Leita í fréttum mbl.is

Er íslenski varnarmálaráðherrann á næsta leiti ?

Þegar ógnir steðja að þarf auðvitað að vera nóg af vopnum til varnar. Þetta veit lögreglan, sérsveitin, landhelgisgæslan og valdstéttin öll ! Og í Suður-Ameríku og víðar um heiminn hefur þetta verið vitað lengi og löngum verið séð til þess að hlutirnir væru í lagi þar hvað þetta varðar !

En þegar við hugleiðum þessi mál hérlendis, fer ekki hjá því að ein stór spurning vaknar. Hver er ógnin, hver er óvinurinn, hvern á að verja og gegn hverjum ?

Og svo mætti líka spyrja til hvers er lögreglan ? Á hún að verja almenning fyrir valdstéttinni eða valdstéttina fyrir almenningi ?

Á hún að vernda burgeisa fyrir reiði rændrar alþýðu eða verja hag fólksins í landinu þegar valdstéttin er að fara með hann til andskotans ?

Eða ganga hugmyndir blámanna og Valhallarvíkinga enn sem fyrr út á það að það verði að vopnavæða lögregluna í einhverri herbjarnarútfærslu gegn fólkinu í landinu ?

Þegar stór og mikill lögreglumaður, sem jafnframt er kunnur sem innvígður og innmúraður flokksmaður í stóra Þjóðarógæfuflokknum, skrifar dökkbláa ef ekki helbláa skýrslu um búsáhaldabyltinguna, eru þau öfl vissulega til sem vilja taka slíka skýrslu - af fyllstu alvöru - mjög til athugunar !

En hvernig átti skýrslan öðruvísi að vera en hún er frá þeim aðila sem tók hana saman ? Hún hlaut að vera í þeim anda sem hún er. Það segir sig sjálft !

Og í framhaldinu virðist tilgangurinn eiga að helga meðalið. Það virðist nefnilega kýrljóst að sumir telji þessa skýrslu vera afskaplega þarft innlegg í byssukaupa-málið mikla eða eigum við að segja byssugjafar-málið mikla ?

Stórmennska Íslendinga virðist vera slík gagnvart norrænni bræðraþjóð, að það eru gerðir samningar um kaup og svo er ekkert borgað. Og forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að það sé siðvenja - og líklega aldeilis gott, ef ekki bara heiður fyrir Norðmenn, að fá að eiga viðskipti við okkur – jafnvel með þessu fyrirkomulagi !

Yfirlýsingar íslenskra forsvarsmanna um málið virðast stangast verulega á við fullyrðingar Norðmanna um sömu hluti og samkvæmt fréttum telur forstjóri Landhelgisgæslunnar að talsmaður norska hersins hafi mismælt sig – skriflega – varðandi það sem átti sér stað í þessari einkennilegu viðskiptafléttu !

Skyldu Norðmenn fá borgað frá Nató fyrir þessa óvenjulegu rausn við landhelgisgæsluna okkar og lögregluna ? Það skyldi þó aldrei vera að þannig sé reynt að koma vígbúnaði til þjóðar sem hefur verið svo fötluð að hún hefur aldrei getað komið sér upp her – eins og siðmenntaðar þjóðir !

Ríkisstjórn Íslands virðist ekkert hafa vitað um málið og þingið þaðan af síður, enda virðist litið svo á að það þurfi bara að hafa eftirlit með byssukaupum almennra þegna þjóðfélagsins, en lögregla og aðrar kerfisvarnarsveitir megi byrgja sig upp af vopnum án afskipta og engum komi það við !

Og það verður að segjast, að þegar skýrsla er gerð sem margir telja að búi bara yfir pantaðri niðurstöðu, getur ekki verið um merkilegt eða trúverðugt plagg að ræða. Auðvitað bar að vinna slíka skýrslu af óháðum aðila, í stað þess að sækja hana inn í ákveðnar herbúðir !

En svona vinnubrögð virðast ærið oft viðhöfð hérlendis. Það er verið að gera eitt og annað í kerfinu af bullandi vanhæfum einstaklingum, mönnum sem eru hagsmunalega, starfslega, embættislega og þar af leiðandi siðferðilega, óhæfir til að fjalla um mál með þeim hætti sem iðulega er gert. Og svo á að leggja út af slíkum niðurstöðum eins og einhverjum staðreyndum !

Af hverju er þetta svona hjá okkur ? Erum við einhverjir helvískir bavíanar sem geta aldrei gert neitt rétt ? Hvenær skyldi íslenskt kerfislið fara að þroskast svo að það nálgist eitthvað einhver viðmið sem helgast af heilbrigðri réttlætishugsun og siðferðilegum heiðursgildum ?

Íslenska þjóðin hefur sannarlega sýnt mikið langlundargeð með því að hafa bara brúkað búsáhöld gagnvart því spillingarvaldi sem olli hér hruni og stal og sveik og rændi um allt land með svívirðilegum hætti. En jafnvel búsáhöld geta sjálfsagt þótt hættuleg í augum valdhafa sem hafa umgengist þjóðarhagsmuni af meira samviskuleysi en hér hefur þekkst til þessa !

Kannski er því verið að vígbúast af þeim sökum og kannski er íslenskur varnarmálaráðherra á næsta leiti ?

Skyldi hann verða skipaður um leið og Sérstakur saksóknari verður lagður af ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 1184
  • Frá upphafi: 316783

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 888
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband