Leita í fréttum mbl.is

Skrifađ í skvettustíl um stađlćg "stjórnmál" !

Ţađ á ađ kjósa á Skagaströnd, - ađ hugsa sér ! Ţađ er hreint og beint lýđrćđishátíđ framundan og sjómannadagshelgi í ofanálag. Einhverntíma hefđi einhver líklega sagt á slíkum tímamótum: „ Nú er mikiđ um dýrđir" !

Fullt af fólki, - og menn skulu gera sér grein fyrir ađ ţađ er fullt af fólki á Skagaströnd -, virđist varla ráđa sér fyrir tilhlökkun ! Ţađ er nefnilega ekki eins og ţessi tilbreyting sé í bođi fjórđa hvert ár hér á Ströndinni, nćr vćri ađ segja áttunda hvert ár og ţegar tilbođsdagarnir loksins koma, ţá er eđlilegt ađ fólk velti ţví fyrir sér - í alvöru - hvađ sé raunverulega í bođi ?

Og ţađ er náttúrulega alltaf pínulítil spurning ţegar pólitík er annarsvegar, hvađ sé raunverulega í bođi, ţví ţó ađ tilbođsmarkađurinn fari alltaf nokkuđ mikiđ upp á viđ í kringum ţessar sérstöku ađstćđur, er uppsveiflan oftast nokkuđ vafasöm á köflum - og rúmlega ţađ, ekki síst vegna ţess ađ ţeim virđist alltaf fjölga sem tengja loforđ ekkert endilega viđ efndir. Menn eiga ţađ jafnvel til ađ segja eftirá ţegar einhver fer ađ tala um efndir: „Ći, láttu ekki svona, ađstćđur kröfđust ţess bara í augnablikinu ađ ég lofađi ţessu, ég meinti ekkert međ ţví, ţetta var bara grín !"

Ég orti eitt sinn viđ ţćr ađstćđur ađ mér fannst miklu lofađ :

Lygin víđa fćr sitt flug,

fer um land međ dunum.

Í ýmsra munni almáttug

á undan kosningunum !

                                                       En hvernig sem loforđalínurnar annars eru, er ţađ samt hiđ besta mál ađ ţađ séu og verđi kosningar og ţá í ţađ minnsta fjórđa hvert ár, en ný frambođ verđa samt ađ snúast um eitthvađ meira en bara ţađ ađ tryggja ađ ţađ verđi kosningar. Ţegar ég sá nýja listann sem bođinn hefur veriđ fram hér á Skagaströnd, hrökk mér af munni ţessi vísa:

Fullan jöfnuđ skörp og skýr

skapar stađan fágćt.

Konur sjö og karlar ţrír,

kynjahlutföll ágćt !

                                              Gamli elítulistinn sem nú heitir H-listi og virđist einna helst einhverskonar uppsuđa úr gömlum graut, komst á koppinn međ viđbótar-bragđefnum í lok apríl eđa ţar um bil. Var ţar um einhverja málamynda-uppstillingu ađ rćđa, sennilega til ađ koma til móts viđ nýjar frambođsáherslur. Var ţó ekki laust viđ ađ einhver taugatrekkingur vćri í gangi í kringum ţađ sjónarspil, enda var um ţađ kveđiđ :

Sjallar ćtla ađ kjósa í kvöld,

kynna lausn á málum.

Komin virđist önnur öld,

enda er Dolli á nálum !

                                                  Ţađ er svo sem aldrei tíđindalaust á Skagaströnd, en margt gerist fyrir kosningar sem ekki gerist endranćr. Oddvitinn er fyrir nokkru hćttur ađ mćta í Neistakaffiđ og Steindór Rúniberg er svo á kafi í sértćkum iđnvćđingarmálum ađ hann hefur hreint ekki neinn tíma í frambođsmálin, allra síst frambođsfund ! Ţađ minnir óneitanlega nokkuđ á Ţröst Líndal og rollurnar hans hérna um áriđ. Ţađ ţykir víst sumum bara ágćtt ađ bjóđa sig fram og vera svo ekki til viđtals. En ţađ er líklega allt í lagi međ ţađ, ţví ţađ er ljóst ađ -

Sumum ţykir Steindórs stađa

stórbrotin ađ allri gerđ.

Líkt og stjarna á ljóssins hrađa

leiftri hann á sinni ferđ !

 

Sömu raddir segja ađ Dolli

sé međ öllu í blóđ og merg,

daufur bćđi í dúr og molli,

dansi verr en Rúniberg !

                                               En líklega veit ţó enginn hvar viđ dönsum nćstu jól, en hinsvegar vilja sumir meina ađ ţađ sé ljóst ađ -

Ţeir sem kjósa ćtla Đ,

ákveđnir frá rótum,

dansa ekki Dolla međ,

dansa á öđrum nótum !

                                        Og ţví er ekki ađ neita ađ dansinn í sveitarstjórnarmálunum hér hefur veriđ nokkuđ einhćfur síđustu tuttugu árin og ţessvegna hreint ekki fráleitt ađ ćfđ séu ný dansspor í ţeim efnum.

Dolla og Magga dansinn er

dottinn út úr tísku.

Síst ţar gefinn sjansinn er

međ sólskinsbragđi frísku !

                                              Ţađ ţarf auđvitađ einhverja ferska ađila á hiđ pólitíska dansgólf okkar Skagstrendinga međ ný spor og nýja vendi, til ađ sópa og prýđa hinn málefnalega sameignarsal og hleypa almenningslífinu ţangađ inn, en spurningin er hinsvegar, hefur raunverulegt tilbođ í ţeim efnum veriđ lagt fram ? Reynslan mun skera úr ţví hvort nýir frambođsađilar standi undir vćntingum,  en fólk má auđvitađ eiga sér ţćr vonir í millitíđinni ađ einhverjar breytingar verđi međ tilkomu slíkra á sviđiđ :

Á málin gćti komiđ kast

međ keppnisanda nýrra manna.

Ef allt er ekki frosiđ fast

á fimbulvelli hagsmunanna ?

                                                   Ţađ er ţví í sjálfu sér gott ađ fólk hafi val og ef um raunhćft val er ađ rćđa, er ţađ enn betra. Ţađ er vonandi ađ Skagstrendingar geti hér eftir gengiđ ađ kjörborđi fjórđa hvert ár til ađ velja sér forustuliđ og ţađ falli ekki oftar niđur kosningar en orđiđ er. Viđ íbúar á Skagaströnd hljótum ađ sjá til ţess eftirleiđis ađ svo verđi og ţađ innifelur náttúrulega nánustu ađstandendur beggja frambođslistanna og alla ţá sem hér búa. Í ţví mengi erum VIĐ ÖLL !

Ég lýk ţessu pistilgreyi svo međ eftirfarandi stöku :

Ströndin okkar bjart međ blikiđ

ber vort líf í skauti sér.

Hún á skiliđ margt og mikiđ,

meira en í bođi er !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Jan. 2025
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 26
  • Sl. sólarhring: 75
  • Sl. viku: 595
  • Frá upphafi: 365493

Annađ

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 508
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband