16.2.2009 | 19:58
" Þetta var meiri sirkusinn "
Ég horfði nýlega á umræðuþátt í sjónvarpi og þar sagði kunn manneskja úr bloggheimum frá því að hún hefði verið á þingpöllum nýlega og fylgst með umræðum á alþingi. Þar ofbauð henni framkoma margra kjörinna fulltrúa í þingsal og virtist henni sem þarna væri bara einhver vitleysa í gangi.
Og hún spurði réttilega: " Er þetta fólkið sem á að bjarga þjóðinni úr þeim vanda sem við er að glíma ? "
Svo hristi hún höfuðið og sagði, " Þetta var meiri sirkusinn ! "
Og því miður er það svo, að mörgum ofbýður vöntun þingsins á veruleikaskyni við þær hrikalegu þjóðfélagsaðstæður sem nú eru uppi. Þjóðina vantar leiðtoga á öllum stjórnvaldssviðum, það vantar fólk sem hefur tilfinningu fyrir þjóð og landi, það vantar fólk sem vill hugsa um heildarhagsmuni þessarar þjóðar !
Það er til nóg af liði sem er að hugsa um það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn geti plumað sig sem best í næstu kosningum og það sama gæti jafnvel gilt um alla flokkana, en meðal ráðamanna virðast fáir sem eru að hugsa um Ísland, landið okkar og okkur öll sem þjóð ! Það er það sem vantar svo sárlega.
Og því miður virðast margir sem stefna á framboð í vor, vera af sama sauðahúsi og þeir sem fyrir eru, menn sem eru fyrst og fremst með framadrauma í huga, menn sem stefna á að komast á jötuna, fyrir eigin hag ! Hvar er allt mannvalið sem menntadýrkun liðinna ára og langskólakerfið á að hafa skilað okkur ?
Það er einmitt af þessari ástæðu sem Jón Baldvin Hannibalsson, sem stendur á sjötugu, gefur kost á sér til forustustarfa á ný. Hann hefur náttúrulega séð forustuleysið á fjölmörgum sviðum. Og nú er þessi gamli krataforingi sýnilega kominn með snert af Churchill heilkenni og elur vonir um að verða " The Grand Old Man " á Íslandi. En Jón Baldvin er þar á villigötum og hann verður að láta sér nægja að hafa " bjargað " Eystrasaltsríkjunum - því innviðir hans eru ekki þesslegir, að hann muni bjarga Íslandi á nokkurn hátt.
Hann talaði fyrir því á sínum tíma að Eystrasaltsríkin yrðu frjáls og losnuðu frá sovéska miðstjórnarvaldinu, en hann talar nú fyrir því við öll hugsanleg tækifæri að Ísland verði bundið á klafa hins evrópska miðstjórnarvalds, þar sem það verður núll prósent aðili til frambúðar. Í þeim gjörningi felast bjargráð Jóns Baldvins til handa íslensku þjóðinni fyrst og síðast.
Hann hataðist við miðstjórnarvaldið í Moskvu, en miðstjórnin í Brussel er honum eins og töfralausn allra mála, enda er það ekkert nýtt að menn sem hafa verið utanríkisráðherrar Íslands verði býsna fljótt óþjóðlegastir allra manna.
Nei, leyfum Jóni Baldvin og öðrum afdönkuðum stjórnmálaskussum þessa lands að tóra á sínum eftirlaunum og hleypum þeim ekki að einu eða neinu framar.
Þeir eiga flestir ef ekki allir sinn þátt í því sem orðið er.
Við þurfum nýtt blóð, nýtt fólk, fólk sem er í tengslum við grasrótina í landinu, þekkir og á samleið með þeim breiða fjölda sem myndar almenning þessa lands. Sá breiði fjöldi er nefnilega undirstaða alls þess besta sem við eigum sem þjóð.
Við þurfum nýtt hugarfar. Ekki það spillta hugarfar sem hér hefur ríkt undanfarin ár, ekki það hugarfar sem drepur manneskjuna í dróma og metur ekkert nema fjármagnseign. Við þurfum hugarfar sem metur manngildi umfram auðgildi, hugarfar sem er þjóðlegt og samfélagslegt, hugarfar sem byggir upp traust og gömul gildi, hugarfar sem treystir stoðir þjóðfélagsins á mannlegum forsendum.
Í slíkum anda ber okkur að ganga til kosninga í vor. Við þurfum að kjósa með það eitt í huga sem getur gagnast best fyrir framtíð lands og þjóðar. Kjósum ekki til að viðhalda lífi í gjörspilltum flokkum, refsum þeim sem refsa ber og gefum þeim almennilegt tækifæri sem verðskulda fremur traust.
Veljum út frá því sem við teljum af innstu sannfæringu best fyrir land og þjóð !
Setjum okkur það, að axla þjóðlega skyldu okkar í kjörklefanum og gera okkar besta til þess að ný löggjafarsamkunda þjóðarinnar verði með þeim hætti eftir komandi kosningar, að glöggar manneskjur sem koma á þingpalla, þurfi ekki að segja : " Þetta er nú meiri sirkusinn " !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 26
- Sl. sólarhring: 75
- Sl. viku: 595
- Frá upphafi: 365493
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 508
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)