Leita í fréttum mbl.is

Styđjum aldrei spillta stjórnarhćtti !

 

Ţađ er sagt ađ ţađ sé vinstri meirihluti í Reykjavík ? Ţađ fer nú líklega eftir ţví hvernig verkin tala. Og í sumum tilfellum virđast ţau ekki tala sérlega sannfćrandi til vinstri. Ţeir sem bjóđa sig fram á fölskum forsendum sýna oftast ţegar á líđur ef orđin segja eitt og verkin annađ !

 

Ţegar núverandi meirihluti í borgarstjórn virđist vilja halda uppi stífri láglaunastefnu gagnvart starfsfólki sínu, međ tilheyrandi ţrćlahalds-hugsun, er ekki ađ sjá ađ hann hafi tekiđ í arf ţćr hugsjónir sem ganga út á ţađ - ađ ekki eigi ađ ţrćlka fólk eđa níđast á ţví á nokkurn hátt !

 

Ţađ er sagt ađ ţađ sé Dagur í borginni, en ţegar litiđ er til launastefnunnar gagnvart almennu starfsfólki, má öllu heldur segja ađ ţađ sé svartnćtti í borginni. Og ekki virđist ţađ skila neinum sérstökum félagslegum ávinningi ađ borgarfulltrúar séu líklega fleiri kvenkyns en löngum áđur !

 

Borgarfulltrúar meirihlutans virđast ganga fyrir ţeirri skođun ađ borgarkerfiđ geti ekki gengiđ vel nema ţađ sé níđst verulega á einhverjum láglaunahópum. Ef ţeir fái leiđréttingu á bágum kjörum fari allt fjandans til. En velferđ byggđ á annarra ţrćlkun getur aldrei veriđ sönn eđa heilbrigđ sem slík. Mannkynssagan segir okkur ţađ međ víđtćkasta hćtti !

 

Konur í valdastöđum virđast ekkert síđur en karlar geta veriđ grimmar gagnvart lítilmagnanum, og sú stađhćfing ađ ţćr séu betur til ţess fallnar en ţeir ađ finna lausnir á samfélagslegum vandamálum, er löngu hrunin, enda var hún aldrei annađ en kynbundinn áróđur. Eđlisfar fólks fer ađ sjálfsögđu ekki eftir ţví hvađ ţađ hefur í skrefinu !

 

Hálaunakona er oft ađ hugarfari eins og útspýtt afsprengi samsvarandi hálaunamanns. Hún hefur engu betri eđa meiri skilning á kjörum láglauna-fólks en hann. Hennar eigin kjör skipta mestu máli í hennar huga eins og hjá honum, og ađalatriđiđ er ađ ţau haldist sem hćst. Ţannig er yfirleitt hugsađ í gegnum háu launakjörin hvort sem í hlut á karl eđa kona !

 

Réttlćtistilfinning og sanngirni hefur ekkert veriđ uppi á borđinu af hálfu borgarvaldsins í ţeirri ,,ekki samningagerđ” viđ láglaunahópa innan borgar-kerfisins sem á ađ hafa veriđ í gangi undanfarna mánuđi. Ţađ hljóta allir ađ geta séđ sem frábitnir eru ţrćlahalds-hugsun og tilsvarandi ranglćti !

 

Ţađ sem hefur hinsvegar veriđ í gangi og alla jafna uppi á borđinu, hefur veriđ einkakapítalismi borgarstjórnar-meirihlutans og reyndar er hann svo frekur og fyrirferđarmikill ađ hann hefur flćtt yfir allt borđiđ !

 

Ţegar svo er komiđ, ađ vellyst ríkjandi valdakjarna virđist vera farin ađ ráđa öllu, ţegar fólk sem hefur veriđ kosiđ til trúnađarstarfa fyrir almenning er hćtt ađ geta séđ til vega, og virđist ekki sjá neitt lengur nema eigin vellyst, ţarf sem allra fyrst ađ skipta ţví út !

 

Ţegar ţađ er sýnilega orđiđ blint gagnvart skyldum sínum og jafnvel fullt af hroka, er sannarlega kominn tími til ţess fyrir almenning ađ losa sig viđ ţađ og prófa nýja fulltrúa í brúnni. Ţađ er lýđrćđislega rangt í öllum efnum ađ styđja valdaklíku sem er orđin óhćf og spillt !

 

Almennir kjósendur í ţessu landi, jafnt í höfuđborginni sem úti á landsbyggđinni, eru ekki ađ biđja um spriklandi prímadonnur og kjarnalausa pótentáta sem fulltrúa sína í valdastólum. Fólk vill bara hafa ţar fulltrúa sem ţađ getur treyst, í sveitarstjórnum sem og borgarstjórn !

 

Ţegar kjörnir vinstrifulltrúar í meirihluta virđast komnir svo langt til hćgri í framferđi sínu, og sokknir svo í einhverja andstyggđar hópsérgćsku, ađ líkur geta veriđ á ţví ađ annar meirihluti gćti skilađ sér mun betur gagnvart hagsmunum og lífskjörum almennings, ţá er kominn tími til ađ gefa ţeim valkosti tćkifćri til ađ taka á málum !

 

Fólk á aldrei ađ styđja neitt ţađ liđ sem bregst skyldum sínum. Alveg sama undir hvađa merki ţađ ţykist ganga. Verkin sýna alltaf merkin. Núverandi borgarstjórnar-meirihluti virđist hćttur ađ gegna eđlilegu hlutverki sínu í lýđrćđislegum skilningi. Hann líkist miklu frekar í athöfnum sínum sérgćskufullum sirkushópi eđa ótrúlega sjálfhverfum vankasauđum !

 

Ţađ er ekki lengur um vinstri og hćgri ađ rćđa ţegar svo er komiđ. Kjarni málsins er einfaldlega spurning um traust. Ţeir sem hafa lengi fariđ međ völdin og gert ţađ illa, eiga ţví ađ víkja. Ţeir sem ausa almannafé í braggaskrifli en vilja ekki bćta kjör sem eru til skammar, eru ekki hćfir til ađ tryggja og viđhalda heilbrigđri ţjónustu viđ almenning !

 

Viđ slíkar ađstćđur ţarf ađ gefa öđrum valkostum lýđrćđislegt umbođ og tćkifćri til ađ sýna hvađ í ţeim býr. Ađeins ţannig er hćgt ađ leiđa í ljós hvort ţeir eru fćrir um ađ standa sig sem borgarfulltrúar eđa hvort ţeir falla líka á ţví manndóms-prófi - sem ţađ jafnan er - ađ ţjóna međ ćrlegum hćtti almannahagsmunum ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 435
  • Sl. viku: 1329
  • Frá upphafi: 317308

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1031
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband