Leita í fréttum mbl.is

Ađ verja karlmennskuna !

 

Upp á síđkastiđ hefur ţađ komiđ ć betur í ljós ađ mikil ţörf virđist beinlínis orđin á ţví ađ stofna sérstök félagasamtök eđa hreint og beint stjórnmálaflokk til ađ varđveita og verja karlmennskuna í ţjóđfélaginu. Karlmenn upp til hópa sýnast vera ađ linast upp og verđa ađ vesćlum veimiltítum. Sjáanlegt er ađ međ sama áframhaldi verđur litla sem enga karlmennsku ađ finna á Íslandi eftir 10-15 ár !

 

Nú virđist hreinlega svo komiđ ađ kvenremban sé nánast búin ađ ţurrka út karlrembuna og ţeir fáu karlmenn sem verja vilja stálin stinn sýnast svo til komnir í útrýmingarhćttu. Flestir sem eiga ađ heita karlmenn í dag virđast vera tuskur sem enginn mergur er í. Ţađ eina sem ţeir segja nú orđiđ, daginn út og inn, er: ,,Já, elskan !”

 

Verđur ekki ađ fara ađ stofna Karlréttindafélag Íslands og herja gegn ţeim ótrúlega miskunnarlausa yfirgangi sem meintir karlmenn ţessa lands búa viđ nú um stundir ? Ţarf ekki ađ stofna karlfélög um allt land og stefna ađ sérstöku karlaframbođi međ ţađ á stefnuskrá sinni - sem höfuđmál - ađ viđhalda reisn karlmanna !

 

Ţađ hljóta allir rétthugsandi menn ađ sjá ađ nauđsyn ţessa máls er orđin knýjandi ţví skammt virđist vera í ađ verulegar ofsóknir hefjist gegn körlum hér á landi. Ţađ er auđvitađ ómannlegt og ómannúđlegt ađ ofsćkja karla bara fyrir ţađ ađ ţeir séu karlar eđa vilji vera ţađ. En ofur kvenlćgur tíđarandinn virđist heimta allt karl-lćgt út í hafsauga nú um stundir !

 

Um langt skeiđ hefur eiginlega ómađ í öllum fjölmiđlum og alls stađar áróđurshrópiđ kven,kven,kven,kven. Kven ţetta og kven hitt ! Nú ţarf sýnilega ađ hefja upp hrópiđ karl,karl,karl,karl, ţví ekki virđist seinna vćnna ađ koma jafnvćgi á hlutina og fá karlmennskuna í eđlilegt lag svo hún standi undir sér !

 

Ţađ er ađ margra dómi yfirţyrmandi nauđsyn á slíkri gagnsókn ţví karlmennskan međal karlţjóđarinnar í ţessu landi virđist hreinlega vera ađ sálast af inngrónum aumingjadómi og málstola hrćđslu viđ hinn ofur kvenlćga tíđaranda !

 

Ţađ verđur of seint fyrir kvenpeninginn ađ ćpa eftir karlmennsku ţegar búiđ er ađ drepa allan dug og döngun úr körlum međ yfirvađandi kvenrembu árum saman. Enginn veit hvađ átt hefur fyrr en misst hefur !

 

Hin einfalda lífs-stađreynd ţarf ađ fá heilbrigđan stuđning, sú stađreynd ađ sannar konur ţurfa á sönnum körlum ađ halda eins og sannir karlmenn ţurfa á sönnum konum ađ halda. Ţarna er ekki um fjandsamlegar andstćđur ađ rćđa heldur ţarf ţetta tvennt ađ falla saman sem fyrr í hinni sígildu og náttúrulegu einstillingu anda, sálar og líkama !

 

Hvađa kona sem vill heita sönn kona sćttir sig viđ grútlina karltusku sem segir aldrei annađ en vesćldarlegt ,,Já elskan ?” Ţađ er augljóst ađ eitthvađ verđur ađ gera í málinu svo sönn karlmennska lifi, ţví hún er auđvitađ góđ og gagnleg í náttúrulegu eđli sínu ţegar hún stendur sig, en er sjáanlega á leiđinni ađ verđa útdauđ í landinu - af vökvunarskorti !

 

Nú ţarf sem fyrr segir ađ stofna flokk utan um karlmennskuna, ţetta litla sem eftir er af henni, og hefja svo bullandi framsókn međ pólitíska, menningarlega og ţjóđlega karlréttinda stefnuskrá á háa lofti! Engar tuskur, takk !

Getum viđ ekki öll veriđ sammála um ţađ ?

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 128
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband