Leita í fréttum mbl.is

Hin deyjandi norđurlönd !

Ţađ er ekki svo langt síđan viđ Íslendingar vorum stoltir af ţví ađ tilheyra norrćna brćđrasamfélaginu, krossfánalöndunum, ţeim ţjóđum sem höfđu byggt upp bestu velferđarríki heims á tuttugustu öldinni í krafti verkalýđshugsjóna og jafnsýnar á samfélagsleg réttindi manna. Viđ tókum ríkan ţátt í margskonar norrćnu samstarfi og ţó ađ viđ nćđum ţví aldrei ađ byggja hér upp hliđstćđa velferđ og ríkti á hinum norđurlöndunum, virtist  ţó lengi vel miđa eitthvađ í ţá átt. Og ţađ höfđu vissulega margir trú á ţví ađ ţađ vćri stefnan og ađ takmarkiđ vćri gott og eftirsóknarvert !

En aukin velsćld ýtti undir margar af verstu hneigđum mannseđlisins og ţađ komu breyttir tímar, tímar sem fluttu međ sér vaxandi hćgri sveiflur, sem smám saman undu upp á sig og báru ađ lokum međ sér blásýrumettađan anda hinnar baneitruđu frjálshyggju.  Efnishyggjueinsýni og kenningin „hver er sjálfum sér nćstur", fór ađ verđa samfélagslega áberandi á ný, en hún er líkt og endranćr fyrsta bođorđ allra sérhagsmunapúka og eigingirnisdjöfla ţessa heims !

Og í framhaldi af ţeirri óheilla framvindu var svo smátt og smátt hćtt ađ líta til norrćnnar fyrirmyndar varđandi samfélagslega uppbyggingu og fariđ ađ einblína á Ameríku. Og ţađ varđ til ţess ađ Ísland hćtti ađ vera norrćnt ríki međ hugsjón fyrir velferđ heildarinnar, en varđ ţess í stađ ađ einhverskonar vasaútgáfu af dollararíkinu vestra, nokkurskonar Litlu Ameríku !

Og ţađ skal undirstrikađ ađ ţađ varđ fyrir ţrýsting og atbeina ákveđinna afla ţjóđfélagsins sem ţessi breyting átti sér stađ. Menn í verslun og viđskiptum fóru í tugatali vestur um haf til ađ lćra listina ađ grćđa. Svo komu ţeir heim, ţessir íslensku bisnissmenn sem heilaţvegnir dollarakarlar, uppfullir af auđgunarţrá og međ allskyns hugmyndir um bráđsnjallar viđskiptafléttur og hugsun sem snerist 99,9% um ađ féfletta náungann !

Ameríski draumurinn eđa hrollvekjan varđ íslenski draumurinn eđa martröđin, og býsna margir fóru ađ líta nćr ótakmarkađ upp til ţeirra sem skyndilega urđu moldríkir, en minna var hugsađ um ţađ hvernig ţeir höfđu orđiđ ţađ. Ađferđin virtist ekki skipta máli ef hún skilađi bara fé í vasana. Siđferđiđ hneig í valinn og heiđarleikinn međ. Svo djúpt höfum viđ sokkiđ, ađ viđ virđumst ekki enn gera okkur grein fyrir afvegaleiđslunni, ţó nánast allt sem í gangi hefur veriđ hafi varađ okkur viđ og hefđi ţannig átt ađ geta fengiđ okkur til ađ leiđrétta stefnu ţá sem virđist ráđa í samtímanum og ţjónar ekki ţjóđ og landi til góđra hluta !

Og ekki er sagan betri á hinum norđurlöndunum ţó ţau hafi kannski ekki falliđ á alveg sama hátt í gullkálfsginiđ. En ţau hafa falliđ fyrir einstaklega óţjóđlegum kratisma sem er kominn langt međ ţađ ólánsferli í stjórnunarháttum ađ afhenda ţessi lönd öđrum herrum í fyrirsjáanlegri framtíđ, ef ekkert verđur ađ gert.

Múslima-streymiđ inn í velferđarkerfi norđurlandanna er lengi búiđ ađ vera svo mikiđ ađ yfirtaka á norrćnum gildum er sjáanlega á nćsta leiti. Fjölmargir innflytjendur úr löndum hálfmánans eru greinilega ekki ađ koma til norđurlanda til ađ gerast hollir ţegnar viđkomandi landa, heldur til ađ njóta góđs af ţví sem ađrir hafa byggt upp og breyta samfélaginu til eigin gilda !

Hvenćr skyldi annars krafan um Sharia lög fara ađ koma fram í Svíţjóđ ? Ţađ er full ástćđa til ađ spyrja um ţađ, ţví ţarlend stjórnvöld gera sér mest far um  sleikjuhátt gagnvart  múslimum, og ţar virđist fjölmenningar-innrćtingin orđin ađ einhverskonar hugarfarslegu átumeini sem knýr á og ýtir undir tortímingarvilja gagnvart flestu ţví sem menn ćttu ađ telja sér skylt ađ verja sem mest og best. Ástandiđ sumsstađar í sćnsku ţéttbýli er í raun komiđ á ţjóđhćttulegt stig, en yfirvöld liggja ţar bara í dvala og engin sinna er á neinu í ţessum málum ţví rugluđ viđhorf um dýrkun fordómaleysis og víđsýni ráđa ţar för til feigđar !

Danir eru ekki í öllu betri stöđu, ţeir lćrđu ađ vísu eitthvađ af málinu međ myndirnar í Jótlandspóstinum og hafa rumskađ svolítiđ, en ţeir eru í eđli sínu vćrukćrir og sofna sennilega aftur, enda munu ţeir missa sitt samfélag alveg eins og Svíar á nćstu áratugum ef fer sem horfir !

Norđmenn sofa vćrt undir sinni gullsćng og hafa ekki sýnt nein merki ţess ađ eitthvađ hringi hćttubjöllum viđ ţeirra eyru, ţó átt hafi sér stađ hryllilegur atburđur í landi ţeirra sem var í raun afleiđing af óţjóđlegri fjölmenningarstefnu stjórnvalda. En yfirvöld ţar virđast afar seinţroska í ályktunarhćfni og munu seint draga réttan lćrdóm af ţví sem gerst hefur.

Í stuttu máli sagt, norđurlöndin, sem ţau norđurlönd sem ţau hafa veriđ, eru deyjandi samfélög, norrćn gildi međ kristindóm ađ kjölfestu eru á útleiđ og annađ á innleiđ !

Og hvađ er ţetta annađ ? Hvađa yfirtaka er ađ skapast í ţessum löndum ?

Ţađ er sú stefna sem kemur fram í ţeim lúmska gjörningi ađ best sé ađ taka ţjóđlönd yfir innanfrá, búa ţar til fimmtu herdeildir sem í fyllingu tímans verđa til stađar fyrir annađ vald en ţađ sem í viđkomandi löndum býr !

Sagan geymir fjölmörg dćmi um hliđstćđa framvindu mála. En ţađ er sofiđ og sofiđ, og fjölmenningarkórinn sönglar í sífellu sitt glötunarstef „ Öll dýrin í skóginum eiga ađ vera vinir !"

Og Norđurlanda kanínurnar, klifurmýsnar og hérarnir, öll saklausu, norrćnu smádýrin brosa blítt viđ öllum ađkomnu rándýrunum, bjóđa ţau velkomin í skóginn sinn og halda ađ allt sé og verđi í besta lagi, ţangađ til ţau verđa étin einn daginn - daginn sem skógurinn ţeirra hćttir ađ vera á leiđ í hiđ ćtlađa himnaríki vináttunnar og breytist snarlega í ţađ helvíti sem fylgja mun yfirtökunni !

Ţá verđa hin deyjandi norđurlönd endanlega dauđ og grafin og Arabía norđursins komin til ađ vera, međ öllu ţví harđrćđi sem ţví mun fylgja fyrir norrćnan minnihluta ţessara landa !

Ţá verđur of seint ađ iđrast vitleysunnar !!!

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 717
  • Frá upphafi: 384379

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 602
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband