Leita í fréttum mbl.is

"Þöggunarstöðvar þjóðfélagsins" !

Uppbygging mannlegs samfélags hefur um heillar aldar skeið eða þar um bil, verið sögð taka sterkast mið af velferð þegnanna - af almannaheill ! Hvernig hlutirnir voru þar áður er ekki efni þessa pistils né heldur hvað breytti málum, svo farið var að taka mið af hag þeirra sem alltaf höfðu gleymst.

Hér er bara ætlunin að fara nokkrum orðum um þetta grundvallar-sjónarmið í mannlegu samfélagi, að hafa hag heildarinnar í fyrirrúmi, og velta því aðeins fyrir sér hvernig til hefur tekist - ekki síst hin síðari ár.

Við skulum fyrst gera okkur grein fyrir því að engin þjóðfélagsleg réttindabarátta endar með fullnaðarsigri. Það geta unnist góðir sigrar og þá einkum fyrir öfluga samstöðu, en þegar værðin sækir á og slagkrafturinn minnkar, þegar fólk sofnar á verðinum, eru hlutirnir fljótir að leita í fyrra horf, því yfirleitt eru nógir til að þrýsta á það. Barátta fyrir réttindum þarf að vera viðvarandi og hún krefst þess að menn haldi vöku sinni - meðan lífið varir !

Í dag heyrði ég í Bjarna nokkrum Ben, öðrum með því nafni, en talandinn virðist mér sá sami og var í þeim fyrri. Viðkomandi er að vinna í því að lækka skatta á hærra þrep en hækka á lægra þrep, það er sanngjarnara, sagði þessi umræddi „verndarengill allra stétta"...... Sanngjarnara gagnvart hverjum ?  Skyldi maður ekki þekkja tóninn og vita hvað liggur að baki. „Af ávöxtunum skulið þið þekkja þá" sagði Frelsarinn forðum og ég veit nóg um Bjarna Ben og hans flokk til þess að fyrr frysi í helvíti en ég myndi nokkurntíma kjósa þá fordæmdu þjóðarbölvun yfir þessa þjóð. Dansinn í Hruna virðist vera að fara af stað aftur og Bjarni þessi er, að minni hyggju, vís til að reyna að sjá um það að hann gangi nokkuð vafningalaust fyrir sig í komandi tíð. En það verður aldrei þjóðvænn dans eða sanngjarn gjörningur !

En ég ætlaði að tala um stefnuna sem sögð er vera fyrir velferð allra. Það er varla von að maður geti haldið sig við það efni þegar maður fer að minnast á Bjarna Ben. Hann er stöðulega og stefnulega heilum ljósárum frá þeim sjónarmiðum.

Hvernig er velferð þegnanna í nútímasamfélagi tryggð ? Með allskonar eftirliti ! Og hvað ef eftirlitsstöðvarnar breytast í kerfislegar þöggunarstöðvar ? Margs er nefnilega hægt að spyrja í þeim efnum, er til dæmis landlæknisembættið eftirlitsstöð eða þöggunarstöð ? Er löggæslan til eftirlits eða þöggunar ? Er eftirliskerfið í heild kannski frekar þöggunarkerfi en hitt ?

Hvað oft höfum við verið vitni að því að upp hafa komið spillingarmál og mistakamál sem ekki áttu að geta komið upp vegna viðverandi eftirlits ? Og hversu oft hefur þá fulltrúi forsvarsaðilans komið fram og afsakað allt, sagt að allt yrði skoðað ofan í kjölinn og séð yrði til þess að slík mistök gætu ekki átt sér stað aftur ? Og svo hefur sagan endurtekið sig sex mánuðum síðar !

Það er eins og málið sé fyrst og fremst að þagga niður alla umræðu og umfjöllun fjölmiðla með því einu að lofa því að allt verði skoðað og skilgreint upp á ný. En efndir slíkra orða virðast láta standa á sér og kannski stóð aldrei til að efna neitt eða rannsaka nokkurn skapaðan hlut. Kannski er bara verið að kaupa sér frið með ódýrasta hætti, með því að segja eitt og gera svo ekki neitt ! Svo leggst kannski viðkomandi eftirlits-elíta bara aftur í sitt værðarból, á sínum varðmannslaunum, sem oft eru þó nokkuð drjúg, og falska öryggið fær að umvefja þjóðina áfram !

Hvaða tilgangur er í því, út frá þeirri hugsun að velferð allra þegnanna sé markmið allra markmiða og þungamiðjan í samfélagsgerðinni, að viðhafa þöggunartilburði af þessu tagi þegar vandamál koma upp, að svæfa hlutina en taka ekki á þeim, að sinna eftirliti sem er kannski ekkert eftirlit, að svíkja skyldur sínar við land og þjóð, við íslenskt samfélag ? Hvernig er yfir höfuð hægt að hegða sér svona ?

Sannaðist það ekki áþreifanlega í hinu manngerða efnahagshruni, að allt heila eftirlitskerfið var markleysa ? Við vorum látin borga milljarða fyrir falskt öryggi ?   

Og hver skyldi staðan vera í dag, eftir rannsóknarskýrslu alþingis og aðrar rannsóknir sem hafa nú kostað sitt af almannafé ? Ég er sannfærður um að hún er ekki mikið betri. Það er enn verið að leika sama, gamla skollaleikinn ! Við þurfum að læra að varast þessar Tamiflu-tryggingar kerfis og kauðahringa, sem eru ekkert nemna svikamyllur og svívirða út í gegn. Tilræði við velferð almennings !

Hvar sem kerfisbundin, lögskipuð eftirlitsstöð sinnir ekki hlutverki sínu og breytist í þöggunarstöð, þar er spilling í gangi. Það er eitt sem við getum verið viss um. Hvar sem almannahagur er svikinn og falskt öryggi á ferð, þar er spilling á ferðinni. Þar er verið að taka laun fyrir störf sem eru ekki unnin eins og á að vinna þau.

Var ekki krafa þjóðarinnar eftir hrunið, að allt yrði sett upp á borðið, að allt yrði gagnsætt og unnið að því að vinna upp traust aftur í samfélaginu, þar sem staðan var orðin sú að helst enginn gat orðið öðrum treyst ?

Eitt er víst að traust milli manna er ekki á uppleið og allra síst traust á fulltrúum kerfisins, sama hvort litið er til ríkisstjórnar, þings eða dómstóla. Fjöldi fólks segist finna spillingardauninn af kerfinu og fulltrúum þess langar leiðir!

Það þarf að sigrast á þessum samtryggðu þöggunarhagsmunum sem búa um sig í kerfinu og eru ávísun á ranglæti og vonda hluti, lög sem eru sett slíku til stuðnings eru ólög sem ekki ber að virða. „ Salus Populi Suprema Lex Esto" - VELFERÐ FÓLKSINS ERU ÆÐSTU LÖGIN !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 1196
  • Frá upphafi: 316795

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 889
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband