Leita í fréttum mbl.is

Klikkađa kynslóđin, – pćlingar ?

 

Viđ mennirnir höfum yfirleitt stutta viđdvöl í ţessum heimi ţví jafnvel full mannsćvi er skammur tími. Ţó ađ mörgum kunni ađ finnast samtíđin stórkostleg hverfur allt hennar ćđi fljótt og bráđum munu líklega fáir minnast ţeirra sem nú eru uppi !

 

Ef til vill verđur okkar sem nú lifum kannski helst minnst fyrir ţađ síđar meir ađ hafa veriđ vitleysingar sem fóru illa međ gullin tćkifćri til ađ láta gott af sér leiđa fyrir hag barna okkar og komandi kynslóđa. Skyldum viđ fá frá ţeim sem koma á eftir okkur eftirmćlin - ,,klikkađa kynslóđin”?

 

Ef viđ lítum svolítiđ til baka má sjá ađ ,,hin allt-umlykjandi Evrópa” var nú ekki endilega ţađ merkilegasta í heiminum fyrir skitnum 2000 árum. Norđurhluti álfunnar var ţá enn á svokölluđu barbara-stigi, en suđurhlutinn kominn á úrkynjunarstig hins rómverska sćllífis. Ţannig var ţađ ţá og ţannig er ţađ enn í villuráfandi heimi !

 

Villimennskan og úrkynjunin héldust í hendur alveg eins og nú á tímum. Siđferđilegar framfarir eru ţví varla mćlanlegar - međ trúverđugum hćtti - á ţessu umrćdda tímaskeiđi allt fram á daginn í dag !

 

Flestar ţćr ţjóđir sem til eru í Evrópu í dag voru ekki til sem slíkar fyrir 2000 árum. Ţćr sem enn bera nöfn ţjóđa sem ţá voru til eru alls engin stađfesting á ţví ađ ţar sé um fólk af sama stofni ađ rćđa. Grikkir og Búlgarar nútímans eru til dćmis allt önnur fyrirbćri og Ítalir nútímans eru engir Rómverjar ţó enn sé lifađ og búiđ í Róm !

 

Fyrir 2000 árum voru engir Norđmenn, Danir eđa Svíar til, ekkert norrćnt var komiđ til sögunnar sem slíkt og villiţjóđir einar sagđar lifa um norđanverđa Evrópu. Ekki voru Írar heldur komnir til sögunnar, svo litla stórţjóđin,viđ Íslendingar,hin stökkbreytta og mjög svo fjölskrúđuga blendingsútgáfa af Írum og Norđmönnum, vorum auđvitađ ekki komnir á kortiđ !

 

Og Norđurţjóđin mikla, Rússar voru meira ađ segja ekki til ţá sem slíkir. Ađ hugsa sér, hverjum hafa menn eiginlega bölvađ ţá ? Hinir ,,siđmenntuđu” og úrkynjuđu rómversku ,,menningarvitar” sunnan Alpafjalla hafa líklega bölvađ Kimbrum og Tevtónum og öđrum slíkum í sand og ösku viđ veisluborđ allsnćgtanna í Róm og víđar, en ţá sem endranćr hafđi ţađ ragn lítiđ ađ segja gegn síbreytilegri rás tímans !

 

Fyrir 2000 árum voru Gyđingar hinsvegar til sem slíkir ţó ţeir vćru svo sem ekki mikiđ á ferđ í Evrópu eđa búnir ađ gera sig gildandi ţar. En ţeir voru vissulega til ţá - jafn sérstćđir og sjálfum sér líkir og ţeir hafa alltaf veriđ - og líklega eina ţjóđin sem er ţađ enn ađ mestu í dag sem hún var ţá. Af hverju skyldi ţađ annars vera ?

 

Hversvegna hefur ţessi sí-ofsótta ţjóđ stađiđ allt af sér og haldiđ velli ţó allar ađrar ţjóđir hafi hnigiđ í gras og horfiđ ? Ţađ skyldi ţó ekki vera vegna ţess - ađ ţrátt fyrir allt sé hún varđveitt vegna ţess sem á eftir ađ verđa og verđur - ef til vill innan tíđar ?

 

Hinir rómversku heimsdrottnarar eru horfnir, ţađ vald er ţrotiđ sem bannađi Gyđingum á sínum tíma ađ búa í landi sínu !

 

Bandaríkin sem eru á margan hátt handhafar rómverska valdsins í dag og deila og drottna á svipađan hátt og Rómverjar gerđu, hafa enn ekki rekiđ neina ţjóđ međ sama hćtti úr landi sínu og bannađ henni ađ halda ţar til.

 

Hćtt er viđ ađ slíkt ţćtti ofríki mikiđ, en á sínum tíma var ţetta gert og ţessvegna urđu Gyđingar ađ hverfa ađ mestu burt úr landi sínu. Ţeir voru reknir ţađan burt međ fullkomlega löglausum hćtti af ríkjandi heimsdrottnum ţess tíma !

 

En Gyđingar hafa snúiđ aftur eftir margar aldir ofsókna og sest ađ í landinu sem ţeir voru reknir frá. Hvađ ćtti ţađ ađ segja okkur ? Líklega er ţar önnur ráđsályktun ađ baki en nútíminn kćrir sig um ađ skilja. En ţađ skiptir minnstu hvađ mennirnir skilja, allt mun fara ađ Skaparans vilja – ađ lokum !

 

Viđ mannfólkiđ erum sem sandkornin á sjávarströndinni, ekki nafli alheimsins. Ţađ er löngu kominn tími til ađ viđ hćttum ađ ofmeta gildi okkar, en ţađ höfum viđ gert fyrst og fremst á kostnađ gildis Skapara okkar !

 

Viđ komum í heiminn, hversvegna ? Ekki getur tćknin upplýst okkur um ţađ ? Viđ erum hér skammvinnt ćviskeiđ, til hvers ? Allt upplýsingaflćđi nútímans gagnast okkur ekki neitt varđandi ţađ ? Viđ deyjum og hvađ verđur ţá ? Ekki fáum viđ neitt svar viđ ţví og förum ţví flest líklega illa óundirbúin og međ lágar einkunnir úr ţessum jarđlífsskóla !

 

Hvađ segir ţađ okkur ? Segir ţađ okkur ekki heldur napran sannleika ?

Ţann sannleika ađ viđ erum í raun og veru stödd ţar sem viđ höfum alltaf veriđ stödd, í veröld sem tekur framförum í öllu nema ţví sem mest um varđar, ţeim meginatriđum tilverunnar sem snerta sálarheill okkar allra ţessa heims og annars !

 

Erum viđ ţá ađ tala um ađ um einhverjar raunhćfar manndómslegar og göfgandi framfarir hafi veriđ ađ rćđa á umrćddu tímaskeiđi ţegar allt kemur til alls ?

 

Kom Ljósiđ ekki inn í heiminn fyrir 2000 árum og er ekki stađreyndin sú ađ viđ mennirnir höfum ekki enn tekiđ viđ ţví  – er ekki heimurinn sem einn samfelldur vígvöllur afleiđing ţess ? Hvar erum viđ ađ feta veginn til góđs ?

 

Eitt megum viđ mennirnir vita, ađ ţađ fer ađ styttast í endalokin !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 69
  • Sl. viku: 1183
  • Frá upphafi: 316782

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 887
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband