Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.10.2024 | 10:51
Fjallað um fyrirsjáanlega brotlendingu !
Sú var tíðin á Íslandi sem og víðar, að lagagerð tók mið af því að í lögum yrði það fyrst og fremst undirstrikað sem fór saman við almenna réttlætiskennd fólks. Lögin urðu með því ákveðinn rammi um það sem sameinaði fólk og þannig varð öll samfélagshugsun styrkt og gerð að öryggislegri undirstöðu þjóðarinnar. Lögin urðu með þeim hætti sá sáttmáli sem þau eiga eðlilega að vera !
Á síðari árum hefur hinsvegar nokkuð oft komið í ljós að löggjafinn á það til að fara inn á aðrar brautir með lagasetningu. Það virðist ekki lengur stefnt að almannaheill og víðtækri samstöðu um stefnumál, heldur er laumað inn í lagagerð ýmsum atriðum sem taka mið af sérhagsmunum og hyglingum fyrir ákveðna valdahópa. Slíkir hópar gera í krafti fjársterkrar stöðu sinnar yfirgangsfulla kröfu um endurmat á lífsins gæðum og vilja helst útiloka allan jöfnuð sem slíkan að fullu og öllu í samfélagssáttmálanum !
Gegn slíkum tilhneigingum fasista og auðvaldssinna þarf að snúast með einbeittum vilja fyrir sameiginlega hagsmuni alþjóðar. Þeir sem heimta nýjar spilareglur í samfélaginu til að drýgja völd sín og áhrif, og stefna að því að breyta lagasetningum sem sátt hefur ríkt um, í sérgæskufullar yfirlýsingar um hags-munagæslu fyrir einkarekstur og einka-aðila, segja sig með framkomu sinni frá því að vera hluti af íslensku þjóðinni !
Þeir hætta með því að eiga samleið með okkur hinum sem viljum varðveita samfélagssáttmálann og alla lagagerð í þjónustu heildarhagsmuna þjóðarinnar eins og áður var að stefnt og sameinast um. Þeir gerast með þeim hætti svikulir gagnvart öllu því sem þeir ættu að virða og verja og skilja sig frá heiðri og heilbrigðum rótum og verða þannig í raun óvinir samfélagslegrar einingar og andstæðingar réttlátrar lagaskipunar í landinu !
En það er fleira sem ógnar réttum siðum í dómskerfi og lagasetningu. Nú er fullyrt af kunnugum aðilum að það sé ekki lengur takmark löglærðra manna í málsóknum og réttarhaldsmálum að leita sannleikans, heldur að vinna mál, eiginlega sama hvernig það sé gert. Ef svo er, getum við glögglega séð hversu langt við erum farin að fljóta frá því sem sameinar í átt til þess sem sundrar. Við slíkan samfélags-ágreining getum við ekki búið til lengdar, því þá er öll réttlætisundirstaða okkar þjóðfélags úr lagi gengin og ófriður á næstu grösum, ef að líkum lætur !
Við búum við ákaflega brothætt fyrir-komulag í flestum okkar málum. Lagakerfið og þar með stjórnkerfið allt er ekki traust, framkvæmdavaldið er svo spillt og úr sér gengið að það horfir til vandræða, löggjafarvaldið er orðið að algerri fótaþurrku framkvæmdavaldsins og dómsvaldið er, vegna æ meiri spillingar, ekki síst í kringum seinni tíma lagasetningar, að missa alla heiðarlega og raunhæfa tengingu við alla alþýðu manna, fólkið í landinu, þjóðina sjálfa !
Spurningin er því óhjákvæmilega sú: Hvernig mun þetta allt saman fara, ef fer sem horfir ? Það er ekki erfitt að sjá það fyrir. Það er brotlending fyrir höndum, á flestum sviðum þjóðlífsins. Við erum með margvíslegum hætti að mölva undan okkur alla þjóðlega undirstöðu, fyrir atbeina þeirra aðila samfélagsins sem þegar hafa tekið sér of stóran hluta af skiptakökunni og ætla í græðgi sinni og kerfislegum yfirgangi að halda því áfram. Það mun geta leitt til þess að samfélagssáttmálinn verði endanlega rofinn og friðurinn í landinu þar með !
Svo má ekki gleyma því að erlendis blása nú viðsjárverðir vindar, uppsafnaðir stríðsvindar, og íslensk yfirvöld hafa ekkert annað gert varðandi það hættulega umhverfi okkar, en að gera það enn hættulegra fyrir þjóðina, með því að flækja okkur í allskonar þrælabönd erlendrar áþjánar um alla framtíð. Á sama tíma virðast sumir vilja fylla landið af innflytjendum sem enginn veit hvaða hollustu hafa til að bera gagnvart íslenskum þjóðarhagsmunum og friði í landinu okkar ?
Það virðist því ekki annað í sjónmáli en að við séum að koma á endastöð með öll okkar mál, ef við förum ekki að vakna af dásvefni lognmollu og dáðleysis, til að hefjast handa í nýrri sókn til endurnýjaðs sjálfstæðis og mannfrelsis. Oft hefur þess verið þörf, en nú er nauðsyn og sannarlega um líf og framtíð þjóðarinnar að tefla !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook
13.10.2024 | 10:39
Svolítil gáta um ótiltekið land ?
Til er land sem er aðsetur þjóðar sem margir halda að sé búin að týna sér í hræsnis og hégómamálum. Í viðkomandi landi hefur sérgæska og sjálfselska risið í áður óþekktar hæðir ómennsku og mannfyrirlitningar. Menn hafa reist þar Mammoni ótalin ölturu og færa honum fórnir í sífellu, meðan öll mann-ræktarviðhorf eru troðin niður og félagshyggja er að verða óþekkt hugtak ?
Í upphafi var land þetta byggt friðsamri þjóð sem kom frá öðrum löndum en viðurkennt er. Svo komu ræningjar annars-staðar frá og rændu, drápu og þrælkuðu þjóðina sem fyrir var og þurrkuðu út alla sögu hennar. Svo var logið upp allt annarri sögu og hún er enn látin gilda. Það hafa því alltaf verið tvær þjóðir í landinu. Sú rænda og ræningja-þjóðin !
Eitt af því sem gerir það að verkum að land þetta er nokkuð umtalað víða, er það að þeir pólitísku flokkar og baktjaldaöfl sem hafa þar mestu ráðið og mótað kerfið, hafa jafnframt séð til þess að margir valdamenn landsins sem myndu annarsstaðar vera taldir til þjóðsvikara og landráðamanna vegna verka sinna, eru þar hátt upp hafnir í sögunni og sagðir hafa verið höfðingjar miklir og stakir mannkostamenn. Minningargreinarnar um þá, skrifaðar af eftirlifandi félögum þeirra, virðast undirstrika það margar hverjar, að þeir hafi nánast verið teknir í guðatölu !
Slíkri upphafningu dauðra valdamanna hefur að sjálfsögðu ráðið rangsnúið siðferðismat. Það á svo allar rætur að rekja til síbylgjuáróðurs, sem fyrrnefndir flokkar og þjóðfélagsöfl hafa staðið fyrir í landinu árum saman upp á hvern dag og gera enn. Til þess áróðurs hafa umrædd öfl varið miklum fjármunum og ótæpilegri prentsvertu. Þar hafa himinhrópandi lygar flotið yfir allt og til efnis jafnan allt verið notað nema sannleikurinn !
Slíkar tilvistaraðstæður og þær sem hér er lýst, gætu vafalaust sett heilbrigði mun sterkari þjóðar algerlega úr skorðum, en þeirrar sem land þetta byggir. Áður viðurkennd sannindi um dyggðir og ærleg-heit eru úthrópuð í fyrrnefndum áróðri sem gamaldags torfkofaakjaftæði og séu sem slík að engu hafandi í framsæknu nútímaþjóðfélagi sem hafi að sjálfsögðu guðdómlega auðsæld að sínu megin-markmiði !
Umræddu landi hefur þó fyrir allnokkru verið stolið af gjörspilltri valdstéttinni frá þjóðinni og stendur ekki til að skila því aftur til réttmæts eiganda frekar en auðlindum þess sem nánast öllum hefur verið stolið með hliðstæðum hætti. Sá gjörningur hefur átt sér stað þvert á gildandi lög og almennan mannrétt sem þó er sagður viðurkenndur í landinu, en er það enganveginn !
Sýndarveruleiki ræður miklu í allri umræðu í þessu landi, því enginn myndi þola að heyra hvernig veruleiki mála er þar í raun. Ríkiskerfið er nú alfarið talið í þjónustu auðmanna landsins og hefur það komið æ betur í ljós hin síðustu ár. Allar félagslegar hugsjónir frá fyrri tíð hafa verið slegnar af sem úrelt arfleifð og menningarsaga þjóðarinnar verið stytt sem því nemur. Allt sem tekur mið af ójöfnuði og yfirgangi er nú talið til dyggða í samfélaginu, enda hefur tíðni glæpa margfaldast í höfuðborg landsins og þykir það varla lengur frásagnarvert !
Nú hlýtur að vera búið að upplýsa svo mikið í þessu efni, að það ætti ekki að vefjast fyrir fólki að vita hvert landið er. Þó skal bæta hér við lykilupplýsingum sem ættu að gera allt ljósara fyrir jafnvel tornæmustu mönnum. Háskóli landsins er af mörgum talin óþjóðlegasta stofnun þess, þvert á það sem hann átti að verða fyrir utan ríkisstjórn þess - að sjálfsögðu !
Hvert er landið ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook
10.10.2024 | 09:56
17. júlí 1944 Ganga hinna sigruðu !
Þegar allt lék í lyndi hjá þýsku nazistastjórninni og sigurganga herja hennar var í algleymingi um mitt ár 1940, börðu Þjóðverjar sér á brjóst og töluðu digurbarkalega um það þegar þeir myndu leggja undir sig höfuðborgir annarra ríkja og marséra þar í sigurgöngu. Þekktur var söngur þeirra Wir fahren gegen Engeland og fleira efni þess háttar. En það ber ekki allt upp á sama daginn og veruleikinn verður oft talsvert öðruvísi en vonirnar standa til !
Þann 17. júlí 1944 átti sér stað nokkuð merkileg uppákoma í Moskvuborg, á sólríkum mánudegi. 57.000 þýskir stríðsfangar voru látnir ganga um götur borgarinnar, áður en þeir voru fluttir með lestum til austari hluta landsins, í fangabúðir. Allskonar sögusagnir voru á sveimi um gang stríðsins og Stalín ákvað að viðhafa opinbera sýningu, sem kvæði skýrt á um hver framvindan væri á vígvöllunum. Þar skyldi ekkert fara á milli mála !
Og það var gert. Íbúar Moskvu og fulltrúar erlendra ríkja fengu að sjá skítugar leifar nasistaherjanna, hinna fyrrum svo gunnreifu Tevtóna, sem ráðist höfðu á Sovétríkin án stríðsyfirlýsingar, í þeirri trú að þeir gætu ginið þar yfir öllu ; fengu að sjá þessar leifar ganga um götur höfuðborgar Sovétríkjanna, sigraðar og sviptar fyrri hroka. Fyrirfram höfðu verið valdir úr stríðsfangahópunum menn sem taldir voru svo til heilsu að þeir gætu þolað slíka göngu !
Íbúar Moskvu horfðu hljóðir að mestu á þetta sjónarspil og mörgum var áreiðanlega ofarlega í huga sá mikli fórnarkostnaður sem fylgt hafði árásinni á land þeirra. Erlendir stjórnarfulltrúar sem urðu vitni að þessum atburði, sannfærðust um það að Þjóðverjar hlytu að vera búnir að tapa styrjöldinni. Þarna gengu í fararbroddi 19 þýskir hershöfðingjar, allmargir ofurstar og um þúsund liðsforingjar af hinum ýmsu tignarstigum í Wehrmacht og á eftir þeim tugþúsundir óbreyttra hermanna nazista-ríkisins !
En ganga þessi var sannarlega ekki uppfylling fyrri draumsýna þeirra um komu þeirra til Moskvu. Þeir gengu þarna ekki sem sigurvegarar undir blaktandi hakakrossfánum, heldur sem sigraðir menn og stríðsfangar. Draumar þeirra höfðu breyst í svörtustu martröð. Oft höfðu þeir vafalaust talað sín á milli um sigurhátíðina sem haldin yrði eftir hertöku sovésku höfuðborgarinnar, af hálfu þýskra yfirvalda, en þá stund áttu þeir ekki eftir að lifa. Þess í stað urðu þeir að ganga um götur Moskvu við allt aðrar og óskemmtilegri aðstæður og áttu það fullkomlega skilið !
Þessi ganga hinna sigruðu byggðist á ávinningi hinnar miklu sóknar Rauða hersins í Hvíta-Rússlandi, sem hófst 22. júní 1944, er þrjú ár voru liðin frá innrás Hitlers-Þýskalands í Sovétríkin. Sókn þessi var svo vandlega undirbúin og falin, að hún kom þýsku herstjórninni algerlega á óvart og riðlaði öllum vörnum Þjóðverja fljótlega. Þeir höfðu búist við sókn í Úkraínu og þóttust viðbúnir slíkri framsókn þar. Þessi sóknarlota Rauða hersins var nefnd Bagration, eftir rússneskum herforingja sem barðist gegn Napóleoni, og lauk henni ekki endanlega fyrr en 19. ágúst, en skriðdrekar sovéthersins voru samt komnir á strönd Eystrasaltsins í lok júlí !
Hernaðaraðgerðir þessar leiddu til mikils mannfalls í þýska hernum, drepinna hermanna og handtekinna, upp á meira en 400.000 manns. Hinn mikli fjöldi sem handtekinn var, mun hafa gefið Stalín hugmyndina að uppákomunni, því hann varð uppistaðan í göngu hinna sigruðu í Moskvu þann 17. júlí. Eftir að þýsku herfangarnir höfðu þrammað þungum skrefum um götur Moskvu, voru göturnar þrifnar og þvegnar, svo öll ummerki eftir hina hötuðu fasista væru þar afmáð. Ekki síst síðan þá hafa þjóðir Rússlands og áður Sovétríkjanna, hatað fasismann og allar hans birtingarmyndir, og hafa flestum þjóðum ríkari ástæðu til þess, og svo er enn í dag !
Aldrei hefur verið haft hátt um göngu þessa í vestrænum fjölmiðlum, enda hefur vafalaust mörgum þar mislíkað þessi meðferð á Þjóðverjunum, því nasisminn átti þar í flestum löndum nokkurt fylgi, enda upphaflega leiddur þar á legg fjárhagslega, en sú saga er ekki beint efni þessa pistils. Þeir sem vildu samt kynna sér sögulegar heimildir um göngu hinna sigruðu ( The Parade of the Vanguished ) geta fundið þær á Netinu og eins er minnst á gönguna í þáttunum The Soviet Storm, sem líka á að vera hægt að nálgast þar !
En hérlendir menn sem vilja hafa það sem sannara reynist, þurfa samt alltaf að hafa það í huga, að vestræn fréttatúlkun á sovéskum framgangi og sigrum, jafnvel strax í seinni heimsstyrjöldinni, er nánast undantekningarlaust varasöm. Hún er yfirleitt þannig úr garði gerð, að hún gefur fullt tilefni til vantrausts vegna villandi framsetningar, og það algjörlega á viljandi forsendum. Kalda stríðið byrjaði nefnilega talsvert fyrr af hálfu Vesturlanda gegn Sovétríkjunum en flestir hafa gert sér grein fyrir !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.10.2024 kl. 10:36 | Slóð | Facebook
7.10.2024 | 09:36
Að vera virðingarlaust viðhengi ?
Sá tími er nú kominn, að þjóðir heimsins verða stöðugt ákveðnari í því að ein þjóð eigi ekki og megi ekki ráðskast með allan heiminn. Heimsvaldastefna Bandaríkjanna er því litin óhýru auga víðast hvar í veröldinni, nema í þeim ríkjum sem eru þrælbundin valdi kúgarans og sjá ekkert í stöðu mála, fyrir utan það eitt að fylgja honum umyrðalaust sama hvað hann gerir !
Í umræddri fylgispekt virðist alveg ótrúlega mikið manndómsleysi ráða allri framvindu mála og hér á Íslandi sést það, í neyðarlegri nærmynd, troða á nánast öllu því sem gerði okkur hér áður að virðingarverðri þjóð. Og enginn þarf að ímynda sér að pund okkar hafi vaxið okkur til sæmdar á seinni árum. Þar hefur svo margt gengið með öfugum hætti að með ólíkindum er, enda hefur þjóðin verið gersamlega forustulaus til fleiri ára og geldur þess stöðugt !
Virðing okkar sem sjálfstæðrar þjóðar hefur því beðið mikinn hnekki og það þarf engan að undra það. Við höfum hvergi haldið höfði í utanríkismálum, hvergi haldið virðingu okkar uppi. Það þarf því enginn með gefna glóru að furða sig á því að orðspor okkar Íslendinga sé laskað og í litlu gengi víða um heim. Við höfum sjálfir séð til þess að svo er, og það hvað eftir annað, með því að óvirða okkar eigið sjálfstæði í þágu erlendra hagsmunaaðila, og gert okkur þannig að óþjóðlegum ómerkingum út um allan heim !
Það er auðvitað ekki boðlegt fyrir þjóð sem vill láta taka sig alvarlega sem sjálfstæða og fullvalda þjóð, að leggjast í flatneskjulegt ferli aumingjaskapar og sálarleysis fyrir ósvífinni erlendri kröfugerð um íslenskan undirlægjuhátt. Eigum við kannski aldrei neitt stolt til nema í kringum boltaleiki ?
Til hvers var öll sjálfstæðisbaráttan, ef við ætlum að leggjast hundflöt í skítinn í hvert skipti sem heimtuð er af okkur hlýðni þrælslundar og vesaldóms ? Sjálfstæð þjóð á ekki og má ekki hegða sér þannig, ef hún ætlar að halda virðingu sinni í samfélagi þjóðanna. En við virðumst nú brjóta allar brýr að baki okkar með þjónkun við margt sem löngum áður var ekki talið sæmandi frjálsri þjóð !
Nú er það framkomið sem löngum var varað við áður, af þjóðhollum mönnum í þessu landi, að okkur er skipað í flokk með virðingarlausum taglhnýtingum erlends stórveldis og okkur er ætlað að borga stríðsskatta hvenær sem bandaríska blóðveldið gerir kröfu til þess. Nató-aðildin er nú orðin að þeim þjóðarvoða sem fyrr var spáð að hún yrði !
Og með því erum við hætt að vera sú þjóð sem við áttum að vera og verða og öll okkar virðingarkjölfesta er þar með fokin út í veður og vind. Nú virðumst við lítið annað en ófrjálst viðhengi við samvisku-lausa heimsvaldastefnu sem virðir ekkert nema eigið vald !
Og eitt er víst, að barátta fyrri ára fyrir þjóðlegri dáð og samfélagslegum ávinningi heildarinnar miðaðist aldrei við að slík yrði niðurstaðan, með brotlendingu allrar manndómsreisnar, í þágu óhreinna og glæpsamlegra afla !
4.10.2024 | 10:10
Norðurlöndin orðin stríðsóð !!!
Það er ekki langt síðan Norðurlönd skáru sig úr meðal þjóða heimsins fyrir einlæga friðarhyggju og samstöðu með málum sem talin voru miða að betri heimi. Norðurlönd nutu yfirleitt um langt skeið mikils álits fyrir víðsýn sjónarmið og jákvæðni gagnvart lífshagsmunamálum mannkynsins í víðasta skilningi. Þau lögðu mikla áherslu á friðsamleg samskipti þjóða og voru í þeim efnum jafnan fremst í flokki. En nú er öldin önnur !
Það virðist hafa gripið um sig einhvers-konar stríðsæði í þessum áður friðsamlega hluta Evrópu. Hið verðandi múslímaríki Svíþjóð sá nýlega enga aðra leið út úr sjálfsköpuðum innflytjendavanda sínum en að ganga í Nató. Þar með lauk 208 ára stríðslausu tímabili í þessu ríki Norður-landa sem eitt hefur náð því að vera um skeið talið til stórvelda Evrópu. Það líða því varla önnur 208 ár áður en Svíþjóð verður beinn þátttakandi í stríði með tilheyrandi afleiðingum !
Noregur er og hefur lengi verið þvílík drusla í höndum Bandaríkjamanna, að þjóðleg virðing fyrir Norðmönnum hefur gengið töluvert til baka víða um heim og múslímar hafa stóraukið áhrifavald sitt í Noregi svo flestallir virðast skríða núorðið fyrir þeim, allt frá æðstu mönnum ríkisins og niður úr, jafnvel fram á ystu annes, í fámennum byggðarlögum !
Þar hafa verið reistar á síðustu árum fokdýrar moskur, fyrir fjármagn frá Saudi Arabíu og enginn segir neitt. Norðmenn eru sannarlega ekki lengur það sem þeir eitt sinn voru. Ríkidæmið virðist hafa þurrkað frá þeim alla manndómslega reisn !
Og þegar við lítum til Finnlands, er vert að hafa það í huga að það er gamalt bandalagsríki Nazista-Þýskalands og tel ég að það segi að mestu það sem segja þarf um það ríki, enda hef ég áður í pistli fjallað um þá samskiptasögu, svo ljóta og blóðuga sem hún er í sannleika á spjöldum Sögunnar. Finnar eru til dæmis ekki talin norræn þjóð og upphafsrætur þeirra eru líklega einhversstaðar austur í Asíu, svo frændsemistalið varðandi þá er ekkert nema inngróið hræsnistal á hégómafundum Norðurlandatoppanna !
Danmörk er eiginlega eina ríkið á Norður-löndum sem hefði kannski mátt ætla að stæðist stríðsæsingar þær sem nú eru í gangi. En nei, Danir féllu líka í suðupott gerninganna, og þeim verður áreiðanlega ekki til lengdar sælt það sameiginlega fall. Þeir eru nefnilega þannig skapi farnir, og að mörgu leyti það jákvætt uppbyggðir sem manneskjur, að ólíklegt er að þeir gleðjist lengi yfir því að vera aðilar að einpóla stríðsæsingamafíu !
Um Ísland vil ég fara sem fæstum orðum í þessu sambandi, en segja má um það eiginlega að miklu leyti það sama og sagt er hér að framan um Noreg. Er þar sannarlega leiðri þjóð að líkjast. Við Íslendingar erum líka sagðir norskir að framættum til, og ekki virðumst við hafa þroskast öllu betur en Norðmenn í þófi aldanna. Trúlega sækjum við þó betri hluta okkar til Írlands, enda er keltneskur uppruni okkar miklu drýgri að vöxtum en hefur verið viðurkennt til þessa af þeim sem eiga þó að vita það !
Í síðari heimsstyrjöldinni á valdatíma Quislings, sóttu norsk nasista-yfirvöld um það til Hitlers, að fá úthlutað svæðum í Rússlandi, líklega þá fyrir norska innflytjendur, sem yrðu þá trúlega að vera nasistar. Ekki varð nú neitt af því ráðabruggi, þar sem nasistar náðu aldrei að sigra Sovétríkin. Nú er hinsvegar verið að gera aðra tilraun til að ná fram slíkum sigri í gegnum Úkraínu-fasista, og skoðanabræður þeirra í Noregi hugsa sér kannski enn í anda Quislings, að hefja norskt landnám þar eystra !
En þar sem þriðja heimsstyrjöldin verður að öllum líkindum háð áður en af því getur orðið, er vandséð hvernig þau vinningsplön koma til með að ganga fyrir sig hjá þeim stríðsóðu, óþjóðlegu Kanasleikjum, sem virðast stjórna öllu í Noregi sem stendur. Norðmenn eiga kannski eftir að finna fyrir því áþreifanlega að það er allt annað verkefni að vinna að stríði en að vinna að friði. Vonandi skilst þeim sú staðreynd áður en öllu verður lokið !
Norðurlönd eru ekki lengur það sem þau voru. Þau standa ekki lengur gömlu vaktina sem útverðir manngæskulegrar viðleitni í málefnum heimsins. Þau virðast nú öll orðin að heilaþvegnum undirlægjum hernaðarbandalags sem þrífst á stríðsástandi, og hafa þannig orðið vitsmunalausu stríðsæði að bráð. Þau eru orðin að umskiptingum alheimskunnar og telja víst að heimsfriðurinn sé best tryggður með því að framleitt sé sem mest af vopnum í veröldinni. Í þeirri afstöðu felst hástig heimskunnar !
En viðhorfsbreytingin kann hinsvegar að verða þeim verðskuldaður feigðarboði, því vopnin í dag eru orðin slík - að þau eru ekkert nema mannkynsdeyðandi djöfulskapur !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook
1.10.2024 | 15:04
Nýtt fasistaríki hefur verið byggt upp í Evrópu !
Svo virðist í öllu sem Úkraína undir sínum nýju valdhöfum þræði spor fasismans með grófasta hætti. Það er ráðist gegn öllu sem þykir forsvaranlegt í siðuðu ríki og lýðræðisleg grundvallarmál eru hvert af öðru troðin í skítinn. Úkraínska þjóðin er hlunnfarin á allan hugsanlegan máta og vestrænar auðklíkur ráða í landinu !
Rétttrúnaðarkirkja síðustu þúsund ára er svívirt og bönnuð, margir stjórn-málaflokkar hafa verið bannaðir og sumir forustumenn þeirra hafa verið myrtir, þingkosningar sem áttu að vera 2023 hafa ekki verið haldnar, sveitarstjórna-kosningar ekki heldur og forsetakosningar sem áttu að vera snemma á þessu ári eru þurrkaðar út, allt að sögn vegna þjóðar-öryggismála !
Af þessu má sjá að Úkraína undir núverandi stjórnvöldum er ekki lýðræðisríki. Það er einræðisríki. Þjóðin er kúguð og fær engu að ráða í sínum málum, líklega um fjórðungur hennar flúinn úr landi. Flestir til Rússlands. Núverandi Úkraínustjórn virðist bókstaflega talað þræða spor þýsku nazistastjórnarinnar. Þau öfl sem vöktu Hitler upp á sínum tíma, eru algerlega gerendur þess sem á sér nú stað í Úkraínu og Vesturlönd eru að öllu leyti arkitektar framvindunnar !
Vestrænir auðhringar semja við stjórnarmafíuna í Kiyv án nokkurrar aðkomu úkraínsku þjóðarinnar, því Selenski-stjórnin hefur í raun ekkert lýðræðislegt þjóðarumboð lengur. Þarna birtist með skýrum hætti hin nýja nýlendustefna sem forusta ESB er svo einstaklega hrifin af, eftir að vestur evrópskir valdamenn neyddust til að segja skilið við þá gömlu, sem var uppáhalds leikfang þeirra og kúgunartæki í áratugi !
Fjáraustur Vesturveldanna til stjórnvalda í landinu fer að margra hyggju að drjúgum hluta inn á erlenda bankareikninga úkraínskra valdamanna, á svipaðan hátt og gerðist margsinnis í Afríku þegar ein-ræðisherrar álfunnar áttu í hlut. Mannréttindi úkraínsku þjóðarinnar eru þannig ekki varin af neinum, nema þá Rússum varðandi íbúa austurhéraðanna, sem eru mestmegnis þjóðbræður þeirra og systur !
Vesturlönd virðast vilja stríð við Rússa, stríð við Kínverja og stríð við Íran. Slík átök munu skilja við meira en hálfan heiminn í rúst. En óhæfir valdapólitíkusar í mörgum löndum vinna samt að því að koma í veg fyrir að hægt verði að snúa við af glötunarleiðinni. Þar virðast jafnvel fulltrúar smáþjóða hættulegri en aðrir og þarf ekki langt að fara til að sjá það. Slíkar vandræðamanneskjur virðast líka vera til hérlendis !
Eistland vill til dæmis skipta Rússlandi upp í mörg ríki ? En hvernig ætlar Eistland að fara að því ? Er það komið með umboð frá Nató eða Bandaríkjunum til að tjá sig fyrir þeirra hönd hvað slíkt snertir ? Hvaða vægi fylgir öfga-yfirlýsingum smáríkja á borð við Eistland eða Ísland ? Kona að nafni Kaja Kallas frá Eistlandi er að verða valdamanneskja hjá ESB og virðist stefna að því að sundurlima Rússland. Hún gerir varla annað á meðan, aumingja manneskjan !
Umrædd persóna er líklega einhverskonar Kolbrún þeirra Eistanna. Valkyrjur Vesturlanda, konur í valdastöðum, virðast miklu hættulegri og stríðsæstari en karlarnir sem valdamenn, og virðast yfir-leitt allar vilja - meira eða minna - feta í fótspor Margaretar Thatcher, sem hefur löngum verið hafin á stall meðal sinna líka. En það er annað og miklu meira en Falklandseyjastríð að raungerast fyrir augum okkar !
Það gustar nefnilega nákalt um heim okkar mannanna eins og sakir standa. Skammt er síðan fólk, ekki síst á Vesturlöndum, fagnaði nýrri öld sem einhverskonar inngangi að betri tíð og friðar og samstarfslausnum. En nú hefur hin gamla græðgi fyrri aldar tekið algerlega yfir. Hitlersandinn virðist nú drottna yfir allri Vestur-Evrópu. Hann virðist sitja í arnarmerktu hásæti í Brussel !
Öllu friðartali hefur verið varpað út og Norðurlöndin gömlu og góðu virðast orðin forsöngvarar í sjálfum stríðsæsinga-kórnum. ,,Öðruvísi mér áður brá" gætu víst margir sagt við þessar gjörbreyttu aðstæður. Hvað skyldi vera langt í það að stóru bomburnar fari að falla ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook
24.9.2024 | 16:06
Er Sagan frá 1941 að endurtaka sig ?
Það verður aldrei hægt að hreinsa það af spjöldum Sögunnar, að Vesturveldin, einkum Bretland og Frakkland, ásamt auðhringa-valdi viðkomandi landa, fjármögnuðu þýska nazistaríkið með það fyrir augum að senda það gegn Sovétríkjunum. Hitler skeit ekki peningum, en peninga þurfti hann að fá og fékk þá að vestan !
Bandaríska ríkið mun líklega hafa átt lítinn þátt í þeirri fjármögnun í eigin nafni á þeim árum, einkum kannski vegna þess að Roosevelt var forseti, en bandarískt auðvald, bankavald og einstakir auðkýfingar lögðu drjúgt í sjóði Hitlers. Sumir slíkir voru yfirlýstir gyðinga-hatarar og stefna nazista höfðaði því ekki svo lítið til þeirra. Á síðari tímum virðist hinsvegar Hitlersandinn hafa sett mark sitt svo á bandaríska stjórnarstefnu, að mörgum finnst tæpast öllu lengur hægt að greina þar á milli !
Á margan hátt minnir öll atburðarás þessara ára á forynjulega íslenska draugasögu. Menn vekja upp djöful og ætla að senda hann á einhvern óvin til að drepa hann, en vopnin snúast í höndum þeirra og uppvakningurinn fer að herja á þá í staðinn. Loks hlýðir hann þó ef til vill því sem fyrir hann hafði verið lagt, en þá er svo komið að uppvekjendurnir eiga engan annan kost en að verða bandamenn þess aðila sem ófreskjan átti í upphafi að drepa !
Sennilega hafa pólitískir ráðamenn, fjár-máladrottnarar og bankaburgeisar Vestur-landa fórnað höndum þegar Hitler réðist á Frakkland og önnur Vestur-Evrópuríki í stað þess að hjóla í Sovétríkin. En þar sannaðist það sem oftar, að það hefur löngum verið erfitt að stjórna upp-vakningum og ekki síst þegar þeir koma þráðbeint upp úr helvíti eins og Hitler mun hafa gert !
Auðvald Vesturlanda hefur nú sett afl sitt í þann örlagagír sem kann að leiða til lokastyrjaldar mannkynsins. Nú á víst að vekja upp myrkraöfl sem hlýða því sem þeim er fyrir sett. Og auðvaldið er auðvitað tengt við sömu uppsprettur og það var 1941. Það er því ekki við neinu góðu að búast. Auðvaldið hefur sýnt sig á öllum stigum sem það mannkyns hættulega bölvunarvald sem snýr allri blessun við og skapar ekkert nema endalausa ógæfu !
Græðgishvöt mannsandans er sending beint upp úr vítisglóðinni og auðvaldið er helsti fulltrúi þeirrar sívirku óþokka-mennsku hér á þessari jörð. Sú staðreynd ætti ekki að fara framhjá neinum skyni bærum manni sem hlýðir eðlilegri rödd sinnar eigin samvisku !
Eða hver skyldi annars vera helsti gerandi þeirrar þjóðfélagsmyndar sem Chris Hedges hefur lýst svo afgerandi með eftirfarandi orðum ?
,,Við lifum nú í þjóðfélagi þar sem læknar eyðileggja heilsufarið, lögfræðingar eyðileggja réttlætið, háskólar eyðileggja þekkinguna, ríkisstjórnir eyðileggja frelsið, fjölmiðlarnir eyðileggja upplýsinguna, trúarbrögðin eyðileggja siðvitundina og bankar okkar eyðileggja efnahaginn !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook
22.9.2024 | 10:01
Ritað í tilefni haustjafndægra !
Það haustar. Sumarið er að hníga út af dagatalinu og sumir segja að það hafi aldrei komið til að vera þetta árið. Einhverjir voru þó slíkir dagarnir en fólk vill meira en fáeina daga. Margir tuða og ergja sig og aðra, og fara svo á hásumartíð út á Teneriffe, innfæddum íbúum þar til takmarkaðrar ánægju. Allt kemur að sínum þolmörkum, jafnt fjöldi Íslendinga á Teneriffe sem og fjöldi útlendinga á Íslandi !
Hvað er framundan ? Verður dýrtíðin áfram jafn djöfulleg og hún hefur verið, verður staða heimilanna í mögnuðu mínusgildi til frambúðar ? Verður húsnæðisokrið áfram í hæstu hæðum ? Hið hálaunaða, pólitíska ríkisforustulið gerir sannarlega fátt til að bæta stöðuna og skilar engu, er með fundahald úti á landi sem skilar engu, með sveitarstjórnarfólki sem skilar engu :
Ríkisstjórnin fundar, fundar,
flækist vítt og breitt.
En í verkum stundar, stundar,
stefnuleysið eitt !
Og vetur nálgast og dagar styttast. Allt lífsverk náttúrunnar hlýðir sínu kalli og laufin falla. En verkin mannanna, einkum valdamannanna dragast. Þau skila sér seint til góðra lykta. Samt er kominn loforða-tími, kominn lygatími fyrir lausnir eftir kosningar. Gildir þá enn og aftur það sem eitt sinn var kveðið á Þorrablóti á Skagaströnd :
Færist yfir alþjóð ró
eftir kosningar.
Eitt og annað gleymist
sem áður lofað var.
Sveipar þögnin á ný
sérhvern þingmannsstól.
Svo veit enginn hvar við
dönsum næstu jól ?
Þeim fjölgar Íslendingunum sem dvelja stóran hluta ársins erlendis, jafnvel í eigin húsnæði. ,, Maður frýs bara uppi á Íslandi segja þeir með hrolli. Þeir eru eiginlega orðnir hálfgerðir Frýslendingar að eigin mati og horfa svörtum augum á Ísland, farsælda frón. En við heima-ræktaðir Íslendingar þekkjum náttúruöflin hér og erum ekkert óvanir gosum og skjálftum, jökulhlaupum og aurskriðum og öðrum uppákomum hins íslenska umhverfis, og slíkt hendir nú víðar en hér !
En það eru yfirvöldin sem eru miklu verri viðureignar en náttúruöflin. Þau moka erfiðis-ávinningi lands og þjóðar til Brussel eða Úkraínu, eða jafnvel beint til Nató og Pentagon. Það fjármagn sem ætti að fara í að byggja upp laskað heilbrigðis-kerfið, byggja upp hrunið vegakerfið, byggja upp niðurbrotið velferðarkerfið, er sent úr landi í þágu Nató-samhjálpar Vesturlanda sem stefnir í það að verða mesta blóðsuga í samanlagðri Íslands-sögunni !
Nú eru Íslendingar víst orðnir beinir stuðningsaðilar hergagnaiðnaðar Pentagon og Brussel og ótaldir hálfíslenskir leigupennar hamast við það, húsbændahollir með afbrigðum, að réttlæta þá blóðugu staðreynd á öfugum nótum. Og ráðherrar í ríkisstjórn ganga þar á undan með illu fordæmi. Hvað skyldi friðsama örþjóðin á hjara veraldar geta sokkið djúpt ?
Við Íslendingar erum arðrænd þjóð, en við erum arðrændir af svokölluðum vinaþjóðum okkar og eigin auðvaldi. Erfiði vinnandi fólks fer alltaf illa á Íslandi vegna sérgæskuaflanna. Við vörum okkur ekki á höggormunum sem eru í þjóðargarðinum og þeim fjölgar með hverju árinu. Þeir ræna þjóðina jafnt fyrir eigin hag og fyrir erlenda húsbændur sína. Þeir eiga engar ærlegar taugar til og þaðan af síður þjóðhollustu !
Við Íslendingar erum ekki lengur á leiðinni upp, við erum á leiðinni niður, eins og allir sem búa við arðrán og svikræði eigin ráðamanna og annarra blóðhunda. Unga fólkið okkar stendur frammi fyrir því að erfa ekkert annað en þrælahaldskjör. Það er kannski það sárasta af öllu. Skyldu annars nokkrir geta farið héðan til Teneriffe eftir tíu ár ?
19.9.2024 | 09:23
Hugleiðing um andlegan aumingjadóm !
Ýmsir velta því fyrir sér hvernig menn verða að andlegum aumingjum ? Það er dálítið erfitt að meta slík dæmi því andlegir aumingjar geta átt sér svo ólíkan bakgrunn og komið fram svo víða. Það er kannski um að ræða norskan þunga-vigtarkrata, franskan forseta, breskan lubbaling, ítalskan auðkýfing eða þjóð-lausa prímadonnu !
Aumingjadómur af andlegu tagi má líklega teljast alþjóðlegur, fjölmenningarlegur en alltaf er hann einstaklega sérhags-munalegur. Sumir virðast komast upp á lag með að selja sálarfrumur sínar og manngildissellur nánast í stykkjatali og halda því áfram, uns ekkert er eftir nema innihaldslaus ytri skel algerrar og þjóðlausrar vesalmennsku. Andlegur vesaldómur skilur sig þannig endanlega að lokum frá allri virðingarverðri mennsku !
Og samt getur verið um að ræða æðstu menn í sumum þjóðríkjum, en þó um leið andlega aumingja og manndómslaus kvikindi. Maðurinn er í öllu sínu menntaveldi sannarlega ólýsanlega brjóstumkennanlegur í allan máta. Mörg svokölluð frægðarmenni menningar-geirans virðast meira og minna ánetjuð alkóhólisma og fíkniefnum og ráða mörg hver ekkert við sitt brotakennda sálarlíf. Og þannig kynna sig flestar fyrirmyndir í auglýsingaómennsku fjölmiðlanna og fölskum veruleika nútímamenningar, svo geðsleg sem hún er eða hitt þó heldur !
Geðveikislegar útfærslur á hugarfars-legum ágöllum og sálarlegum meinvörpum eru meginefni þúsunda bóka sem alltaf virðast seljast. Þar virðist fólk nærast á nánast öllu sem er óeðlilegt og var reyndar talið það fyrir skemmstu. Og samt á allt að vera á skínandi framfaraleið ? Ranghverfa málanna er í flestu látin snúa upp og rétttrúnaður samtímans er ill og óhrein getnaðargrein rómverskrar siðvillu !
Hvar er úrkynjunin mest í heiminum ? Berast ekki böndin að Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku ? Og af hverju skyldi það vera ? Líklega vegna þess að heilbrigð trúarvitund og siðferðileg undirstaða er þar einna mest á fallandi fæti. Fólk telur sig orðið svo menntað og er orðið svo sjálfhverft að í egói sínu varpar það Guði burt úr lífi sínu. Það er hinsvegar innganga í mesta aumingjadóm mann-legrar tilveru að hafna tilvist Skaparans !
Skólainnspýtingin sem á að leysa allt gerir það bara ekki, langt því frá. Og svokallað veraldlegt hámenntafólk fyllist vonleysi og andlegri vesöld og þá er flaskan oftast úrræðið og býður upp á gleymsku frá veruleikanum og hugarfarslega flóttaleið. En eftirköst slíks verða alltaf slæm og drukknir valdamenn geta skiljanlega orðið meðal hættulegustu manna þessa heims !
Andlegur aumingjaskapur er langoftast heimatilbúinn vandi, af eigin völdum eða annarra. Menn halda sig oftast vera gildari að manndómi en þeir eru. Þeir ráðast í verkefni sem verða þeim ofviða, jafnt í pólitík sem öðru. Þá fara þeir að leysast upp í frumparta sína, tapa öllum áreiðanleika, tala og hegða sér eins og í þeim búi margir persónuleikar, leita í rugl og kukl og hvaðeina sem villir og tryllir. Og að lokum hafa þeir komið lífi sínu í svo mikla sjálfheldu, að enginn getur lengur borið nokkurt traust til þeirra. Þeir hafa núllað sjálfa sig. Sviðsmyndin er þá fallin !
Kjósum enga andlega aumingja yfir okkur, hugum að manngildi frambjóðenda við kosningar en ekki flokksgildi, auðgildi eða gráðugildi. Vinnum í því saman að koma okkur upp manndómslegu forustuliði fyrir íslenska þjóð. Það hefur allt of lengi vantað hérlendis. Losum okkur við alla andlega aumingja úr valdakerfinu, alla þá sem þjóna öðrum öflum en þeim sem stefna að þjóðlegri hagsæld og velferð. Gerum hreint fyrir okkar dyrum !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook
16.9.2024 | 00:01
Hin stórkostlega upplifun hinna kúguðu - gildishrap hvíta mannsins !
Heimsstyrjöldin síðari var mikill harm-leikur og margar þjóðir fengu þar falleinkunn í mennsku og siðferðilegum veruleika. Þýska þjóðin mun aldrei verða söm eftir að hafa kosið yfir sig nazismann og alla þá óheyrilegu mannvonsku sem honum fylgdi. Meðferðin á Gyðingum er einn allra ljótasti blettur mannkyns-sögunnar og verður aldrei burtu þveginn sama hvað menn gera !
En meðferð hvítra manna á nýlenduþjóðunum í Asíu og Afríku var líka fyrir neðan allar hellur. Þar var í raun ein útgáfa nazisma til staðar, hvítir töldu sig algera yfirþjóð og auðmýktu og niðurlægðu hina innfæddu takmarkalaust. Ef Japanar hefðu haft vit á því að koma fram með mannlegum hætti gagnvart íbúum þeirra landa sem þeir hertóku, hefði stuðningur við þá orðið margfalt meiri !
Þá hefðu þeir sýnt að þeir voru miklu skárri kostur fyrir hina innfæddu en hvítu nýlenduherrarnir. En óheyrilegur hroki þeirra og grimmd fengu flestar asískar þjóðir til að rísa upp gegn þeim og það varð þeim dýrkeypt áður en yfir lauk !
En eftir styrjöldina ætluðu nýlendu-þjóðirnar bara að setjast að kjötkötlunum á nýjan leik eins og ekkert hefði átt sér stað. En það var ekki hægt. Virðingin fyrir þeim var horfin. Hinir innfæddu höfðu horft upp á ,,hvítu guðina niðurlægða af Japönum, þeir höfðu séð þá hrakta og bjargarlausa, jafn auma og aðra við slíkar aðstæður !
Þeir voru engir guðir lengur, þeir voru bara menn eins og aðrir og að engu leyti betri. Þegar þeim var ekki þjónað til allra hluta, gátu þeir ekki bjargað sér, án annarra hjálpar. Það voru engin haldbær rök lengur til fyrir valdstjórn þeirra !
Og sjálfstæðishreyfingar innfæddra fengu þar með þrumandi start. Hollendingar misstu Indónesíu og fóru þó í stríð til að reyna að halda henni, Frakkar misstu sínar nýlendur í Asíu og töpuðu Víetnam endanlega eftir ósigurinn við Dien Bien Phu. Og ekki farnaðist þeim betur í Afríku. Bretar misstu Indland þar sem arðránsgróði þeirra hafði farið upp úr öllu valdi og í raun auðgað þá meira en nokkuð annað !
Belgar og Portúgalir urðu fljótlega að hundskast burt frá sínum nýlendum þó hinir síðarnefndu væru aldrei beinir aðilar að styrjöldinni. Staðan hafði gjörbreytst á svipstundu og veldi hvíta mannsins í heiminum hafði stórlega gengið til baka !
Og ástæðan var sú að hvítir menn höfðu farið miklar hrakfarir í styrjöld við asíska þjóð. Japanar höfðu leikið þá verulega grátt í augsýn þeirra þjóða sem þeir höfðu lengi kúgað og undirokað !
Bandaríkjamönnum hugnaðist ekki hvernig hlutirnir gengu eftir styrjöldina og hugðust skakka leikinn í Víetnam og sýna Frökkum hvernig ætti að taka á innfæddum. Þeir framlengdu þjáningar víetnömsku þjóðarinnar um 20 ár, en urðu að skammast þaðan burt eins og sneyptir hundar að lokum eftir ótrúlegan glæpaferil !
Það er í sannleika einn versti blettur bandarískrar sögu. Þeir vörðu nýlendu-kúgunina þó þeir hefðu sjálfir eitt sinn verið nýlenda og orðið að berjast fyrir sínu frelsi og sjálfstæði. En það var allt löngu gleymt og grafið og dollaravaldið hyllt að jöfnu í auðvaldshöllunum í Washington og London !
Þar samsömuðu Bandaríkjamenn sig því sem þeir hefðu átt að standa á móti og sýndu með því móti hversu langt þeir voru komnir í spillingunni og djúpt sokknir. Margir frelsisleiðtogar hinna kúguðu þjóða voru að vísu kommúnistar og hákarlarnir í Wall Street hræddust auðvitað ekkert meira en heimskommúnismann og Sovétríkin !
En hinsvegar voru flestir forustumennirnir gegn hinni gömlu nýlenduskipan öllu heldur þjóðlegir byltingarmenn en kommúnistar, en bandaríska auðvaldið hafði sinn hátt á því að stimpla þá alla undir einu brennimarki. En það voru mikil mistök því þannig voru margir leiðtogar hraktir yfir í rauðar herbúðir, menn sem þar áttu í rauninni ekki heima !
Hvíti kynflokkurinn kom að langmestu leyti báðum heimsstyrjöldunum af stað í hroka sínum og innbyrðis valdabaráttu og græðgi. Aðrir kynflokkar urðu þar fyrst og fremst þolendur og píslarvottar. En hvítir menn felldu þar sjálfa sig af stöllum !
Þeir glötuðu þeirri stöðu sem þeir höfðu, vegna þess að eftiröpunarmenn þeirra, stríðsmenn hins himneska Japanskeisara, lítillækkuðu þá og sýndu þá í afgerandi hlutverki varnarleysis og vesalmennsku. Þar uppskáru þeir eins og þeir höfðu sáð !
Önnur afleiðing nýlenduvaldsins er það, að móðurlönd eins og Bretland, Frakkland og Holland hafa fyllst af fólki frá fyrri nýlendum, sem í krafti samveldisréttar hafa nýtt sér fulla borgararéttar stöðu þar !
Sú saga hvernig þau mál fara er ekki enn útséð, en samt er ljóst að viðkomandi lönd munu seint eða aldrei verða þau sömu og þau voru fyrir seinni heims-styrjöldina. Hin borgaralega innrás frá Asíu og Afríku mun algerlega sjá til þess !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.9.2024 kl. 15:29 | Slóð | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 92
- Sl. sólarhring: 139
- Sl. viku: 661
- Frá upphafi: 365559
Annað
- Innlit í dag: 88
- Innlit sl. viku: 573
- Gestir í dag: 88
- IP-tölur í dag: 86
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)