Leita í fréttum mbl.is

Um hinar evrópsku uppeldisstöðvar öfga-múslíma !

Það er löngu orðið ljóst að einar helstu uppeldisstöðvar helstu öfga múslímanna eru evrópskar. Þar ber einna fyrst að nefna Bretland, síðan Svíþjóð, Noreg og Danmörku. Í þessum löndum hefur ríkt hjá ráðamönnum sú skoðun að það þurfi að koma á upplýstri umræðu milli aðila og þegar þeim áfanga sé náð verði allt í fullkomnu ferli varðandi gagnkvæman skilning og þar með í himnalagi.

Ég man eftir því að séra Karl Sigurbjörnsson, þá í embætti biskups, talaði talsvert um þessa upplýstu og vitrænu umræðu sem opnaði svo margar dyr og leysti svo marga hnúta . Hann eins og margir aðrir, sem gætu kannski flokkast undir það að vera einhverskonar veruleikafirrtir mannvinir, virtist hafa mikla elsku á að höfða til þessarar merkilegu umræðu sem bjargaði eiginlega öllu !

Ég velti því auðvitað um leið fyrir mér hvort þessir vesalings menn sem hafa að undanförnu verið miskunnarlaust hálshöggnir í beinni, hafi verið eitthvað andlega fatlaðir og því ekki verið færir um að rata á þessa kórréttu upplýstu umræðu, sem á víst að gera grimma og blóðþyrsta ofstækismenn að sönnum ljúflingum ?

Hvenær skyldu stjórnvöld á Vesturlöndum átta sig á því að þau hafa verið og eru að ala eitursnáka við brjóst sér ? Þarf virkilega að koma í ljós að tuttugu þúsund múslímskir vígamenn komi frá Bretlandi til Sýrlands, Afghanistan og annarra átakasvæða í nafni jihads, heilags stríðs, til að ráðamenn í Lundúnum skilji að þjóðhollusta þessara bresku ríkisborgara er hreint ekki eins og hún ætti að vera ?

Sænsk stjórnvöld eru og hafa verið svo skyni skroppin í þessum efnum, að þau hafa nánast fylgt Bretunum þar fast eftir og þá er mikið sagt. Öll varnarorka Svía fer enn sem fyrr í að leita að huldukafbátum í sænska skerjagarðinum, meðan verið er að taka borgir þeirra herskildi innanfrá !

Norðmenn og Danir eru svo sem ekki langt frá Svíum varðandi þessi mál og veruleikafirring hinnar svokölluðu „upplýstu umræðu“ virðist enn geta umsnúið þar dómgreind bestu manna og svipt þá allri skynjun á hættu sem fer vaxandi með hverju árinu !

Það er fullyrt að menn sem urðu forustumenn í svonefndum frelsisher Kosovo hér á árunum, hafi komið frá Norðurlöndum, þar sem þeir höfðu lifað í makindum í félagsmálafaðmi viðkomandi landa, og snúið heim þegar ástand mála var orðið hentugt fyrir þá og bauð upp á þá möguleika sem stríð gefur yfirleitt til fjár og valda.

En slíkir fóstursynir hinna norrænu mannréttinda-samfélaga virðast oftast hafa tileinkað sér það sem reynt var að hafa fyrir þeim með undarlega öfugsnúnum hætti og síst þannig að sæmandi sé góðum gildum !

Það er mörgu flaggað í nafni frelsis og mannréttinda víða um heim sem á ekki heima í ranni þeirra mála, en blekkingar eru oftast mest stundaðar í kringum jákvæð hugtök og þeim þá snúið á haus og ríflega það !

Séu böðlar þeir sem hafa tekið að sér að höggva höfuð af föngum með þeim hætti sem ISIS samtökin hafa staðið fyrir, eru þeir ekkert nema ótíndir glæpamenn og morðingjar og það þarf að gera allt sem hægt er til að sækja þá til saka.

Séu viðkomandi menn breskir ríkisborgarar, sem ég tel hreint ekki ólíklegt, ber hiklaust að svipta þá ríkisfangi, því framferði þeirra er óræk sönnun fyrir því að þeir hafa enga hollustu eða þegnskyldu til í sér gagnvart Bretlandi og eiga þar ekki heima á nokkurn hátt !

Það er löngu orðið tímabært að ráðamenn á Vesturlöndum vakni af hinum hættulega Þyrnirósarsvefni fjölmenningarstefnunnar og fari að vernda vestræn samfélög fyrir þeirri óværu sem þar hefur hreiðrað um sig og vill vestræn samfélög og vestræna lífshætti feiga !

Öfga-múslímar hlægja að okkur fyrir það hvað auðvelt það hefur verið að blekkja okkur og fá okkur til að grafa undan okkar eigin öryggi – með þeim !

Menn verða að fara að vakna og skilja að það er þegar kominn fullur efniviður í fimmtu herdeildir öfga-múslíma á öllum helstu vígstöðvum í Evrópu – það þarf bara að virkja þær og það er þegar byrjað á því starfi og kannski er það verk lengra komið en nokkur veit !

Höfnum Evrabíu, - ríkisgjörningi fjölmenningarstefnunnar, og verjum Evrópu – svo hún verði áfram álfan okkar, - álfa vestrænna gilda !

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 126
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband