Leita í fréttum mbl.is

Neyðarkall úr Norðurþingi !

 

Það er stöðugt unnið að því til eflingar miðstjórnarvalds á Íslandi, að leggja niður minni sveitarfélög, sameina þau stærri sveitarfélögum eða sveitarfélagi, flytja svo allt vald í einn herkastala á stóra staðnum og byggja þar upp skrifstofubákn. Ríkiskerfishítin í Reykjavík vill hafa þetta þannig út um landið því þá er auðveldara fyrir hana að ríkja og drottna !

 

Og margir ganga í þau verk sem þjóna þessum markmiðum, jafnvel reynslumikið fólk sem lengi hefur starfað á vettvangi sveitarstjórnarmála í landinu og veit fullvel að aukin miðstýring þýðir ekki aukið lýðræði. En þetta fólk fær umboð og fjármuni til ráðríkis frá kerfinu og leikur síðan hlutverk gyllingarpostula sameiningar-málanna !

 

Þannig er stöðugt verið að efla þá stöðu mála, að fólk í hinum dreifðu byggðum hafi sem minnst um eigin kjör og aðstæður að segja. Vald fólks í minni sveitarfélögum yfir eigin örlögum, er markvisst flutt á burt úr byggðinni og persónuleg tenging fólks við kerfið eyðist og verður að engu. Og á endanum fer valdið suður yfir heiðar í óðaþéttbýlið á hugsjónageldu höfuðborgarsvæðinu !

 

Og allt þetta sameiningarkjaftæði er unnið á þeim forsendum, að verið sé að hækka þjónustustig og gera almenningi lífið bærilegra. Það hefur hinsvegar alls ekki gengið eftir og víða vantað mikið á það. En fólk virðist falla aftur og aftur fyrir slíkum svika málflutningi og trúa því að allt verði betra eftir sameiningu. Þvílík meðferð á sakleysingjum samfélagsins !

 

Og áróðurinn fyrir svokallaðri sameiningarlausn er býsna skriðþungur og lýðskrumsfullur. Töfraorðið er : ,,Bara sameinast, þá lagast allt”……..! En það er aldrei neitt ákvæði um að hægt verði að fara til baka !

 

Borgari á Raufarhöfn hefur látið í sér heyra, kominn með ógleðina upp í háls og kok, og sagt að í Norðurþingi miðist allt við Húsavík. Hið sameinaða sveitarfélag þar er Húsavíkurríki. Það er ekki hlustað á aðrar raddir en röddina þaðan. Hún hefur burðina til að hafa hæst !

 

Þar fyrir austan er svo Þórshafnarríkið, og eins og menn vita, miðast allt í því sameinaða sveitarfélagi við þann höfuðstað. Bakkafjörður hefur þar lítið vægi og hið lofaða aukna þjónustustig hefur lítið komið við á þeim stað. Í Eyjafirði er Akureyri náttúrulega miðpunkturinn, í Skagafirði er valdapóllinn Sauðárkrókur, þó fríríkið Akrahreppur haldi enn frelsi sínu, til mikils angurs fyrir sameiningarsinna. Í Húnavatnsþingi austanverðu stefna sameiningarsinnar að því að byggja upp framtíðar valdamiðstöð á Blönduósi !

 

Kerfishítin og Reykjavíkurvaldið styður allt þetta brambolt og þaðan er það líka komið. Það er ekki hikað við að tala niður til litlu sveitarfélaganna og krefjast þess að þau sameinist í þúsund manna einingar !

 

Og þingið svokallaða virðist alltaf tilbúið í að styðja landsbyggðarleg óhæfuverk af ýmsu tagi, enda Reykjavíkurvaldið í yfirvaðandi stöðu þar og í reynd til alls trúandi. Enginn þarf að vænta skilnings frá þeirri samkundu frekar en fyrri daginn, enda er það klárlega mín skoðun að alþingi hafi aldrei verið verr skipað en nú er og hefur þó mannvalið þar oft áður verið í þynnra lagi og lítt endurspeglað þjóðarviljann !

 

Þessi sameiningarkrafa felur í sér valdboð af versta tagi, með frelsissviptingarákvæðum gagnvart almennu mannfrelsi og slík vinnubrögð kerfisins munu draga á eftir sér viðvarandi samfélagslega ósátt til framtíðar í mörgum byggðarlögum, sem mun draga úr allri samstöðu. Það er bara valtað yfir fólk !

 

Miðstjórnarvaldið í höfuðstaðnum er stundum svo mannfélags-fjandsamlegt að maður á bara erfitt með að trúa að menn viðhafi slíkt framferði hérlendis. Verð ég þó seint sakaður um að bera mikið traust til kerfisins sem er í raun að minni hyggju lítið annað en nokkurskonar valdapýramídi hrokafullra skíthæla !

 

Þegar meirihluti gengur fram með offorsi í því að kúga minnihluta er ekkert lýðræði á ferðinni. Það er bara kerfislegt ofbeldi. Engin mannréttindi eru virt með slíkum vinnubrögðum. Þeir sem starfa þannig munu uppskera hatur margra samborgara sinna og því meira hatur sem lengra er gengið !

 

Þurfum við virkilega á slíkum ófriði að halda í viðbót við kvótakerfis-spillinguna og óánægju-eldinn í þeim málum og annað sem að er í þessu landi, sem á þó víst að heita lýðveldi - en að því er virðist - í viðvarandi skammar-tengslum við banana-forskeytið ?

 

 


Ofsóknirnar gegn Musterisreglunni !

 

 

Liðin tíð hefur margt að geyma og sumt af því er dularfullt og talar jafnvel inn í okkar tíma og áfram. Mikilvæg þekking, sem hafði áunnist á fyrri tímum fyrir eljustarf djúphugulla spekinga, vildi stundum glatast í gegnum stríð og hörmungar og meðfylgjandi eyðileggingar heimilda. Þá urðu menn að leita brunnanna aftur !

 

Sumir komust langt í þekkingarleit sinni og meðal slíkra voru Musterisriddararnir, sem byggðu upp hina miklu riddarareglu, sem var einvalalið kaþólsku kirkjunnar í krossferðunum. Reglan hafði á hendi viðamikla umsýslu víða um lönd, jafnt andlega sem efnalega. Meðal annars stundaði hún lánastarfsemi og bankarekstur !

 

Þau umsvif munu hafa stuðlað einna mest að falli reglunnar. Brátt var svo komið að mörgum lék öfund á gengi hennar og að margra mati var reglan orðin allt of auðug og voldug. Konungar og kirkjulegir valdamenn höfðu lengi fengið lán úr sjóðum hennar og voru orðnir henni stórskuldugir !

 

Sú mun hafa verið aðalástæðan fyrir því að slíkir aðilar vildu koma reglunni fyrir kattarnef. Páfakirkjan var þá í sögulegri lægð eftir margvíslegar valdadeilur innan stofnunarinnar og aðsetursstaður páfa var ekki lengur í Róm heldur í borginni Avignon í Frakklandi. Setti kirkjan mikið ofan við þá breytingu !

 

Klemens V. páfi var ekki merkilegur maður og í raun bara leppur Filippusar IV. Frakkakonungs. Filippus var grimmur maður og fláráður og mjög óvandur að meðulum. Hann var á meðal þeirra sem skulduðu reglu Musterisriddaranna mikið fé !

 

Kóngsi mun hafa hugsað sitt ráð og ákvað að losa sig við skuldirnar með því að eyðileggja lánardrottin sinn. Á nánast sama tíma og hann ákvað þannig að ráðast gegn Musterisreglunni og gera út af við hana, gerði hann Gyðinga landræka frá Frakklandi. Hann skuldaði nefnilega einnig aðilum í Gyðingasamfélaginu franska mikið fé. Það var sýnilega engum til ávinnings að lána Filippusi Frakkakóngi fé !

 

Þegar kirkjan og konungsvaldið lögðust þannig á eitt við að koma Musterisreglunni á kné og ræna hana, var erfitt um varnir. Þessi fjandskaparöfl reglunnar svifust einskis og aðrar kristnar riddarareglur gengu jafnvel í lið með þeim í von um bita af ránsfengnum. Kirkjan afhenti þannig Jóhannesar-riddurunum síðar hluta af eignum Musterisreglunnar og létu þeir sér það vel líka. Þannig var bræðralagsandinn !

 

Kirkjan bar fyrir atbeina Klemensar V. allar hugsanlegar sakir á musterisriddarana. Þeir áttu að vera villutrúarmenn, trúníðingar og svikarar við heilög málefni kirkjunnar, upp til hópa. Þeir voru síðan í framhaldinu handteknir hvar sem til þeirra náðist, settir í fangelsi, og pyntaðir til að játa á sig ýmsar sakir. Svo var hugmyndin að láta þá rotna til æviloka í kastaladýflissum hér og þar !

 

En þá brá svo við að tveir helstu menn reglunnar tóku aftur játningar sínar og kváðust frekar vilja deyja en bjarga lífi sínu með því að játa á sig rangar sakargiftir. Samt höfðu þeir þá verið búnir að búa við pyntingar og fangelsisáþján í um sjö ár. Vopnin snerust við þetta í höndum ákærenda þeirra og Filippus konungur og Klemens páfi leppur hans, urðu ofsareiðir. Þeim hafði mistekist að buga þessa menn !

 

Filippus lét snarlega færa þá út í eyjuna Ile des Juifs á Signu, andspænis Notre Dame, og brenna þá þar á báli við hægan eld svo þjáningar þeirra yrðu sem mestar og langvinnastar. En fljótt kom í ljós að almenningur leit á þessa menn sem píslarvotta, enda tóku þeir dauða sínum með miklu hugrekki og létu engan bilbug á sér finna. Fórnarlömbin voru Jacques de Molay stórmeistari reglunnar og Geoffroi de Charney !

 

Ofsóknirnar gegn Musterisreglunni höfðu hafist strax við handtöku Molays og félaga hans og riddarar reglunnar voru brenndir sem villutrúarmenn í tugatali, ekki síst í Frakklandi, þar sem sagan sýnir að oft hefur verið stutt í villimennskuna. Aðrir konungar eltu þó Filippus í þessu framferði, enda var ágirnd undirrót árásanna á regluna og hún var óþrotleg eins og alltaf, jafnt hjá ríki og kirkju !

 

Skuldunautar reglunnar losuðu sig með þessum hætti við að gjalda henni fengin lán og hirtu eignir hennar í ofanálag. Þó mátti konungsvaldið hafa sig allt við til að halda sínum hluta ránsfengsins fyrir græðgi páfakirkjunnar og preláta hennar !

 

Rógburðar-herferð kirkjunnar gegn Musterisriddurunum var svo harðvítug og lengi við lýði, að löngu síðar skilaði hún sér í ýmsum skrifum manna eftirtímans, þar sem þeim var yfirleitt lýst sem hinum verstu mönnum. Það varð nánast að vanaviðkvæði !

 

Jafnvel menn eins og Walter Scott féllu í þá fordæmingar gryfju. En Scott var svo sem ekki þekktur að því að láta sagnfræðileg sannindi þvælast fyrir í skáldsögum sínum og þess urðu Musterisriddararnir að gjalda, meðal annars í lýsingum hans á þeim í bókum hans Ívari hlújárn og Kynjalyfinu !

 

Enn er trúlega langt í að Musterisreglan fái sanngjarna dóma fyrir merkan feril og margvísleg afrek, því margir enduróma enn í dag staðlitla fordæmingu kirkju og konungsvalds á reglunni. Og það gera menn hikstalaust, þó fyrir liggi hvað fékk þau öfl til að ræna og eyðileggja þessa öflugustu riddarareglu kristninnar sem oftsinnis mun hafa sannað ótvírætt þjónustugildi sitt !

 

Öld af öld má sjá að ávextir mannlífsins hafa að mestu verið eitraðir og spilltir. Út af þeim hefur nánast allt sýkst. Hið eitraða andrúmsloft nútímans er nákvæmlega það sem mannskepnan hefur gefið af sér til þessa og ekki síst síðustu tvær aldirnar eða svo, það andrúmsloft hæfir henni og mun sennilega ganga frá henni að lokum !

 

Það fer sem sagt að líða að skuldadögunum því lánardrottinn lífsins, hin óspillta náttúra hér á jörð, lánar ekki lengur. Hennar forðabúr er ekki lengur fyrir hendi. Þar hefur allt verið sett á hvolf með linnulausri rányrkju. Mannkynið er þar í vanskilum á öllum sviðum og verður það vafalaust þann skamma tíma sem eftir er !

 

 

 

 


Tímaskekkja og tálsýn - frá upphafi !

 

 


Þegar Ísland varð fullvalda ríki, tók dansksinnaða embættismannaklíkan sem hér hafði stjórnað kerfinu að sér að hanna þær breytingar sem hér þurfti að gera. Þær urðu því að sjálfsögðu í anda danska ríkiskerfisins sem var svo aftur í anda annarra ríkiskerfa, sem miðuðu allt sitt við hrokafulla ráðsmennsku yfir almenningi. Þjóðarheill var þar því aldrei forgangsmál eða að neinu leyti sú meginforsenda sem málum réði. !

 

Í stað þess að byggja uppbyggingu hins nýíslenska fullveldis á kerfislegri einföldun, með hliðsjón af þjóðveldislegum grundvallarforsendum, var farið í að auka flækjustig ríkiskerfisins til að almenningur gerði sér síður grein fyrir því hvað væri verið að gera. Svo var tekin upp hin snobbaða eftiröpun á útlendum kerfishégóma, fálkaorðan og fleira fánýti !

 

Embættismannaliðið hugsaði vafalaust með sér, að gætu menn ekki lengur orðið danskir dannebrogsmenn, skyldi séð til þess að menn gætu orðið hliðstæða þess á íslenska vísu. Tauhálsar ráðuneyta og stofnana yrðu áfram að eiga fulla völ á því að geta verið orðum skreyttir alikálfar innan hinnar breyttu ríkisskipunar - alveg eins og tíðkaðist erlendis !

 

Þjóðfrelsisdraumar íslenskrar sjálfstæðisbaráttu skyldu því strax settir í bönd kerfislegra takmarkana og hafta eins og frekast væri unnt. Baktjaldaráðamenn fóru því auðvitað strax að huga að slíkri útfærslu mála, á hinn óþjóðlegasta hátt, eins og þeirra var von og vísa. !

 

Og þannig tók þetta dansk-skólaða embættismannalið völdin á fullvalda Íslandi og sá til þess með þrælseðli sínu að sem flest væri í fyrra fari. Svo úreltu þingin urðu sem fyrr hátt upp hafin, af þeirri afturhaldssinnuðu og óþjóðlegu valdaklíku, þvert gegn frjálsbornum íslenskum anda. Uppskera fullveldis-áfangans varð því önnur og verri en sáningin hafði kallað eftir !

 

Svo varð lýðveldið í fyllingu tímans að veruleika, einkum fyrir pólitíska náð og miskunn stjórnvalda í Bandaríkjunum og Bretlandi. Enn sem fyrr réðu erlend öfl þeirri framvindu sem varð. Og enn einn hégóminn var tekinn upp, í tilgerðarbúningi forsetaembættis. Fyrsti handhafi þeirrar vegtyllu var svo auðvitað innanbúðar-maður úr embættismannakerfinu, sem var á alla kanta sem klæðskerasaumaður í embættið !

 

Þar með varð lýðveldisstofnunin látin búa að sama falska ferlinu og fullveldisstofnunin áður. Og síðan hafa meira og minna uppskrúfaðir forsetar lýðveldisins, allir sem einn, fundið einn mesta unað sinn í embættinu í hégómaverkum, svo sem þeim að hengja fálkaorður á mann og annan, útlenda menn sem innlenda !

 

En það er svo undarlegt, að hinn almenni Íslendingur hefur aldrei lært að bera virðingu fyrir þessu ætlaða upphefðarglingri. Það er einhvernveginn ekki til staðar í þjóðlegri eðlisvitund Íslendinga að gleypa við slíku uppfyllingarefni. Orður höfða ekki til hins sanníslenska anda. Þær bera ekki með sér neinn vitnisburð um lífsstöðu frjálsra manna !

 

Þær voru teknar upp hér á sínum tíma að tilhlutan danskra íslendinga, og hafa aldrei notið neinnar virðingar sem almenn íslensk heiðurstákn, nema innan þeirra kerfishópa sem bjuggu og búa enn að geldri sálarhugsun þeirra sem lágu alla tíð hundflatir fyrir hégómasiðum herraþjóðarinnar !

 

Forsetaembættið, ásamt orðuveitingum sínum og öðrum hégóma, er óíslenskt að eðli og inntaki, uppsleikt sýndarmennskufyrirbæri erlendis frá. Við höfum ekkert með það að gera og það hefði aldrei átt að taka það upp hérlendis. Það hefur verið tímaskekkja og tálsýn frá upphafi. Sú gervimennska sem felst í því er okkur sem þjóð bara til skammar !

 

Við eigum að leggja þetta tuskuembætti niður og það sem fyrst, ásamt fálkaorðunni og öðru því sem í raun er ekkert nema vansi fyrir þjóðveldislega frelsishugsun íslensku þjóðarinnar. Látum ekki blinda okkur með slíkum falsgljáa-gyllingum sem innifela ekkert nema snobb !

 

Stefnum að því sem fyrr að lifa - í raun og veru – sem frjálst fólk í frjálsu landi og látum ekki hina margbölvuðu Farísea dulbúinnar kerfiskúgunar og stöðugs embættishroka fjötra okkur áfram og kefla með þeim lúmska hætti sem svo lengi hefur verið gert. Við getum ekki staðið keik fyrr en því marki er náð !

 

Lýðræði á að fela það í sér fyrst og fremst – að valdið sé og eigi að vera fólksins !

 

 


Hræðsluáróðurinn -

 

 

Það var talað hér forðum um Tyrki

sem tilvistar ógnandi vá.

Og rómurinn vandræða virki

það vissi til fullnustu þá,

þeim fylgdi sá forherti og myrki

fjandi sem Helvíti á.

 

Í ástandi aumu og bágu

og einkum á kotum við sjó,

á útkíki einatt menn lágu,

því ekkert gaf huganum ró,

svo hræddir við Hundtyrkja-plágu

að hjartað í brókunum sló.

 

Þeir töluðu um Eyjar og annað

og ýmsu í talið var slett.

Þó sumt væri kannski ekki sannað

og sumt væri alls ekki rétt.

En enginn gat krufið né kannað

af kunnáttu neina þá frétt.

 

Svo ýkjur með fullkomnu flæði

þar fylltu í sagnanna tóm.

Þær mögnuðu beiskju og bræði

og báru svo málin í dóm.

Svo löngum varð útkoman æði

og upphafið fengið frá Róm.

 

Með Tyrkjaráns-hættuna á heilum

fólk húkti við skilyrðin ljót,

svo altekið innrættum veilum

að ekkert gat staðið í mót.

Og andinn frá útlendum deilum

var allur af fordóma rót.

 

Þó Vínarborg tækist að verja

þá var ekkert öryggi til.

Því Tyrkinn var hamslaus að herja,

í heiftugum gjörningabyl.

Það skreið ekkert þar milli skerja

né skilaði neinu í vil.

 

Sú staða er líka við lýði

að líta á suma sem pest,

í samtímans siðlausa stríði

og svíkja og ljúga sem mest.

Þar hampað er hóflausu níði

svo hræðslan af fréttunum sést.

 

Um Rússana mörg er þar messa

svo magnþrungin borin um svið.

Og Kínverjar hreint ekki hressa

þar hagsmunastöðuna við.

Það er höggvið í hina og þessa

og hugsað um annað en frið.

 

Með veröld í vandræða klúðri

menn viðhalda lyginnar seið.

Og eyða í það ævinnar púðri

að úthrópa sannleikans meið.

En gleypa við glóðheitu slúðri

og glórunni tapa um leið.

 

En allt það sem aftengist skyni

fer illa með veraldarlýð.

Það fjötrar jafnt fjendur sem vini

í fordóma blekkingahríð.

Með óhróður einan í gini

er alið á kröfu um stríð !

 

                      Rúnar Kristjánsson

 

 


Hvaðan, hversvegna, hvert ?

 

Við þekkjum það öll að lífið er hverfult og það á sín endamörk í þeirri mynd sem við þekkjum það.

Þær raddir sem við höfum þekkt og kunnað að meta, hljóðna að lokum eins og okkar eigin rödd hljóðnar einhvern daginn. Það er gangur lífsins eins og menn segja, en þó öllu heldur gangur dauðans, því það er hann sem rýfur framvinduna og breytir öllu !

 

Jafnvel í bloggheimum finnum við fyrir þessu, því þar er sama lögmálið að verki. Raddir rísa, raddir hljóðna. Raddir margra sem þar hafa látið til sín heyra eru þagnaðar og stundum gerist það snögglega. Menn ræða dægurmálin fram á síðustu stund og svo eru þeir skyndilega horfnir. Staðreyndir lífsins eru oft dapurlegar og ekki síst þær sem tala um óhjákvæmilegan aðskilnað !

 

En allt frá byrjun gengur lífsferlið út á það að það verði aðskilnaður. Að lokum og stundum allt í einu hljóðna raddirnar í kringum okkur, við heyrum þær ekki lengur. Manneskjur hætta að vera til fyrir sjónum okkar og við finnum þær ekki framar nema í minningum frá liðnum tíma !

 

Það er dapurleg framvinda og enn í dag, þrátt fyrir allar hinar miklu framfarir í tækni og efnislegum hlunnindum, erum við engu nær um hinar þrjár meginspurningar lífsins. En þær eru samt á stöðugu róli í sálum okkar og öllu hugsanalífi. Þar hljóma þær óaflátanlega og biðja um svör. Við þráum öll að vita svörin við þeim. Hvaðan komum við, hversvegna erum við hér, hvert förum við ?

 

Í bloggheimum er tekist á um margt. Menn hafa misjafnar skoðanir á nánast öllum hlutum. Menn deila um alla skapaða hluti og stundum býsna óvægilega. En í raun eru það þessar fyrrnefndu höfuðspurningar sem brenna á öllum. Og berlegt er, að heimslegar framfarir, aukin tækni og yfirlýst menntunarsókn skilar okkur engu í því sambandi. Það allt heldur okkur öllu frekar fjær svörum !

 

Til hvers er þá þetta allt ? Þessi tilvera sem virðist ekki búa yfir neinni andlegri þroskasókn, þar sem allt virðist snúast í heimskulega hringi ömurlegrar sérgæsku, nánast frá vöggu til grafar ? Það er engin merkjanleg stefna hærra og upp, allt rekur að því er virðist á reiðanum norður og niður. Hverskonar sjónarspil er þetta líf eiginlega, þar sem allt virðist enda með óhjákvæmilegum dauða ?

 

Eitt er víst, að í allri hinni sjálfumglöðu þekkingu okkar liggur það ljóst fyrir – að við vitum ekki neitt. Við þekkjum ekki orsakir og afleiðingar þess lífs sem við lifum. Við vitum ekkert hvað verður um okkur og hvað felst í hinum svokölluðu vistaskiptum. Við erum á nákvæmlega sama stigi og einfaldi vinnumaðurinn sem sagði um miðja nítjándu öldina, spurður hvað hann héldi að yrði um hann eftir dauðann, og svaraði ,, ég læt það bara ráðast !”

 

En einhversstaðar hljóta að finnast svör og víst er að þeirra er hvorki að leita í yfirfljótandi tæknistigi né yfirborðskenndri menntun. Ef svo væri myndum við finna að eitthvað hefði miðað áleiðis. En okkur hefur í raun heldur miðað afleiðis og nú eyðum við tíma okkar í að umfaðma allskyns skurðgoð fánýtis og hégóma !

 

En dauðinn mun koma og banka að dyrum einn daginn. Við finnum fyrir honum þegar raddirnar hljóðna í kringum okkur, við finnum fyrir honum í bloggheimum og hvar sem er. Þegar ein rödd er þögnuð og horfin er samhljómur lífskórsins ekki lengur sá sami !

 

Af hverju leitum við alltaf hinna dýpstu svara á kolröngum stöðum ? Af hverju sitja menn við falskar uppsprettur lífið út í gegn og bíða sannleikans þar ? Eigum við enga von um að heyra aftur raddir þær sem við höfum elskað ? Höfum við fengið glötunina eina í vöggugjöf ?

 

Af hverju göngum við í myrkri, fyrst við vitum í sál okkar að ljós er til ? Erum við orðin svo tæknileg og efnisleg að við höfnum því að vera andleg ? Þurfum við ekki öll fyrst og fremst á því að halda, að vera endurborin til lifandi ljóss og þess samfélags sem dauðinn getur ekki sigrað ?

 


Notum skynsemina gegn glóruleysinu !

 

Heimsbyggðin er í þeirri stöðu að geta verið sett hvenær sem er í ægilegar aðstæður, eingöngu á forsendum persónulegra hagsmuna einstakra valdamanna. Það er vont að lifa við þá staðreynd !

 

Það dylst til dæmis engum sem rýnir í kortin, að töluverð aukning hefur orðið á síðari árum af óhæfum forustumönnum, sem hafa sleikt sig upp í valdastóla með lygum og lýðskrumi. Slíkir menn eru og verða alla tíð háskagripir og ávísun á slæma hluti og myndu raunar hvergi ná því að verða leiðtogar ef vitræn afstaða og heilbrigðar aðstæður réðu kjöri !

 

Hvað halda menn til dæmis að Trump Bandaríkjaforseti gerði, ef hann teldi víst og tryði því að stríð við Íran myndi tryggja honum endurkjör í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum ? Væri þá eitthvað verið að velta fyrir sér þjáningum milljóna manna af völdum slíks stríðs, yrði ekki bara hjólað undir blikandi stjörnufánum stórveldisins í enn eina helförina í Mið-Austurlöndum ?

 

Trump hefur að vísu oft talað um að fækka í herliði Bandaríkjanna víða um heim og segist öllu jafna vera andvígur stríði, en orð og gerðir virðast því miður sjaldan fylgjast að í háttalagi hans, enda maðurinn hið mesta ólíkindatól. Það er því erfitt að vita upp á hverju hann kann að taka ?

 

Hvar er annars friðurinn sem átti að komast á í Írak fyrir tilstilli Bandaríkjanna ? Eftir því sem best verður vitað, hefur ástandið í landinu eftir Flóastríðin lengstum verið miklu verra en meðan Saddam Hússein var og hét. Var hann þó enganveginn góður !

 

Hvað hefur unnist í Afghanistan ? Hvernig hefur verið farið með Sýrland ? Hvar er Libýa á vegi stödd ? Öll þessi ,,frelsuðu” lönd búa við stóraukið og margfaldað helvíti stríðs og neyðar – eftir bandarísku hjálpina !

 

Á nú kannski að bæta ,,frelsun” Írans við á bandaríska bjargráðalistann og gera öll Miðausturlönd að kraumandi nornakatli ótakmarkaðra stríðshörmunga til margra ára, í viðbót við það sem þegar er búið að skapa ? Og verður það kannski niðurstaðan, og þá helst til þess að tryggja óhæfum bandarískum forseta endurkjör ?

 

Bandaríkin hafa lengi viljað vera ráðamest í heimsmálunum, en þau eru sem stendur sjálf forustulaus í þeim efnum. Forstjórinn í Hvíta húsinu virðist eins þekkingarlaus varðandi alþjóðlega pólitík eins og hægt er að vera. Hann treður jafnvel illsakir við nánustu stuðningsríki Bandaríkjanna !

 

Skilningur hans á milliríkjamálum virðist nánast enginn og hann reynir oft að bæta upp það augljósa vanhæfi sitt með ótíndum hroka. Og sú breytni hefur iðulega orðið honum til hinnar mestu skammar !

 

En það sem er kannski verst, er að gegn þessum ómögulega valkosti, sem Trump svo sannarlega er, virðast demókratar ekki geta stillt upp neinum verulega frambærilegum manni, enda virðast þar helst í boði afgamlir og heilsutæpir kerfisjálkar. Hafa demókratar virkilega engum á að skipa sem getur staðið fyrir einhverri nýskipan í bandarískum stjórnmálum, engum manni sem getur boðað raunhæfa framtíðarsýn, nýja New Deal stefnu ?

 

Forustu hins vestræna heims er í vondum höndum þar sem Bandaríkjamenn eru. Átökin milli einræðistilburða Trumps forseta og lýðræðislegra grundvallarsjónarmiða bandaríska stjórnkerfisins eru mjög hættuleg og þarf ekki mikið að fara úrskeiðis þar til að þau valdi varanlegum skaða, jafnt heima fyrir sem á heimsvísu. Lýðræðið er víða í hættu í þessum heimi og jafnvel þar sem síst skyldi !

 

Í umræddum átökum er verið að leika sér að eldi sem gæti breiðst út í mannkyns-bölvuðu margfeldi og yrði ekki slökktur svo glatt. Hinir ægilegu Ástralíueldar myndu ekki þykja mikið mál í þeim samanburði !

 

Margir eru úlfar í sauðargæru, margir eru kosnir til góðra verka, en svíkja síðan allt sem þeim var trúað til að gera. Jafnvel Hitler var kosinn í upphafi með lýðræðislegum hætti. Þvílíka heimsbölvun dró sú kosning á eftir sér !

 

Nú er hægt með fullum rétti að segja að ýmsir smáhitlerar séu hér og þar við völd. Hvernig stendur á því, lærum við aldrei neitt ? Af hverju er ekki hægt að losna við slíka óværu af skildi mannkynsins ? Eru menn aftur farnir að sá fyrir tilkomu einhvers Stórhitlers, kannski Antikrists ?

 

Lýðræðið í heiminum á vissulega marga óvini og við skulum ekki gleyma því að það á sér ekki langa sögu. Það er með öðrum orðum hægt að koma því á kné og nógir virðast fúsir til þess verks. Viljum við að það verði ?

 

Við erum sannarlega ekki að troða veg til velferðar með mörgu af því sem við gerum. Það er löngu tímabært að taka upp aðra stefnu. Ef mannkynið og framtíð þess á að geyma í sér gildið mesta í þeirri stefnumörkun, verður mörgu að breyta. Það ætti ekki að dyljast neinum manni !

 

Og nú höfum við ekki einu sinni efni á því að bíða með slíkar breytingar. Lífið á blessaðri jörðinni okkar er nefnilega á beinni dauðaleið, það er að kafna í mengun og skít. Jafnvel börnin eru farin að skilja það !

 

Víst er að ef Donald Trump verður endurkjörinn forseti Bandaríkjanna í nóvember næstkomandi, verður það engu til stuðnings - nema óbreyttum helstefnuháttum mannkynsins – áframhaldandi dauðaleið !

 

Og því miður virðist mannkynið enn sem fyrr vera villuráfandi og algerlega ófært um að bjarga sér til áframhaldandi lífs á þessari jörð !


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Jan. 2020
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 364
  • Sl. viku: 1260
  • Frá upphafi: 316650

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 988
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband