14.12.2013 | 09:52
"Skuldaniðurfellingin mikla !"
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra þykist nú líklega hafa staðið við sín stóru orð og upprisa íslensku millistéttarinnar" á að standa fyrir dyrum að hans mati. En hin margupphafna skuldaniðurfelling er í þeim mæli að aðeins virðist hægt að segja um hana, að fíll hafi tekið jóðsótt og fætt mús !
Það segir sína sögu, að allir þeir aðilar sem aldrei hafa fagnað því að almenningur fengi eitthvað í sinn hlut, fagna nú. Og af hverju skyldu þeir fagna ? Þeir geta ekki leynt ánægju sinni með það hvað skammt er farið. Þeir voru nefnilega farnir að verða hræddir við hið gagnstæða, sem þó aldrei þurfti að óttast ! Niðurstaðan er hinsvegar fullkomlega í anda hinnar mögnuðu sannindavísu:
Til að öðlast þjóðarþögn
þegar þeir aðra véla,
gefa sumir agnarögn
af því sem þeir stela !
Ég var alla tíð sannfærður um að lítið myndi koma út úr þessu bjargráðalýðskrumi. Ég veit nefnilega að silfurskeiðungar koma ekki til móts við þarfir venjulegs fólks. Þeir arðræna það og einmitt vegna þess er þessi skuldavandi til staðar !
Fólk var blekkt í stórum stíl, haft af því fé, og það fé varð ekki alveg að engu. Það er áreiðanlega enn í talsverðum mæli í höndum þeirra sem ódáðirnar frömdu ! En það hefur löngum virst svo sem ekki megi snerta við þeim aðilum. Þeir hafa virst njóta fullkominnar friðhelgi innan lögsögu hins íslenska lagakerfis. Þeir virðast varðir í bak og fyrir, þessir óhappamenn sem fengu fyrir hrun - frá pólitískum lagsbræðrum sínum - nánast ótakmarkað skotleyfi á almenning !
Nú eru að vísu einhver tilþrif í gangi, lægra dómstig virðist hafa sýnt nokkra festu og samborgaralega ábyrgð, en hvað gerir Hæstiréttur ? Þeir eru ófáir sem virðast trúa því að hann muni snúi þeim dómum við sem nú hafa verið felldir, og komi þannig fram sem einhver verndari valdamikilla samtryggingarafla í þjóðfélaginu ? Ég veit ekki hvernig þar verður á málum tekið, en ég verð að segja það fyrir mig, að í ljósi atburðarásar undanfarinna ára, ber ég ákaflega lítið traust til Hæstaréttar og því miður er hann ekki í mínum augum það sem ég tel að virðingarverður Hæstiréttur eigi að vera !
En við skulum sjá hvað setur !
Ég hef tekið eftir því að nú eru bankaskrímslin byrjuð að þylja gamla áróðurinn um sparnað ! Af hverju skyldi það vera, skyldi það ekki vera til þess að hægt sé að hirða sparnaðinn af fólki þegar hann er orðinn að álitlegri fjárupphæð ?
Það er svo miklu erfiðara að ná fé af fólki sem sparar ekki og eignast ekki neitt ! Svo það verður að hvetja fólk til þess að spara. Það er sama gamla leikfléttan sem auðvald heimsins hefur beitt gagnvart almennum einstaklingum öld af öld, - þú átt að vinna, vinna mikið, skapa verðmæti, spara, spara, reyna að eignast eitthvað ! Og svo er hugsunin á bak við, - og þegar þú ert búinn að basla og þræla, skapa verðmæti, spara og leggja fyrir, þá ætlum við að koma og hirða það af þér !
Afstaða silfurskeiðunga-stjórnarinnar til almenns fólks í þessu landi kom í ljós þegar vaxtabætur voru skornar niður við trog í sumar. Voru þær ekki ákvarðaðar á sínum tíma af fyrri stjórn til þess að bæta fyrir mistök fyrirhruns-stjórnvalda í eftirlitshlutverkinu með fjármálagjörningum síðustu ára ? Höfðu fyrri stjórnvöld ekki sagt að það væri réttlætismál vegna þeirra mistaka ?
Árið 2012 voru vaxtabætur veruleg hjálp fyrir margt fólk í greiðsluvanda vegna stökkbreyttra lána, en 2013 var allt skorið niður í lúsarlíki og sennilega hefur núverandi stjórn þá verið að byrja að safna í það verkefni að láta fólkið sjálft borga brúsann fyrir skuldaleiðréttinguna miklu"!
Hið mikla kosningaloforð Framsóknar um réttlæti í þessu máli hefur þegar snúist upp í andhverfu sína, niðurstöðurnar eru með ótvíræðum Valhallarfnyk og sýna glöggt að annar sérgæðaflokkur hefur haft mikið um útþynningarþátt málsins að segja og haft þar sína stóru bláu krumlu á bagga !
Það er viðbjóður að horfa upp á menn hreykja sér og berja sér á brjóst fyrir smáskammtalækningar af þessu tagi. Ég þóttist vita að loforðið mikla yrði aldrei haldið, en það virðist stefnt að því einu að svíkja það með svo ísmeygilegum og lúmskum hætti að undrun sætir og er maður þó orðinn ýmsu vanur frá íslensku stjórnmálamafíunni. Þaðan er einskis góðs að vænta fyrir venjulegt fólk !
Ég óska þess af heilum hug, að allir þeir sem komið hafa að tilurð þessarar blekkingarleikfléttu, taki það út á sjálfum sér sem þeir hafa gert þjóð sinni og heimilunum í landinu með þessum margútþynnta músargjörningi ! Það er alltaf gott að vita hver andstæðingur manns er, en versti andstæðingurinn er alltaf hinn svikuli bandamaður, sá sem þykist vera með okkur en er í raun á móti okkur !
Það var stolið miklu af fólki fyrir hrunið, svo miklu að margir hafa misst sinn lífssparnað, en réttlætis-skilagjörð" silfurskeiðunga hljóðar upp á vesæla agnarögn af ránsfengnum og í raun sýna hugsaðar tilfærslur fjármuna að það á að láta fólkið sjálft borga sína skuldaleiðréttingu !
Þegar bóndinn datt í flórinn forðum, gerði hann sér undireins fulla grein fyrir ástandi sínu og því hver staðan var og honum varð því að orði: Nú er sannarlega skítalykt af mér !"
Ég geri mér engar vonir um að íslenskir ráðamenn, hvort sem er í ríkisstjórn, á þingi eða í öðrum valdamiklum stofnunum, muni nokkurntíma mæla slík orð, þó þeir margir hafi sokkið upp fyrir haus í mesta skítahaug Íslandssögunnar - haug efnahagshrunsins ! En í mínum huga er bóndinn sem datt í flórinn sinn hreinn í samanburði við þá og virðing mín fyrir svokölluðum yfirvöldum þessa lands er því miður ekki líkleg til að lyfta sér upp fyrir núllið í fyrirsjáanlegri tíð !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:55 | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 167
- Sl. sólarhring: 213
- Sl. viku: 736
- Frá upphafi: 365634
Annað
- Innlit í dag: 162
- Innlit sl. viku: 647
- Gestir í dag: 162
- IP-tölur í dag: 160
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)