Leita í fréttum mbl.is

,,Ó, Sigmundur Davíđ ! ´´

Nú ţegar vilja ýmsir meina ađ farnir séu ađ birtast brestir í hin hástemmdu kosningaloforđ Framsóknar. Mörgum ţótti til dćmis ills viti ţegar Sigmundur Davíđ fór ađ segja ađ hann hefđi ekki  vitađ fyrr ađ stađa ríkissjóđs vćri svo slćm sem raun bćri vitni og ţetta og hitt ţyrfti ađ athuga betur !

Nú vita allir ađ kosningasigur Framsóknar verđur einkum og sér í lagi skýrđur međ loforđum formannsins um leiđréttingar varđandi skuldamál heimilanna !

Ţessi eftir-kosninga-ummćli Framsóknargođans hafa ţví virkađ á suma eins og einhverskonar forbođi fyrstu undirbyggingar í málflutningi hans fyrir komandi undanhald í loforđamálunum og sumir óttast ađ ţađ verđi ekki stađiđ viđ mikiđ. Ţeir eru til sem telja ađ Framsóknarforinginn sé ţarna strax ađ byrja ađ svíkja og leiđ hans í ţví sé ađ beita fyrir sig gamalkunnugri prettapólitík.

Ţađ virđist ţó ljóst ađ stađa ríkissjóđs sé ekki svo slćm ađ viđhalda ţurfi veiđigjaldi, en ţar kemur ţó líklega fleira til.  Ţegar LÍÚ stjórn tekur viđ völdum rćđur LÍÚ trúlega ferđinni og blágrćna auđvaldiđ í sjálfstćđisframsókninni verđur líkast til ađ hlýđa sínum herrum !

Síđustu fjögur árin hefur formađur Framsóknarflokksins sem kunnugt er veriđ manna iđnastur viđ ţađ, ásamt Bjarna međbróđur sínum, ađ gera sitjandi ríkisstjórn allt til óţurftar og mćđu. Öll bjargráđastefna ríkisstjórnarinnar, sama hvert litiđ var, var ómöguleg ađ mati Sigmundar Davíđs ţví alltaf hafđi hann sýn til annarra og betri úrrćđa.

En ţegar hann hefur, í krafti ţessara allt umlykjandi úrrćđa sinna og glćsilegra loforđa um betri tíđ og blóm í haga, unniđ stóran kosningasigur, fer hann allt í einu ađ tala um vandamál sem komin séu í ljós, vandamál sem höfđu ađ hans mati hreint ekki veriđ til áđur. En ţó hafđi hann í kosningabaráttunni afgreitt allt tal um vandamál međ ţeirri röksemd ađ ţađ vćru ţúsund leiđir til ađ sigrast á ţeim og alls stađar tćkifćri til ađ gera betur !

Er slíkt ekki forkastanlegt lýđskrum ?

Og Sigmundur Davíđ hefur talađ um nýjan kafla í stjórnmálum, ný og betri samskipti og ađ allt sé ađ breytast í ţeim efnum ? Ef ég skođa pólitíska framgöngu hans yfir síđasta kjörtímabil, sé ég ekki ađ hann hafi ţar veriđ sérstakur bođberi einhverrar siđvćđingar í stjórnmálum eđa ađ hann hafi skoriđ sig frá öllum öđrum međ meiri trúverđugleika og sannari hćtti !

Höskuldur Ţórhallsson gćti kannski boriđ ţví vitni af eigin raun, ađ Sigmundur Davíđ sé brautryđjandi nýrra starfshátta í pólitískum leikfléttum, en ég efast um ađ hann geri ţađ og skil ţađ reyndar ósköp vel. Upplifun ţolanda er nefnilega yfirleitt allt önnur en upplifun geranda !

Og ég segi hiklaust - verđi íslenska ţjóđin, enn og aftur og jafnvel meira en nokkru sinni fyrr, ţolandi svikinna loforđa - býđ ég ekki í framtíđ ţeirrar ríkisstjórnar sem nú er sest ađ völdum.

Sigmundur trítlar á toppinn

međ tvírćđan kosningafeng.

Stjórnin er komin á koppinn

en kannski hún fari í spreng !

Ég er hinsvegar ekki ađ óska ţess ađ svo fari - ég hef alltaf vonađ ađ sérhver ríkisstjórn Íslands gćti reynst ţjóđ sinni vel, en ţví miđur eru mörg dćmi um ađ svo hefur ekki fariđ. Og mér ţykir Sigmundur Davíđ ekki trúverđugur sem bođberi ţeirra stefnumiđa sem hafa nú fleytt honum upp í forsćtisráđherrastólinn !

Hvernig mun ţessi sjálfskipađi kraftaverkamađur fara ađ ţví ađ framkvćma kraftaverkin, hvernig gerist ţessi silfurskeiđardrengur bjargvćttur fólksins  í landinu, hvernig ćtlar hann ađ fćra rangfengiđ fjármagn, sem bankar og yfirvöld hafa rćnt af fólkinu međ ólögum og andstyggđ, til fólksins aftur ? Er hann, sem virđist í öllu vera skilgetiđ afkvćmi auđvaldsins í landinu, líklegur í raun til ađ standa fyrir slíkum réttlćtisverkum og ţađ međ sjálfstćđisflokkinn ađ bakhjarli ?

Trúi ţví hver sem vill en ekki mun ég trúa ţví ađ slíkt gerist fyrr en ţađ liggur fyrir sem stađreynd ! Mér er öllu nćr ađ halda ađ eitthvađ í stíl viđ eftirfarandi erindi verđi ađ veruleika:

Ó, Sigmundur Davíđ ţú sigur ţinn vannst

međ sérstöku loforđaflćđi.

En ţađ varir bara á međan ţú manst

og minniđ á viđkvćma ţrćđi !

 

Og kannski ţú tapir af ţráđunum ţeim

og ţađ falli sitthvađ í gleymsku.

En orkir ţú ţannig á íslenskan heim

ţú endar - sem dćmi um heimsku !

Ţađ er margt hćgt ađ íhuga í sambandi viđ hina nýju ríkisstjórn og hvernig hún er skipuđ og kannski ekki síđur hvernig hún er ekki skipuđ.

Kringum brellur mála mauks

mćlist eitt á hreinu,

ađ aldrei var ţar Vigga Hauks

valkostur í neinu !

En ýmsir ađrir kostir virđast hafa veriđ kannađir og viđurkenndir sem slíkir. Og kannski er ţađ - til ađ mynda - hiđ besta mál, ađ utanríkismálefni okkar Íslendinga verđi nú um skeiđ - til reynslu -í höndum Kaupfélags Skagfirđinga !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 193
  • Sl. viku: 978
  • Frá upphafi: 383593

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 849
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband