12.10.2013 | 00:42
Um sáttmála samleiðar og gildi Guðs Orðs !
Þjóðfélag verður til þegar fólk sem á í öllum meginatriðum samleið, kýs að gera sáttmála sín á milli um þau grundvallarmál sem það kýs að heiðra. Meðan trúnaður varir gagnvart gildum sáttmálans er fólk áfram á sömu göngu í gegnum lífið, en þegar sá trúnaður er rofinn gerist það vegna þess að einhver eða einhverjir vilja fara aðra leið. Stundum er eins og sumt fólk fái leið á öllu með tímanum, sama hvað gott það er eða hefur verið og vilji fá breytingar breytinganna vegna !
En þegar vegið er að rótgrónum siðagildum og reynt að brjóta þau niður með allskonar áróðri í ræðu og riti, er hætt við að hrikti í mörgum þjóðfélagsstoðum. Þá getur margt farið forgörðum sem átti kannski ekki að glatast, en þegar menn höggva tréð en vilja halda í greinarnar verður niðurstaðan skiljanlega með þeim hætti. Ég veit heldur ekki til þess að þeir sem að slíkum hlutum standa, séu að boða okkur einhvern fastari grunn til að standa á. Þeir virðast vera of önnum kafnir við að rífa niður til að huga að slíku. Það eina sem virðist fast í hugum þeirra er að herja á þann siðferðilega og trúarlega grunn sem þjóð okkar hefur haft til að standa á um aldir og viðleitnin sýnist öll í þá veru að brjóta hann niður. En hvað skyldi eiga að koma í staðinn ?
Það er nú það ! Oftast er það svo með þá sem vilja ekkert með Guð hafa, að þeir vilja hefja manninn á stall í öllu sínu veldi!" Í staðinn fyrir Guðsdýrkun vilja þeir standa fyrir manndýrkun ! Oft á þessi afstaða samleið með mönnum sem eru orðnir það sem ég vil kalla oflærðir. Þeir fá ekki meðtekið á sínum lærðu forsendum þá skilgreiningu sem Biblían gefur fyrir trú. Þar segir nefnilega trú er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá !"
Samkvæmt vísindalegum rannsóknarforsendum nútímaviðhorfa er ekki hægt að meðtaka svona boðskap. Þar sem lærdómsspekingar háskólasamfélaga hafa hvorki möguleika á því að setja mælistiku fræða sinna á Guð né Orð hans, virðist sú lausn nærtækust hugsun þeirra að loka á þetta hvorttveggja og úthýsa því úr mannlegu samfélagi. Guð er samkvæmt hugsun slíkra aðila ekki til og þar af leiðandi ekkert Guðsorð heldur. Biblían er í hugum oflærðra bara samanhrúgað mannasetningarit og engin ástæða til að taka hana alvarlega. En á móti þessari oflærðu afstöðu kemur inn í dæmið önnur afstaða sem er kannski ekki svo ýkja lærð, en virðist alltaf búa í miklum styrkleika í mannlegum sálum, en það er sú staðreynd að maður án trúar er varla til. Allir virðast þurfa sinn átrúnað. Þeir sem villst hafa frá Skapara sínum og þykjast guðlausir og náttúrulega að sama skapi víðsýnni en aðrir, hafa til dæmis margir Mammon fyrir sinn guð, jafnvel án þess að gera sér nokkra grein fyrir því. Og þau geta orðið mörg skurðgoðin í lífi manna sem vita ekki að Guð sem er sannur Guð verður aldrei búinn til af mannahöndum eða huga.
Þeir sem standa á móti kristnum gildum í samfélagi okkar og eru þar andlega séð bandamenn, herja í raun á aldagamlan trúarlegan bakgrunn þjóðarinnar og vilja skipta honum út og fá eitthvað sem hentar þeim betur í staðinn. Þeir vilja ekkert með afskiptasaman Guð hafa, Guð boða og banna, Guð sem segir þeim hvernig þeim ber að breyta og heimilar þeim ekki að gera allt að eigin vild. Slíkur Guð er í þeirra augum bara guð sem er til vandræða !
Og hinir háværu minnihlutahópar þeirra uppreisnarafla í samfélaginu sem vilja annaðhvort þurrka kristindóminn út eða þynna hann niður í gildisleysi, hópar sem eru í raun bandamenn í sókn að slíku marki, fara nú á dögum með miklum gný um þjóðfélagið og þykjast þar meðal annars höfuðverjendur allra mannréttinda. Í þeim umræðufarvegi sé ég ekki betur en að til dæmis Siðmennt og Samtökin ´78 séu sem í einum anda, þegar öllu er á botninn hvolft. Afneitun á kristindómi og vilji til útþynningar kristindóms niður í gildisleysi, er í raun það sama !
Íslenskt samfélag hefur þroskast í gegnum aldirnar við geysilega mikinn samruna sögu, menningar og trúar. Grundvallarþættirnir í haldreipi þjóðarinnar fyrir lífi og velferð eru ofnir úr andlegum kjarna þessarar þrennu. Ég held að þar verði ekki eitt skilið frá öðru nema með hrikalegum afleiðingum. Ég fæ ekki séð að nokkur sómakær Íslendingur vilji í alvöru afskrá hið liðna með þeim hætti, jafnvel þó ég persónulega þekki menn sem virðast hafa vilja til að höggva tréð en halda lífi í sumum greinum þess.
Frá mínum bæjardyrum séð, myndi heiðingi sem væri samkvæmur sjálfum sér, vera öllu virðingarverðari en nokkur af þeim sem vilja smækka kristindóminn niður í persónulega vasaútgáfu eigin vellystar, en svo heiðarlegan heiðingja hef ég aldrei hitt til þessa og geri varla ráð fyrir því að svo verði héðan af. Ég get hugsað mér að slíkir heiðingjar hafi verið til fyrir kristnitöku, til dæmis Runólfur goði í Dal, en í dag eru þeir sem amast við kristinni trú, að mínu áliti, menn af allt öðru og lakara sauðahúsi. Þar er dansað við tíðarandann, dansað við sjálfið og eigið ágæti, og ekkert viðurkennt sem því æðra að gildi !
Það er til fólk, bæði hérlendis og erlendis, sem telur sig ekki hafa neitt til Jesú Krists að sækja ; ef til vill telur það sig of menntað til þess eða þá of gáfað, en það er greinilegt að hluti af boðskapnum til safnaðarins í Laódíkeu í Opinberunarbókinni á við þá sem þannig er ástatt með, en þar stendur : Þú segir : Ég er ríkur og orðinn auðugur og þarfnast einskis. Og þú veist ekki, að þú ert vesalingur og aumingi og fátækur og blindur og nakinn. Ég ræð þér, að þú kaupir af mér gull, skírt í eldi, til þess að þú verðir auðugur, og hvít klæði til að skýla þér með, að eigi komi í ljós vanvirða nektar þinnar, og smyrsl til að smyrja með augu þín, til þess að þú verðir sjáandi !"
Laodíkeu-andavaldið leikur lausum hala í dag og það er nákvæmlega eins og Ritningin sagði fyrir að það myndi verða. En þegar allir guðleysingjar samtímans verða orðnir að dufti og ösku, mun Orð Guðs sem þeir ætluðu að tortíma, halda velli heilt og óhaggað sem fyrr. Enginn mannlegur máttur stendur til lengdar gegn Guði og framgangi áætlunar þeirrar sem hann hefur með þennan heim !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 29
- Sl. sólarhring: 78
- Sl. viku: 598
- Frá upphafi: 365496
Annað
- Innlit í dag: 26
- Innlit sl. viku: 511
- Gestir í dag: 26
- IP-tölur í dag: 26
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)