Leita í fréttum mbl.is

Nokkur orđ um neytendamál og lýđrćđi !

Jóhannes Gunnarsson hefur lengi leikiđ hlutverk Ralph Naders í málum íslenskra neytendasamtaka. Hann er búinn ađ vera svo lengi í forustu á ţessu félagslega sviđi, ađ enginn virđist muna til ţess ađ ţar hafi einhver annar lagt hönd á plóg. Rödd Jóhannesar hefur hljómađ í fjölmiđlum í árarađir og hann hefur varađ viđ ţessu og hinu, alvarlegur í bragđi og oft međ miklum áhersluţunga. En hann virđist yfirleitt láta ţar viđ sitja. Svo heyrist ekki meira og heldur lítiđ gerist.

Einhvernveginn finnst manni ađ svo reynslumikill mađur, sem Jóhannes hlýtur ađ vera eftir allan ţennan starfstíma, eigi ađ geta bent á einhverjar góđar leiđir til lausna ţegar neytenda-vandamál eru annarsvegar, en ekki virđist hafa fariđ mikiđ fyrir ţví !

Og ţó ađ Jóhannes hafi líklega ekki veriđ yfirmáta hálaunađur mađur í starfi sínu, allavega miđađ viđ fyrirhruns gengi, er ţađ samt ćskilegt ađ skilgreindur árangur mćlist í gegnum störf hans eins og annarra og sé almenningi ljós.

Frjáls félagasamtök geta veriđ mjög öflugur vettvangur fyrir samfélagslegt umbótastarf, sérstaklega ţegar valddreifing og góđ félagsleg breidd er til stađar og mađur til ađ taka viđ af manni. Stundum er hinsvegar stađan sú ţar eins og í sjálfu stjórnkerfinu, ađ sömu menn stjórna málum allt of lengi og verđa vallgrónir í sínum valdastólum.

Neytendasamtökin virđast í margra augum helst vera einhverskonar hreiđur fyrir Jóhannes Gunnarsson og ef svo er, er ţađ ekki nógu gott. Ţau voru eiginlega ćtluđ til gagns og gćđa í víđari skilningi.

Líklegt er - ađ ef einhver yfirmáta skilningsríkur neytandi vćri spurđur um Neytendasamtökin gćti viđtal viđ hann sem best innifaliđ eftirfarandi efni:

„Hvađ eru Neytendasamtökin ?"

„Ţau eru Jóhannes Gunnarsson ! "

„Til hvers eru Neytendasamtökin ? "

„Til ađ skapa Jóhannesi Gunnarssyni framfćrslu !"

„Er ţörf á Neytendasamtökunum ?"

„Jóhannes Gunnarsson ţarf ađ lifa eins og ađrir ! "

 

En Neytendasamtök ţurfa auđvitađ ađ vera eitthvađ meira en einn mađur, jafnvel ţó hann kunni hugsanlega ađ vera nokkuđ góđur. Og ţví er löngu kominn tími til ađ hrist sé upp í ţessum samtökum og hćtt viđ ţetta ćviráđningarkerfi sem ţar virđist vera viđ lýđi.

Ţađ ţarf ađ gefa Jóhannesi Gunnarssyni frí svo hann geti notiđ ţess ađ vera almennur neytandi í ţessu landi og vćntanlega glađst í ţeirri stöđu yfir árangri eigin verka.  Eftir áratugalangt starf hans í formennsku Neytendasamtakanna  skyldi mađur ćtla ađ ţađ ćtti ađ vera orđiđ sćmilega gott hlutskipti ađ vera almennur neytandi á Íslandi !

Jóhanna Sigurđardóttir sagđi eitt sinn sem frćgt var, ađ hennar tími myndi koma og ţađ varđ. En tíminn stendur aldrei í stađ og tími einstaklinga í embćttum og valdastólum má ekki vera of langur. Menn ţurfa ađ geta hugsađ eins og Nelson Mandela : „ Nú er minn ráđsmannstími liđinn og komiđ ađ öđrum ađ taka viđ !"

Hćfileikaríkir einstaklingar eru víđa til og slíkir geta komiđ mörgu góđu til leiđar um tíma, en ţađ er aldrei gott ađ menn festist til langframa í ákveđnum embćttum og fari ađ líta á ţau sem ćvitryggt hlutskipti.

Bitiđ vill oft fara nokkuđ fljótt úr eggjum framtaksviljans og athafnaseminnar ţegar menn leggjast ţannig viđ stjóra og nýir vendir sópa best.

Ţađ skiptir engu hvort viđ tölum í ţessu sambandi um sjálft forsetaembćttiđ, formennskuna hjá Neytendasamtökunum eđa bara sveitarstjórastöđuna á Skagaströnd !  Ţađ er bara ekki af ţví góđa ađ menn festist í hlutunum til langframa og lifi ţar bćđi sjálfa sig og ađra. Endurnýjun er nauđsyn međ vissu millibili og lýđrćđinu er enginn greiđi gerđur međ embćttislegri ćviráđningu einstaklinga.

Neytendur ávaxta lýđrćđisins ţurfa jafnan ađ eiga ađgang ađ tiltölulega ferskum afurđum, en ferskleiki áratugagamals setuliđs í embćttum er auđvitađ löngu horfinn og bragđgćđin ţar oft orđin í stađinn beiskju hlađin !

Viđ ţurfum öll sem eitt ađ geta búiđ viđ nćringarríkar ađstćđur sem neytendur lýđrćđis á samfélagslegum vettvangi, og ţessvegna ţurfum viđ ađ gera okkur fulla grein fyrir ţví ađ í stöđnuđu lýđrćđi felst engin hollusta fyrir land og lýđ.

Mosagrónir embćttismenn ţurfa ađ víkja svo ferskleikinn fái ađ ríkja !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 32
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 1207
  • Frá upphafi: 316806

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 891
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband