23.2.2012 | 21:36
Um meðferð yfirvalda á lýðræðinu !
Í eina tíð var eftirfarandi vísa ort á Íslandi og gott ef hún passaði ekki ágætlega við húnvetnskar aðstæður á þeim tíma :
Lýðræðið er sem ljós í vindi,
lítið er þar um skjól og vörn.
En þó eru mikil mannréttindi
ef maður þarf ekki að kjósa Björn !
Þessi einfalda vísa getur sagt okkur ýmislegt ef við skoðum hana nánar. Í fyrsta lagi er lýðræðið ekki mikils virði ef það hrekst til og frá fyrir hverjum kenningarvindi. Það þarf skiljanlega að vera til staðar sem stöðugt og traust stjórnarfyrirkomulag og veita skjól og vörn fyrir samfélagið.
Og lýðræðið þarf náttúrulega að geta boðið upp á raunhæfa valkosti þegar kosið er. Menn þurfa að vera í þeirri stöðu að geta kosið aðra en Björn - ef þeim sýnist svo. Lýðræðið snýst nefnilega um það að hafa val. Stundum festist ákveðin fulltrúaskipan svo í sessi til langs tíma, að valið verður í hæsta máta umdeilanlegt, og það ættum við til dæmis að þekkja hér á Skagaströnd.
Eitt sinn var ort til forna:
Áttak næsta völ
nýtra drengja.
Nú er úlfshali
einn á króki.
Og þegar úlfshalar eru einir á króki, þá er fátt um fína drætti í lýðræðismálum, hvort sem við ræðum um Skagaströnd eða önnur samfélagsumdæmi.
Þeir sem kosnir eru fulltrúakosningu sem umboðsmenn lýðræðis þurfa að vera færir um að starfa í lýðræðisanda. En það er því miður mikið um það, að fjöldinn allur af mönnum virðist alltaf sækjast eftir að fá umboðið en ekki til að starfa í þeim anda sem því á að fylgja. Aðrar hvatir liggja oft að baki eftirsókninni og sumar þeirra eru vægast sagt langt frá allri lýðræðishugsun. Æði oft snýst málið sýnilega - fyrst og fremst um það - hvað viðkomandi geti fengið í sinn hlut og hvernig hann geti grætt sem mest á valda-aðstöðunni.
Með það í huga getum við farið að ræða um margvíslegt misrétti sem skapast af mannavöldum og leiðir oft til mikillar rangtúlkunar á eðli lýðræðisins. Sumum ráðamönnum er nefnilega býsna gjarnt að grípa til slíkrar rangtúlkunar þegar þeir neyðast til að verja vafasamar gerðir sínar opinberlega.
Eitt af því sem oft er gripið til í slíkum tilfellum, er að kalla til sérfræðinga til að mata almenning. Þá er sagt að verið sé að kynna faglegar staðreyndir og upplýsa fólk um stöðu mála. Og það er eins og ekkert liggi að baki nema löngunin til að bera sannleikanum vitni.
Oftast kemur þó í ljós þegar grannt er að gáð, að hinir tilkvöddu upplýsingagjafar eru beinharðir hagsmuna-aðilar sem eru eingöngu að tala fyrir þeim framgangi viðkomandi máls sem þeir vilja að eigi sér stað. Að baki liggja þá leyndar auðgunarvonir og útþensluáform einstaklinga eða fyrirtækja. Hagsmunir almennings eru þar yfirleitt víðs fjarri, en mjög oft notaðir sem yfirvarp.
Sveitarstjórnarlög og önnur varnartæki heildarhagsmuna eru iðulega sniðgengin þegar sérhagsmunirnir kalla með áleitnum einkaþörfum.
Þekkjum við ekki öll ýmis dæmi um vinnubrögð af þessu tagi ?
Og svo verð ég auðvitað að nefna það, að í nafni lýðræðislegra stjórnarhátta hefur verið byggt upp afar stórt og þurftarmikið afætukerfi í þessu landi. Með ýmisskonar pólitískum sjónhverfingum hafa verið hengdir utan í lýðræðið allskonar kostnaðarliðir sem í raun eru hreint ekki til komnir fólksins vegna, heldur til að hygla ýmsum einstaklingum og aðilum sem stjórnvöld hverju sinni vilja hlaða undir.
Allt er slíkt samt gert í nafni lýðræðisins og sagt til þess gert að styrkja það, en í raun veikir það undirstöður þess og þjónar síst af öllu almannaheill.
Sem dæmi um slík vinnubrögð má nefna tilhneigingu alþingis til að skipa sérstaka umboðsmenn fyrir þetta og hitt. Eins tilhneigingu annarra yfirvalda með útnefningu svonefndra sviðsstjóra í tugatali, ýmissa eftirlitsaðila og allra handa sporslurakka í hin og þessi verkefni. Margar af þessum starfslegu uppstillingum eru hreint út sagt gervistörf í þjóðfélaginu og viðbótarfylling í afætukostnað þess.
Þetta háttalag gefur valdamönnum færi til þess að setja ýmsa gæðinga sína í vel launuð embætti og verðlauna þá þannig fyrir fylgispekt við flokk og elítu. Með slíku ráðslagi hefur meira að segja sjálfri menningargyðjunni verið umsnúið svo, að hún er mikið til hætt að sinna sínu höfuðhlutverki, að sjá til þess að menningin spretti fram í mannlífinu fyrir eigin krafti. Í dag er menningargyðjan nefnilega orðin að framfærslufulltrúa í kerfinu og gerir ekki meira en að framfleyta öllum þeim sem hanga utan á henni og hafa sogið sig þar fasta. Þar á býsna margt orðið lítið skylt við menningu nú til dags.
Við hljótum líka að vita að það hafa hreint ekki svo fáir handhafar framkvæmdavaldsins verið harðir hyglingarmála-ráðherrar og snarað ótæpilega út bitlingum til sinna alikálfa. Svo er reynt að telja almenningi trú um að slíkt og þvílíkt sé gert til að tryggja hagsmuni hans, en svo er auðvitað ekki og fjarri öllum sanni.
Þessir umboðsmenn eða talsmenn sem settir hafa verið á laggirnar á síðustu árum, eru skiljanlega vita gagnslausir og bara til þess að sýnast. Þeim er veifað framan í almenning í fjölmiðlunum eins og skrautfjöðrum lýðræðislegra stjórnarhátta, en í raun og veru eru þeir bara sérvaldir kerfispúkar, sem fá velþóknunarleyfi valdsmanna til að fitna á fjósbitum stjórnkerfisins, og kostnað við uppihald þeirra og nægtastöðu er almenningur látinn greiða.
Í þessum efnum er um hreinan blekkingarleik að ræða og lýðræðið gert að leiksoppi loddara. Það sitja býsna margir Heródesar og Pílatusar á skrifstofum ríkiskerfisins á Íslandi í dag og skipa fólki fram og aftur um rammflóknar eyðublaðaslóðir Stóra-Bróður og oft er viðmótið hjá þessum hreiðurfuglum kerfisins talsvert annað en það ætti að vera. Fúsleiki slíkra manna til að þjóna lýðræðinu og gildum þess er því áreiðanlega í besta falli umdeilanlegur.
Rangtúlkun og misnotkun á lýðræði hefur oft leitt af sér hörmungar, sem eru ígildi náttúruhamfara, á sviði hins mannlega samfélags. Þá eru stundum unnin verk sem eru - bókstaflega talað - efnahagsleg hryðjuverk gagnvart velferð almennings og slík verk eru gjarnan unnin af ósakhæfum stjórnmálamönnum og þeim sem vaða í vellystingum í skjóli þeirra.
Það hefur líka komið skýrt í ljós að undanförnu að mjög erfitt er, og virðist reyndar nánast ógerlegt við núverandi aðstæður, að sækja mál gegn stjórnmálamönnum hérlendis sem - til dæmis - eru taldir hafa sofið á þeirri öryggisvakt sem þeir áttu að standa fyrir þjóðarheill. Þar hefur samtrygging ráðamanna komið fram í svo ógeðfelldri mynd að hún er beinlínis hrollvekjandi þegar hugsað er til lýðræðisins og velferðar almennings hér í þessu landi.
Einn hópur í þjóðfélaginu talar mikið um " virðingu alþingis " og það eru þeir sem þar sitja. Aðrir sjá ekki ástæðu til að tala mikið um það sem þeim finnst hvergi sýnilegt. Það má samt vel vera að virðing alþingis sé einhversstaðar til, í einhverju formi, en hún er áreiðanlega ekki mikið í umferð innanlands og kemur þar af leiðandi lítið við sögu í hugsanalífi landsmanna.
Þingmenn virðast því flestir hafa áttað sig á því að ef virðing alþingis á að vera hugtak og gildandi í einhverri umræðu, þá verði það bara að vera þeirra á milli. Svo óskemmtilega hefur löggjafar-samkunda þjóðarinnar fallið í áliti þjóðarinnar og sett niður á síðustu árum, að virðing hennar er orðið óþekkt hugtak utan þingsalarins.
Innanríkisráðherra sagði í útvarpi um daginn, varðandi endurupptöku þingsins á landsdómsmálinu, líklega til að skýra undarlega afstöðu sína í því máli : " Ég ákvað að ganga í lið með samvisku minni !"
Hvernig ber að túlka þessi orð hans ?
Var hann ekki í liði með samvisku sinni áður ? Er hann stundum í öðru liði en hún vill að hann sé ? Hvaða leiðarmerkjum fylgir maðurinn eiginlega ?
Svona orðskrípisháttur er mjög algengur í þeim frösum sem frá stjórnmálamönnum okkar koma og sýna hvað þeim verður stundum hált á því að verja tækifæris-sinnuð viðhorf sín.
Þar vaða þeir svo elginn að þeir fara stundum heilu hringina í afstöðu til mála í sömu ræðunni og virðast samt ekki sjá neitt athugavert við það sem þeir eru að segja. Og lengst af eru þeir í feluleik við lýðræðið.
En á hátíðastundum, í upphafinni veldisvímu, tala kannski þessir sömu menn um þörfina á opnu lýðræði, virðingu fyrir andstæðum sjónarmiðum og að allt þurfi að vera gagnsætt og hreint !!!
Svona eru nú þessir svokölluðu ráðamenn okkar og það í flestum tilfellum - ábyrgðarlausir bullukollar................!
Við munum það væntanlega mörg að núverandi forseti Íslands bauð sig fram á sínum tíma til að vera öryggisventill milli þings og þjóðar. Hann talaði oft um það á þeim tíma, að þjóðin þyrfti að vita sem gleggst um mál og málatilbúnað og ráðamenn þyrftu að tala skýrt og hreinskilningslega til almennings um nauðsynjar lands og þjóðar hverju sinni.
Í nýársræðu sinni til þjóðarinnar nú um áramótin, talaði hann þó ekki skýrar til þjóðarinnar en það varðandi það hvort hann ætlaði að gefa kost á sér áfram, að enginn maður vissi á eftir hvað honum bjó í huga. Hann var nefnilega bara eins og hann hefur alltaf verið - hinn óræði og slungni pólitíkus !
En þetta er að sjálfsögðu ekki hreint framferði af hans hálfu - hvorki gagnvart þjóðinni né gagnvart þeim sem hugsanlega hafa verið með það í huga að gefa kost á sér í kosningum til embættis forseta Íslands á þessu ári.
Fyrri forsetar hafa mér vitanlega talið sér skylt að segja þjóðinni hreint út í nýársávarpi aðkomandi kosningaárs, hvort þeir hygðu á frekara framboð til embættisins eða ekki. Það er því í meira lagi skrítið að maður sem haft hefur mörg orð um það að ráðamenn eigi að vera skýrir og afdráttarlausir í orðum sínum þegar þeir ávarpi þjóðina, skuli hafa talað með þeim dularfulla hætti sem forseti gerði um síðustu áramót.
Af hverju skyldi hann hafa valið að tala svona óskýrt um mál sem hefði þurft að setja fram með skýrum og skilmerkilegum hætti ?
Við skulum nefnilega gera okkur fulla grein fyrir því að það hefur verið gert vitandi vits og ákveðinn tilgangur legið á bak við þann gjörning.
Og það þarf svo sem ekki að vera erfitt að átta sig á því hvað valdið hafi þessum ólíkindalátum forsetans. Með þessu er hann sennilega að reyna hið ómögulega - að vera sjálfum sér samkvæmur.
Forseti hefur nefnilega látið orð falla um það í liðnum tíma, að sextán ár í embætti forseta væri langur tími, og margir hafa því álitið að hann myndi láta þar við sitja, en nú er staðan einfaldlega sú að aumingja manninn langar til að vera lengur á Bessastöðum !
Og þá er leiðin þessi, að fá gamla vini og áhangendur til að safna undirskriftum til að skora á hann að gefa kost á sér áfram. Og Mikki mús og margir fleiri eru - eins og fram hefur komið - tilbúnir að styðja hann !
Það þarf svo sem ekki að kenna Ólafi Ragnari Grímssyni neitt í svona málum. Hann þekkir þetta allt saman og veit alltaf hvað hann á að gera til að tolla á sviðinu meðan leikritið er í gangi. Í framhaldinu getur hann svo sagt hálfpartinn afsakandi : " Ja, ég ætlaði nú að hætta, en vegna hins mikla fjölda áskorana sem komið hafa fram, get ég ekki annað en orðið við beiðni svo stórs hluta þjóðarinnar og gefið kost á mér áfram !"
Það verður ekki af Ólafi Ragnari skafið að hann er fléttumeistari mikill í stjórnmálataflinu, en hann er það fyrst og fremst fyrir sjálfan sig en ekki íslensku þjóðina. Og eins og ráða má af nýárs-ávarpi hans, þá virðist lýðræðishugsun greinilega ekki aðalatriðið í þankagangi hans, frekar en margra annarra ráðamanna okkar, heldur öllu frekar ferilskráin - og það sem kalla má - óhófleg metnaðarlöngun til valda og áhrifa.
Það verður líklega dauflegt fyrir Ólaf Ragnar að lifa þegar Bessastaða-tími hans er að baki, því það hlýtur nú að koma að því að hann hætti þó hann hætti ekki núna. En lýðræði verður vonandi til á þessari jörð og í þessu landi eftir hans dag, þó hann hafi ekki lagt því sérlega mikið lið - að mínu mati - meðan hann hafði sín góðu tækifæri til þess.
Það sama má reyndar segja um stjórnmálamenn þessa lands, sem virðast tækifærissinnar upp til hópa og seint verður sagt að hugsjónirnar flækist fyrir þeim. Fæstir þeirra virðast ná því að rísa yfir meðalmennskuna og það er vissulega sárt til þess að vita. Ísland á sannarlega skilið betra forustulið en það sem nú situr á þingi og virðist einkum gera sér far um að lifa fyrir ofan þjóðina, án þess að láta sig nokkru skipta örlög mannkjarnans í landinu.
En fyrir hetjulega barátta liðinna kynslóða erum við Íslendingar hér enn og við þurfum að standa okkur í vörn þjóðlegrar samstöðu, svo verk kynslóðar foreldra okkar og kynslóðar foreldra þeirra, verði ekki rifin niður að fullu og sett í eld sérhagsmunahítar þeirrar yfirstéttar sem sköpuð hefur verið og hlaðið linnulaust undir í landinu síðastliðinn aldarfjórðung eða svo.
Þegar frjálshyggjan var kynnt hér á landi um 1980, sannaðist fljótt að þegar sérgæskan fer upp fer manngæskan niður. Frjálshyggja er útfarin hægri stefna sem þjónar eigingirni og sérhagsmunum út í æsar.
Heitið er auðvitað sérvalið í blekkingarskyni, en boðar í raun frelsi fárra til að kúga marga, frelsi hinna auðugu til að fara sínu fram og standa ofar lögunum. Frjálshyggja er því andheiti lýðræðis og ógnun við það. Efnahagskollsteypan var skilgetið afkvæmi frjálshyggju-stjórnarfarsins sem réði hér svo lengi fyrir 2008 og leiddi af sér þá miklu ógæfu fyrir land og þjóð sem hrunið var og er.
Mannkynssagan sýnir okkur að þegar miklir ólgu og erfiðleikatímar fara um þjóðfélög, er tiltölulega algengt að upp rísa mikilmenni meðal þjóða, menn með sýn fyrir nýja framtíð, menn sem taka að sér að leiða þjóðir sínar í gegnum fár og hörmungar yfirstandandi tíma og verða viðurkenndir leiðtogar lands og lýðs. Slíkan mann áttum við í Jóni Sigurðssyni en síðan hefur enginn risið með slíku atgervi til vegs og virðingar í þessu landi.
Hvernig skyldi standa á því ? Ekki ætti menntunina að vanta, þegar það liggur fyrir að ungt fólk, svo þúsundum skiptir, er útskrifað sem langskólagengnir sérfræðingar á svo til öllum sviðum samfélagsins, með meistaragráður í þessu og hinu. Svo það er von að maður spyrji, hvar er atgervið, hæfnin og sigurviljinn til þjóðlegrar umsköpunar og lýðræðislegra framfara ?
Ég held að það vanti dálítið mikið í þetta gerilsneydda gráðusafn sem er haft fyrir menntakerfi hérlendis. Mér sýnist við aðallega vera í því að skófla fólki í gegnum það - án þess að hirða um eða athuga hvort hæfileikar séu með í för.
Ég held, því miður, að það vanti alveg sálina í íslenskt menntakerfi ! Við sendum langskólagengið fólk í þúsundatali út í þjóðfélagið, en það virðist fá litla sem enga siðfræðilega undirstöðu í skólunum, enga þjóðlega framtíðarsýn. Því virðist bara innprentað að það sé komið með lærdómsgráður og eigi því að geta spjarað sig í lífinu - öðrum betur - prívat og persónulega. Það sé það eina sem skipti máli.
En slíkt hafurtask yfirborðsmennskunnar er ekki nægilegt veganesti fyrir einn eða neinn. Hugarfarsleg hollusta við raunhæf gildi er þar í sálrænu lágmarki. Menntun og reynsla þarf að haldast í hendur og nám sem einskorðast við sjónarmið efnishyggju og sérgæsku án andlegra hugsjóna er kjarnalaus niðurstaða.
Við þurfum að breyta þessu, við þurfum að fella niður hin lágkúrulegu viðmið sem gilt hafa og hefja andann ofar efninu, hefja hann til vegs og virðingar í þjóðlegri hugsjón fyrir góðu, mannlegu samfélagi.
Íslenska þjóðin hefur gengið í gegnum margt - við Íslendingar höfum orðið að þola hafísa og eldgos, hungur og kuldavetur, svartadauða og stóru bólu, kirkju og konungsvald, Móðuharðindi og mikinn landflótta, spánsku veikina og spillt ríkiskerfi, kvótakerfi sérhagsmuna og auðsöfnunar fárra útvaldra, frjálshyggju og efnahagshrun.
Nú þurfum við að standa saman gegn arðráni og sérhyggju, standa saman í nafni lýðræðis og eðlilegra mannréttar sjónarmiða og byrja að byggja upp heilbrigt samfélag, - samfélag sem treystir tilveru sína á öllum þeim góðu gildum sem hafa gert það að verkum að íslensk þjóð er - þrátt fyrir allt - ennþá til !
Flutt í Kántrý-útvarpinu nýlega í þættinum - Á lýðræðisnótum - við mikla andstöðu tæknipúkans, sem gerði mér og útvarpsstjóra lífið leitt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Arfleifð Francos !
- Í kringum kosningasirkus hégómans !
- Innflutningur á ófriði og ofbeldisbreytni !
- Um óraunhæfar væntingar !
- Á skelfilegt skítkast í kosningum að leiða til Gullaldar ?
- Félagshyggjuna upp örvæntinguna og vonleysið niður !
- Er Ísland utanríkispólitískt núll ?
- Um valdaspil að tjaldabaki !
- Að komast yfir Rússland !!!
- Áskorun til kjósenda : Sendum Vg afleggjaratusku íhaldsins ...
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 34
- Sl. sólarhring: 52
- Sl. viku: 840
- Frá upphafi: 356685
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 658
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)