25.4.2007 | 23:33
SJÁLFSSÓKNARFLOKKURINN
Mörgum finnst sem pólitískar landamæralínur milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi hreinlega horfið á síðustu árum. Þar segja menn engin greinanleg skil lengur.
Víða er á það bent að Framsókn hafi færst talsvert til hægri undir forustu Halldórs Ásgrímssonar og telja sumir að maddaman sé jafnvel farin að skáka Sjálfstæðisflokknum á ýmsum fornum kjörsviðum hans. Það sé því nokkuð hlálegt að hugsa til þess að flokkurinn sem forðum hafði á hraðbergi slagorðið Allt er betra en íhaldið skuli, að margra dómi, vera kominn allt að því hægra megin við íhaldið í stóriðjumálum, frjálshyggju-sjónarmiðum, einkavæðingar-stefnu og hömlulausri Mammonsdýrkun.
Vilja sumir tala um Stóra Sjálfstæðisflokkinn og litla sjálfstæðisflokkinn í þessu sambandi. Þykir mörgum sem Framsókn hafi slitið öll tengsl sín við félagshyggjustefnu fyrri ára með blóðsáttmála sínum við íhaldið undanfarin ár. Segja þeir hinir sömu jafnframt að Framsóknarforustan sé þegar búin að slá öll forn met krata í undirgefni og þjónkun við íhaldið og er þá vissulega langt gengið.
Er það nú ætlun sumra að Framsóknarflokkurinn muni með tíð og tíma renna saman við Sjálfstæðisflokkinn, enda sé það tóm vitleysa af mönnum með sama hugsunarhátt að vera að halda úti tveim flokkum !
Allt er þetta umhugsunarvert því ljóst er að fáir líta á Framsóknarflokkinn sem vinstri flokk nú til dags, þó hann hafi óneitanlega í eina tíð viljað gangast við slíkri skilgreiningu.
En Framsókn hefur svo sem ýmsu tjaldað um dagana.
Um skeið var flokkurinn inn á því að skilgreina sig sem miðjuflokk og varaði þá við öfgum jafnt til hægri sem vinstri. En svo kom Steingrímur Hermannsson flokknum aftur í nokkurnveginn hefðbundið vinstra far en þó brá alltaf fyrir ýmsum maddömu-sveiflum til hægri og vinstri, sennilega eftir því sem vindurinn blés. En svo segja menn að Halldór Ásgrímsson hafi sem formaður kippt flokknum snarlega upp úr Steingríms-farinu og dregið hann langleiðina inn í Sjálfstæðisflokkinn. Með þeim gjörningi hafi Halldór í raun lagt undirstöður að nýjum hægri flokki Sjálfssóknarflokknum ! Flokki sem sækir allt fyrir sjálfan sig og sjálfan sig einan !
Mörgum fannst nú nóg að hafa einn slíkan flokk fyrir í landinu þó ekki bættist annar við !
Davíð Oddsson færði, svo sem flestum er kunnugt, Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra-embættið á samtryggðu silfurfati. Með þeim gjörningi hefur Davíð sennilega fyrst og fremst verið með það í huga, að þóknast Halldóri persónulega með því að gefa honum kost á vegtyllu sem sá síðarnefndi mun vafalaust all lengi hafa haft augastað á.
Einhverjir maddömumenn munu samt sem áður hafa verið ósáttir við það, að formaður Framsóknarflokksins skuli hafa fengið forsætisráðherraembættið sem einhverskonar dúsu eða umbun frá Sjálfstæðisflokknum - eins og framlag fyrir veitta þjónustu....!
En skiptir það einhverju máli þegar Framsóknarmenn, að minnsta kosti margir hverjir, virðast orðnir að gallhörðum Sjálfstæðismönnum í hjarta sínu ?
Víða í sveitum landsins sitja gegnheilir Framsóknarmenn af eldri kynslóðinni, sem hafa alltaf haft á hreinu hugsjónir félagshyggju og samvinnustefnu, en sem nú vita ekki sitt rjúkandi ráð. Þeir horfa sem eyðilagðir menn upp á flokksforustuna vinna í öfugum anda sem hjálparkokkur íhaldsins í því að brjóta niður ölturu félagshyggjunnar í þessu landi. Ölturu sem Framsóknarmenn fyrri ára lögðu mikið í að byggja upp !
Vegna þessarar þjónkunar gerði íhaldið Halldór Ásgrímsson að forsætisráðherra. Það vissi að öllu var óhætt, þeirra maður sat hvort sem var og engu að síður í embættinu !
Stóri Sjálfstæðisflokkurinn var þannig um tíma leiddur af litla sjálfstæðis-flokknum. Stóri flokksformaðurinn gekk nefnilega út af sviðinu undir dynjandi lófataki dýrkenda sinna og skildi við flokkinn sinn í þeirri auðmýkjandi stöðu, að sitja undir forsæti litla flokksformannsins.
Það var nú lokasigurstaðan hjá þeim mikla manni !
Og litli flokksformaðurinn var sæll og glaður um tíma með sína vegtyllu, þó hann hefði leitt flokkinn sinn inn í pólitískt tómarúm sem hefur ef til vill lokað alfarið á alla afturkomu til félagslegra átthaga fyrri hugsjóna.
En svo ákveður hann allt í einu að hætta í stjórnmálum og hefði þó verið skynsamlegra af honum að sitja út kjörtímabilið, svo hans yrði ekki minnst eftirleiðis sem Framsóknarforsætisráðherrans, sem smeygt var í gustukaskyni inn á milli tveggja sjálfstæðismanna !
En hann er þó ekki meira hættur en það, að hann vill sjálfur ráða mestu um það hver tekur við af honum í Framsóknarflokknum og nú er hald sumra að Jón úr seðlabankanum eigi að vera arftakinn, eftir að Finni var fargað í beinni.
Sú var tíðin að afdankaðir ríkisstjórnargaurar urðu nánast sjálfkrafa blýantsnagarar í seðlabankanum og ekki síst formenn flokka, en nú er farið að snúa þeim málum heldur hressilega við, maður er sóttur í seðlabankann og gerður að ráðherra og hver veit, kannski flokksformanni innan tíðar !
Og Guðna varaformanni, sem nánast einn Framsóknarráðherranna hefur að einhverju leyti reynt að halda í þjóðlegar hefðir og félagsleg viðhorf, virðist alfarið hafnað af flokksforustunni sem framtíðarleiðtoga flokksins.
Hvað myndu þeir Tryggvi og Jónas annars segja, ef þeir gætu horft upp á flokkinn sinn í dag, miðað við þá afstöðu til mála sem þeir höfðu meðan þeir voru og hétu ? Skyldu þeir þekkja flokkinn sinn aftur, skyldu þeir kunna við þá græðgi sem hefur einkennt valdatíð hans síðustu árin eða kannski telja að fram væri komið eitthvað fyrirbæri sem væri verra en íhaldið ?
Rúnar Kristjánsson
(Ritað sumarið 2006.)
---
FRAMSÓKN FYRR OG NÚ
Er Jónas og Tryggvi með talandi verkum
tímunum breyttu með vorhuga sterkum,
svo samvinnuhugsjónin lýsti upp landið
með lifandi hætti var forustu treyst.
Gegn íhaldsins valdi þeir sigrana sóttu
og sérstakir foringjar alla tíð þóttu,
svo fjölmargir tóku á sig flokkslega bandið
og Framsóknarmerkið var þannig upp reist !
Þó upphafið væri með vænlegum hætti
sem víða úr meinlegum aðstæðum bætti,
þá sóttu nú að hinar sérlegu þarfir
og svo fór að lokum að mörgu var gleymt.
Því flokkslega hagstjórnin heimtaði mikið
og hanarnir settust þar fljótlega á prikið,
og breyttu þar áherslum öllum svo djarfir,
að enginn gat lengur hið glataða heimt !
Og þannig var spilað með hugsjónir háar,
að hagstjórnin gerði þær allar svo smáar,
og þynnti hvert gildi sem göfugt var talið
uns græðginnar andi þar húsunum reið.
Og pólitísk skurðgoð við tilbeiðslu tálsins
þá tálmuðu framgangi upprunamálsins,
og síðan var stöðugt á einsýni alið
og uppeldið miðað við flokkslegan seið !
Og þjónkun við öfuga sjálfstæðis siði
var saumuð við flokkinn með útlendu sniði.
Þótt hanarnir göluðu um íhaldið auma
þeir áttu í hjartanu samleið með því.
Svo fljótt stefndi allt fyrir ætternisstapa
því erfitt er löngum úr hugsjón að skapa
þann raunveruleika sem ræður við drauma
og ratar til framtíðar gæfuspor í !
Þó Jónas og Tryggvi með talandi verkum
tímunum breyttu með vorhuga sterkum,
fer nú í súginn til sjálfstæðismanna
hver sigur er forðum var unninn af þeim.
Svo nú er hún Framsókn að falla á tíma
því flokknum er liðin úr minni sú glíma
sem fyrrum var háð fyrir samvinnu sanna
með sækjandi krafti um íslenskan heim !
Rúnar Kristjánsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Er lokastyrjöldin handan við hornið ?
- Stórauknar arðránskröfur gegn Íslandi !
- ,,Hanskinn sem passar við bandarísku höndina !
- Lítilsháttar söguleg samanburðarfræði !
- Hryðjuverk mega aðeins réttir aðilar fremja !
- Er öll endurhæfing og þroskareynsla einskisvirði ?
- Þjóðir Evrópu virðast stefna að eigin tortímingu !
- Jafndægur að vori !
- ,,Drýpur af hússins upsum erlent regn, ókunnir vindar kveina ...
- Blóðsköttuð og friðarlaus framtíð !
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.4.): 27
- Sl. sólarhring: 76
- Sl. viku: 1027
- Frá upphafi: 377541
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 886
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)