innistæða er oft fyrir orðum íslenskra valdamanna. Það kemur aftur og aftur í ljós að þeir ráða ekki við spillinguna í kerfinu og hafa sýnilega litla löngun til að eiga við þá meinsemd. Allir aðilar segjast samt skilja reiði almennings, já, jafnvel alikálfarnir sjálfir, en svo vísar hver á annan og ekkert gerist. Það er enginn Mr. Smith á leið til Reykjavíkur nú - fremur en endranær !
Enginn virðist í sjálfu sér stjórna spillingunni, hún ræður sér bara sjálf. Hún lifir sjálfkrafa hér í eigin veldi, að því er virðist. Enginn heilagur Georg ræðst til atlögu við drekann og sigrar hann, enda er enginn heilagleiki í einu eða neinu í íslenska stjórnkerfinu. Þar virðist bara spreng-alið sérgæskulið í gerspilltri goggunarröð til staðar !
Forsætisráðherra getur sýnilega ekkert og brosir bara eyrna milli, í stöðulegri sældarvímu. Fjármálaráðherra er á svipuðu róli og vill sýnilega ekkert gera, Og formaður þriðja stjórnarflokksins er jafnvel enn síður líklegur til jákvæðra stórræða. Það er algert athafnaleysi eins og í kringum kennitöluflakkið !
Þingið virðist að stórum hluta enn svo upptekið af eftirhreytum Klausturbars-málsins, að venjulegt kerfis-spillingarmál þykir líklega bara leiðinlegt í því samhengi. Það þykir víst lítið spennandi að fara að rífast út af slíku. Það er My Too baráttan sem gildir en ekki eitthvert ómerkilegt mál varðandi almannahagsmuni og líf og afkomu þeirra lægst launuðu !
En af hverju er enginn til að höggva á hnútinn ? Af hverju er ekki hreinsað til í gróðrarstíum græðginnar ? Af hverju er þetta lið ekki látið fara ? Í ríkisbönkum er algerlega óverjandi að hafa fólk sem þarf að lágmarki lífsblóð úr fimmtán manns á mánuði til að geta lifað. Það á bara að segja þessu græðgisliði upp og ráða manneskjulegt fólk, fólk með eðlilega tengingu við lífið í landinu, í staðinn !
En hver á að gera það, hver á að hafa forgöngu um það þarfaverk, hver er með völd í þessu landi sem ekki er meira eða minna samdauna þessum sérgæskuklíkum kerfisins sem skíta hér yfir allt ?
Og þegar svo er spurt, kemur að því sama sem fyrr, það er enginn tiltækur ! Allir segjast að vísu sjá vandamálið og viðurkenna það sem slíkt, en enginn íslenskur valdamaður hefur þá burði sem þarf til að taka á málinu og leysa það !
Allir eru í kerfinu til að verja sjálfa sig og sína stöðu. Enginn þorir þar að ráðast til atlögu við spillinguna. Ráðherrar landsins heykjast þar og draga lappirnar, meðan þeir tala út og suður um ekki neitt !
Margir telja það líka á við bókaða staðreynd, að það sé sjaldnast mikil hugprýði til staðar hjá þeim sem sitja á ráðherrastólum hérlendis. Þeir sem þar sitja eru þar flestir vegna pólitískrar refskákar en ekki vegna tiltrúar almennings á ætluðu manndómsgildi þeirra. Og þegar mál koma upp sem gætu gefið þeim tækifæri til að sýna sig í betra ljósi, falla þeir hver um annan þveran í vanabundinni viðleitni sinni til að forðast það að þurfa að taka á málum. ,,Ég kem mér bara í vandræði ef ég fer að skipta mér af þessu hugsa þeir allir með sér og kunna ekki að skammast sín !
Það virðist vera Íslands óhamingja að eignast aldrei mannsæmandi forustulið. Allan lýðveldistímann höfum við aldrei átt neinn afgerandi virðingarverðan forustumann. Einhvern sem var dáður af fleirum en eigin flokksmönnum !
Enginn stjórnmálamaður hefur notið almenns trausts þjóðarinnar allan þann tíma og skýringin er augljós og einföld. Það hefur enginn unnið til þess !
Það hefur verið talað um tvær þjóðir í þessu landi, græðgisliðið og áhangendur þess, sem eru þeir sem fá bein undan veisluborðunum í sinn hlut og gelta af gleði yfir því, og svo hinn arðrændi og afskipti meginhluti þjóðarinnar. Ég held samt að þjóðir landsins séu á hraðri leið með að verða þrjár, sú þriðja er að verða innflytjendur og afkomendur þeirra, sem sýnast jafnvel líklegastir til að erfa landið, ef allt fer sem horfir !
Græðgisliðið hegðar sér nú í vaxandi mæli enn og aftur, eins og það gerði fyrir síðasta hrun. Það mun ganga af allri velferð hér dauðri ef fer sem horfir, og þarf ekki mörg árin til þess - eins og haldið er á málum !
Verðmætasköpunin sem þjóðin, almenningur þessa lands, framkallar með vinnu sinni, fer að mestu í þá bölvuðu hít sem hér er til umræðu, hít sem óseðjandi er og siðlaus og ætti hvergi að viðgangast. Að sama skapi versna almenn lífskjör og vanlíðan eykst í samfélaginu hjá körlum og konum, með tilheyrandi huglömun, kvíða og kulnun !
Og allir vita að hræfuglarnir í valdakerfinu vernda viðbjóðinn,fjármálaspillinguna,ofurlaunaarðránið,lífeyrissjóðakerfið,kennitöluflakkið og kvótasukkið, sama hvað það heitir, enda eru þeir meinvörp af sama krabbameini ódyggðanna sem vill sýkja hér allt. Hugarfarslegu krabbameini sem er að éta upp og eyðileggja sérhvern heilbrigðan lífsvott sem hingað til hefur getað sprottið upp í mannlífsgarði íslensku þjóðarinnar !
Maður spyr sjálfan sig : Til hvers var búsáhalda-byltingin ? Hverju hefur hún eiginlega skilað, hvað hafa menn lært ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook
7.2.2019 | 11:33
,,Hið pólitíska himnaríki !
Donald Tusk einn af núverandi valdafurstum Evrópusambandsins, vandaði Brexit-sinnum ekki kveðjurnar nýlega og taldi tæpast líklegt að helvíti hefði yfir að ráða þeim hýbýlum sem hæfðu þeim. Svona tala þeir sem telja sig algerlega vera á einhverjum himnaríkispól og eiga ekki til nema eina þrönga sýn á málin.
Evrópusambandið var frá byrjun auðvalds-bandalag sem átti meðal annars að koma í veg fyrir að Frakkland og Þýskaland stæðu áfram í styrjöldum sín á milli. En fljótlega fór að bera á þeirri heilaþvegnu afstöðu til mála, sem fyrir löngu er búin að leggja undir sig alla hugsun í sambandinu, að allir verði að skilja og meðtaka það sem staðreynd - að það sé hið eina rétta pólitíska himnaríki fyrir þjóðir Evrópu !
Þegar menn fara að hugsa þannig í ofríki valdhrokans, eru þeir komnir úr öllu eðlilegu sambandi við lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Og þeirra álit er það að engin þjóð sem fer inn í Evrópusambandið eigi að fara þaðan út.
Þessvegna veitist Bretum þetta svo erfitt, að það er alls staðar í þessu margflókna ferli brugðið fæti fyrir þá. Meiningin er auðvitað sú að þreyta svo bresku þjóðina að hún hætti við að fara !
Hinsvegar getur svo farið að þessi taktík snúist í höndunum á kommissörunum í Brussel því Bretar eru kunnir að þráa og þegar öfugt er farið að þeim er ekki á góðu von fyrir þann sem það gerir. Hinsvegar eru Bretar í dag kannski aðrir en þeir voru í eina tíð og kannski láta þeir kúga sig til hlýðni við reglugerðarvaldið í hinu pólitíska himnaríki handan sundsins. Það kemur þá bara í ljós !
Menn geta svo rétt ímyndað sér út frá basli Bretanna við þetta, hvernig okkur Íslendingum myndi ganga við að komast þarna út, ef þjóðvillingar landsins næðu á einhverri óheillastund að koma okkur þarna inn. Þá væri allt okkar þjóðlega frelsi komið í annarra hendur og það endanlega !
Nei, það er eitt sem allir þurfa að gera sér grein fyrir og það er að Evrópusambandið er ekkert himnaríki og mun aldrei verða það. Það er sérhagsmunabandalag sem er þannig útfært að þú getur farið þar inn en það er engin skilgreind útgönguleið fyrir hendi. Það er litið svo á að enginn fari eða vilji fara úr himnaríki.
Og við skulum líka gera okkur grein fyrir því að jafnvægisvaldið sem ríkti í sambandinu í upphafi milli Frakklands og Þýskalands er alveg úr sögunni. Frakkar hafa dregist stórlega aftur úr Þjóðverjum, Þýskaland er sameinað á ný og þýska valdið ræður nú lögum og lofum í Evrópusambandinu. Það er ekki víst að öllum hugnist það og enn síður til lengdar !
Þegar horft er til raunverulegs lýðræðis og þjóðlegs sjálfstæðis er Evrópusambandið þar andstætt fyrirbæri, þó annað hafi verið sagt í upphafi. Yfirþjóðlegt vald er alltaf varhugavert og það er engin trygging fyrir friði. Hvað lengi munu Frakkar til dæmis láta sér lynda að vera undirlægjur Þjóðverja í sambandinu ? Það er enganveginn gefið að forseti Frakklands verði alltaf lítill karl sem fær allt upp í hendurnar og veit ekkert hvernig hann á að halda á málum !
Það er heldur ekkert víst að áfram verði einhver stór mamma til staðar í Berlín sem skilur vandræðabörnin sín og fer vel að þeim !
Umfram allt skiptir það höfuðmáli fyrir frjálsa Evrópu, að Bretland komist einhvernveginn frá þessu yfirþjóðlega efnahagsskrímsli sem hreiðrar um sig í Brussel, til bölvunar fyrir álfuna, og nú undir algjöru valda forræði Stór-Þýskalands !
Nýjustu færslur
- Arfleifð Francos !
- Í kringum kosningasirkus hégómans !
- Innflutningur á ófriði og ofbeldisbreytni !
- Um óraunhæfar væntingar !
- Á skelfilegt skítkast í kosningum að leiða til Gullaldar ?
- Félagshyggjuna upp örvæntinguna og vonleysið niður !
- Er Ísland utanríkispólitískt núll ?
- Um valdaspil að tjaldabaki !
- Að komast yfir Rússland !!!
- Áskorun til kjósenda : Sendum Vg afleggjaratusku íhaldsins ...
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 131
- Sl. viku: 809
- Frá upphafi: 356654
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 641
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)