Leita í fréttum mbl.is

Hin deyjandi norðurlönd !

Það er ekki svo langt síðan við Íslendingar vorum stoltir af því að tilheyra norræna bræðrasamfélaginu, krossfánalöndunum, þeim þjóðum sem höfðu byggt upp bestu velferðarríki heims á tuttugustu öldinni í krafti verkalýðshugsjóna og jafnsýnar á samfélagsleg réttindi manna. Við tókum ríkan þátt í margskonar norrænu samstarfi og þó að við næðum því aldrei að byggja hér upp hliðstæða velferð og ríkti á hinum norðurlöndunum, virtist  þó lengi vel miða eitthvað í þá átt. Og það höfðu vissulega margir trú á því að það væri stefnan og að takmarkið væri gott og eftirsóknarvert !

En aukin velsæld ýtti undir margar af verstu hneigðum mannseðlisins og það komu breyttir tímar, tímar sem fluttu með sér vaxandi hægri sveiflur, sem smám saman undu upp á sig og báru að lokum með sér blásýrumettaðan anda hinnar baneitruðu frjálshyggju.  Efnishyggjueinsýni og kenningin „hver er sjálfum sér næstur", fór að verða samfélagslega áberandi á ný, en hún er líkt og endranær fyrsta boðorð allra sérhagsmunapúka og eigingirnisdjöfla þessa heims !

Og í framhaldi af þeirri óheilla framvindu var svo smátt og smátt hætt að líta til norrænnar fyrirmyndar varðandi samfélagslega uppbyggingu og farið að einblína á Ameríku. Og það varð til þess að Ísland hætti að vera norrænt ríki með hugsjón fyrir velferð heildarinnar, en varð þess í stað að einhverskonar vasaútgáfu af dollararíkinu vestra, nokkurskonar Litlu Ameríku !

Og það skal undirstrikað að það varð fyrir þrýsting og atbeina ákveðinna afla þjóðfélagsins sem þessi breyting átti sér stað. Menn í verslun og viðskiptum fóru í tugatali vestur um haf til að læra listina að græða. Svo komu þeir heim, þessir íslensku bisnissmenn sem heilaþvegnir dollarakarlar, uppfullir af auðgunarþrá og með allskyns hugmyndir um bráðsnjallar viðskiptafléttur og hugsun sem snerist 99,9% um að féfletta náungann !

Ameríski draumurinn eða hrollvekjan varð íslenski draumurinn eða martröðin, og býsna margir fóru að líta nær ótakmarkað upp til þeirra sem skyndilega urðu moldríkir, en minna var hugsað um það hvernig þeir höfðu orðið það. Aðferðin virtist ekki skipta máli ef hún skilaði bara fé í vasana. Siðferðið hneig í valinn og heiðarleikinn með. Svo djúpt höfum við sokkið, að við virðumst ekki enn gera okkur grein fyrir afvegaleiðslunni, þó nánast allt sem í gangi hefur verið hafi varað okkur við og hefði þannig átt að geta fengið okkur til að leiðrétta stefnu þá sem virðist ráða í samtímanum og þjónar ekki þjóð og landi til góðra hluta !

Og ekki er sagan betri á hinum norðurlöndunum þó þau hafi kannski ekki fallið á alveg sama hátt í gullkálfsginið. En þau hafa fallið fyrir einstaklega óþjóðlegum kratisma sem er kominn langt með það ólánsferli í stjórnunarháttum að afhenda þessi lönd öðrum herrum í fyrirsjáanlegri framtíð, ef ekkert verður að gert.

Múslima-streymið inn í velferðarkerfi norðurlandanna er lengi búið að vera svo mikið að yfirtaka á norrænum gildum er sjáanlega á næsta leiti. Fjölmargir innflytjendur úr löndum hálfmánans eru greinilega ekki að koma til norðurlanda til að gerast hollir þegnar viðkomandi landa, heldur til að njóta góðs af því sem aðrir hafa byggt upp og breyta samfélaginu til eigin gilda !

Hvenær skyldi annars krafan um Sharia lög fara að koma fram í Svíþjóð ? Það er full ástæða til að spyrja um það, því þarlend stjórnvöld gera sér mest far um  sleikjuhátt gagnvart  múslimum, og þar virðist fjölmenningar-innrætingin orðin að einhverskonar hugarfarslegu átumeini sem knýr á og ýtir undir tortímingarvilja gagnvart flestu því sem menn ættu að telja sér skylt að verja sem mest og best. Ástandið sumsstaðar í sænsku þéttbýli er í raun komið á þjóðhættulegt stig, en yfirvöld liggja þar bara í dvala og engin sinna er á neinu í þessum málum því rugluð viðhorf um dýrkun fordómaleysis og víðsýni ráða þar för til feigðar !

Danir eru ekki í öllu betri stöðu, þeir lærðu að vísu eitthvað af málinu með myndirnar í Jótlandspóstinum og hafa rumskað svolítið, en þeir eru í eðli sínu værukærir og sofna sennilega aftur, enda munu þeir missa sitt samfélag alveg eins og Svíar á næstu áratugum ef fer sem horfir !

Norðmenn sofa vært undir sinni gullsæng og hafa ekki sýnt nein merki þess að eitthvað hringi hættubjöllum við þeirra eyru, þó átt hafi sér stað hryllilegur atburður í landi þeirra sem var í raun afleiðing af óþjóðlegri fjölmenningarstefnu stjórnvalda. En yfirvöld þar virðast afar seinþroska í ályktunarhæfni og munu seint draga réttan lærdóm af því sem gerst hefur.

Í stuttu máli sagt, norðurlöndin, sem þau norðurlönd sem þau hafa verið, eru deyjandi samfélög, norræn gildi með kristindóm að kjölfestu eru á útleið og annað á innleið !

Og hvað er þetta annað ? Hvaða yfirtaka er að skapast í þessum löndum ?

Það er sú stefna sem kemur fram í þeim lúmska gjörningi að best sé að taka þjóðlönd yfir innanfrá, búa þar til fimmtu herdeildir sem í fyllingu tímans verða til staðar fyrir annað vald en það sem í viðkomandi löndum býr !

Sagan geymir fjölmörg dæmi um hliðstæða framvindu mála. En það er sofið og sofið, og fjölmenningarkórinn sönglar í sífellu sitt glötunarstef „ Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir !"

Og Norðurlanda kanínurnar, klifurmýsnar og hérarnir, öll saklausu, norrænu smádýrin brosa blítt við öllum aðkomnu rándýrunum, bjóða þau velkomin í skóginn sinn og halda að allt sé og verði í besta lagi, þangað til þau verða étin einn daginn - daginn sem skógurinn þeirra hættir að vera á leið í hið ætlaða himnaríki vináttunnar og breytist snarlega í það helvíti sem fylgja mun yfirtökunni !

Þá verða hin deyjandi norðurlönd endanlega dauð og grafin og Arabía norðursins komin til að vera, með öllu því harðræði sem því mun fylgja fyrir norrænan minnihluta þessara landa !

Þá verður of seint að iðrast vitleysunnar !!!

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 30
  • Sl. sólarhring: 75
  • Sl. viku: 1167
  • Frá upphafi: 316853

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 869
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband