Leita í fréttum mbl.is

Offjárfestingar og ađrar ljótar lenskur !

 

Íslendingar hafa oft fengiđ orđ fyrir ađ vera gullgrafarar, eđa sú tegund slíkra sem oftast er einhverskonar helmingablanda skýjaglóps og grasasna. Ef ţeir halda ađ einhvern gróđa sé ađ hafa út úr einhverju rjúka allt of margir á sömu miđ og hver spillir fyrir öđrum. Viđ vitum hvernig menn spiluđu sig út og suđur í síldveiđimálunum hér áđur fyrr og viđ vitum hvernig hefur gengiđ í refa og minkarćkt og fiskeldi !

 

Hruniđ varđ ađ mestu leyti afleiđing offjárfestinga, ţar sem frjálshyggjusinnađir gróđapungar óđu í lánsfé og ćtluđu ađ verđa ofbođslega ríkir. Spilaborgirnar risu hver af annarri og ótrúlegustu menn létu hafa sig ađ fíflum, en svo kom ađ skuldadögunum og allt hrundi !

 

Síđasta offjárfestingar-dćmiđ og ekki ţađ minnsta er ferđamennskan. Hún byggist á ţeirri innbyggđu óskhyggju ađ ferđamenn komi hingađ í stórum stíl til frambúđar. Hótel og gistihús ţjóta upp út um allar koppagrundir og allir ćtla ađ grćđa. Bankar og lánastofnanir dragast međ í ćvintýriđ og veita ađ ţví er virđist ótakmarkađa fyrirgreiđslu í greinina. Allt á ađ koma margfalt til baka og ábyrgđin er líklega einhversstađar í skýjunum !

 

En hvađ gerist ef ferđamenn taka nú skyndilega upp á ţví ađ hćtta ađ mestu ađ koma til Íslands ? Hér sé allt orđiđ svo dýrt og betra ađ fara eitthvađ annađ !

 

Ţetta gerđi síldin hér um áriđ. Hún tók upp á ţví ađ fara annađ og ruglađi allar áćtlanir og ófáar fjárfestingarnar urđu ađ engu. Verksmiđjur sem reistar voru og áttu ađ mala gull eru enn ađ grotna niđur víđa um land, vegna ţess ađ menn yfirspiluđu allt í gróđafíkn sinni og lífskjör í landinu versnuđu auđvitađ fyrir vikiđ !

 

Ţjóđin borgađi náttúrulega brúsann ţví skuldakóngarnir eru alltaf látnir sleppa !

 

Hvađ ef gullgćsin í ferđamannageiranum flýgur annađ ? Hverjir borga brúsann af öllu sem ţá verđur í bullandi skuld ? Ekki hiđ glađbeitta gróđaliđ, ţađ get ég sagt ykkur. Ţjóđin verđur látin standa ábyrg fyrir ábyrgđarleysinu. Ţađ eitt er víst !

 

Íslenskir ráđamenn tala oft í hátíđarvímu um land mikilla náttúruauđćfa, orkuríkt land međ hafmiđ ríkrar auđlegđar, land sem flýtur í mjólk og hunangi - svo forn samlíking sé notuđ. En ţađ er eins og ţađ sé föst opinber stefna stjórnvalda ađ fólkiđ í landinu – yfir heildina, skuli aldrei fá ađ njóta ţessara gćđa lands og sjávar. Öll gćđi skulu fá greiđa leiđ í einkavasana !

 

Ríkiđ á samkvćmt hugsun blámanna hćgri-ómennskunnar einungis ađ hafa á hendi óarđbćran rekstur. Allt sem getur skilađ hagnađi á ađ vera í höndum einkaađila. Ríkiđ á samkvćmt ţví ađ hafa á hendi alla kostnađarliđi í ferđaţjónustu en einkaađilar eiga ađ hafa alfrjálsan ađgang ađ gróđanum. Ţjóđin öll á ađ borga kostnađar-liđina en einkaađilarnir eiga ađ fá ađ grćđa hömlulaust - eiga ađ fá ađ okra og svína á ţeim sem hingađ koma – ţangađ til ţeir hrekja ţá endanlega burt !

 

Afleiđingar grćđginnar munu verđa ţćr sömu hér og ţćr hafa orđiđ alls stađar ţar sem ţannig hefur veriđ stađiđ ađ málum. Gullgćsin hćttir ađ verpa, hún getur kannski verpt 20 eggjum á ákveđnum tíma en ţađ er ćtlast til ađ hún verpi 50. Blóđmjólkuđ kýr skilar ekki gćđum til langframa. Ágirndin er rót alls ills !

 

Og náttúruperlur landsins sem hafa veriđ trođnar niđur í skít undanfarin ár verđa lengi ađ jafna sig eftir áganginn og enginn mun taka ábyrgđ á ţví né grćđa sárin. Ţjóđin mun sitja uppi međ ósómann - og kostnađinn !

 

Lífskjör á Íslandi eru ekki síst - af ţessum ágirndar-ástćđum aurasjúks fólks - langt á eftir miđađ viđ hin Norđurlöndin og félagsleg ađhlynning ađ öllum sem ţurfa skilnings viđ, er á brauđfótum. Ţađ má nánast sjá á öllum málaflokkum. Hér ríkir rangur hugsunarháttur, siđblindur hugsunarháttur frjálshyggju og glćpsamlegrar gróđahyggju !

 

Ef haldiđ verđur áfram á slíkri braut verđa afleiđingarnar hrikalegar fyrir ţjóđina. Hćgristjórn íhaldsins sem nú situr ađ völdum međ leppum sínum er stjórn sem er ekki međ neina hugsun viđ almenna velferđ. Ţar er bara einblínt á fyrrnefnda blámannahugsun – ofţenslu einkagróđans. Haldiđ er áfram ađ byggja upp  auđstétt í krafti grćđgisvćđingar og valds hinna fáu !

 

Ísland verđur í gegnum slíka grćđgis og gróđasýn sérgćskunnar ađ Blámannsey, – eins og segir í hinni heimsfrćgu sögu Agöthu Christie. Allir tortímast ađ lokum fyrir eigin ágirnd vegna algjörs skorts á heilbrigđri lífssýn. Engin sönn lífsgildi fá ţá variđ neitt. Glćpir og mistök fortíđar kalla á sitt endanlega uppgjör. Ţađ kemur alltaf ađ skuldadögunum !

 

Ţegar bara er fjárfest í grćđgi er ekki viđ góđu ađ búast ţví grćđgin er ćttuđ beint úr helvíti. Ţangađ fara ţeir áreiđanlega líka ađ lokum sem hafa aliđ sig á grćđgi í gegnum lífiđ, sjálfum sér og öđrum til bölvunar. Slíkra bíđur engin blessun !

 

Hvenćr á almenningur á Íslandi ađ fá ađ búa viđ lífskjör sem taka miđ af auđlindum lands og sjávar ? Af hverju er sérgćskan látin valta hér yfir allt sem heilbrigt er ?

 

Ćtlum viđ sem ţjóđ alla tíđ ađ láta fámenna auđstétt ráđskast hér međ allt líf okkar og barna okkar út yfir gröf og dauđa, eins og ţađ sé eini valkostur lífsins ?

 

 

 

 

 

 


Bloggfćrslur 14. apríl 2018

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 108
  • Sl. viku: 1183
  • Frá upphafi: 316782

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 887
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband