Leita í fréttum mbl.is

Illt er ţegar glóran glatast !

 

Sú ríkisstjórn sem veriđ er ađ mynda – ađ sögn, - segist ćtla ađ stefna ađ meiri sátt í samfélaginu ? Ţađ er nú svo ! Aldrei hefur ţađ nú veriđ talin gćfuleg byrjun til góđra hluta ađ svíkja stefnu sína og ganga í eina sćng međ öllu ţví sem öfugt snýr viđ ţeim hugsjónum sem eiga ađ ráđa för, en ţađ er forusta VG ađ gera !

 

Hvađ gerist ţegar ţví er blandađ saman sem ekki á saman ? Hvađ kemur út úr ţví ? Örugglega ekki ţađ sem vonast er eftir ! Hvađ gerist ţegar einn vinstri flokkur ćtlar ađ sameinast tveimur hćgri flokkum, sameinast flokkum sem innihalda nánast allt auđvaldiđ í landinu, allt sem sannir vinstri menn hafa ćtíđ veriđ ađ berjast gegn ?

 

Fćrast hćgri flokkarnir tveir til vinstri eđa fćrist vinstri flokkurinn til hćgri ? Hvađ skyldi nú vera líklegra ? Í hverju geta málamiđlanir slíks samstarfs legiđ öđru en verulegum afslćtti á stefnumálum og hugsjónum ?

 

Nú liggur fyrir ađ íhaldiđ gengur ekki fyrir hugsjónum og hefur aldrei gert, hugsjónir innan Framsóknar dóu međ Samvinnuhreyfingunni, ţessir flokkar ganga bara fyrir hagsmunagćslu tiltekinna valdahópa í ţjóđfélaginu. Eru pólitískir varđhundar ţeirra !

 

En Vinstri grćnir gengu fyrir hugsjónum og áttu ađ ganga fyrir hugsjónum, áttu ađ vera varnartćki fyrir hinn almenna mann og réttindi hans, sem svo oft eru ţverbrotin af áhrifaöflum ţeirra sem nú ţykja ćskilegir sem samstarfsađilar í ríkisstjórn !

 

Forustuliđ VG virđist alls ekki skilja ađ međ ţví ađ ganga til samstarfs viđ auđvaldsflokkana er hugsjóna-afslátturinn alfariđ ţeirra megin og ţađ er tap sem verđur ekki endurheimt. Traustiđ sem fyrir var hefur ţá veriđ svikiđ !

 

Hugsanlegt hagsmunatap hinna flokkanna verđur hinsvegar auđveldlega endurheimt af ţví ađ ţađ verđur bara tímabundinn hagsmuna-afsláttur og til dćmis mun dvínandi gengi VG í komandi tíđ fljótt reynast vatn á myllu ţeirra. Ţađ er beinn hagsmunalegur ávinningur fyrir ţá af komandi stjórnarsamstarfi – ađ gera hćttulegan andstćđing miklu óvirkari međ ţví ađ samspilla honum !

 

Á sínum tíma var Alţýđubandalagi og Framsókn núiđ ţví um nasir ađ hafa gengiđ til samstarfs viđ Gunnar Thoroddsen eingöngu vegna ţess ađ međ ţví vćri veriđ ađ kljúfa Sjálfstćđisflokkinn. Vissulega gátu ţađ veriđ rök út af fyrir sig, en ţađ segir okkur líka kannski svolítiđ um ţađ hversvegna íhald og Framsókn vilja svo gjarnan fá VG til samstarfs – eđa sjá menn ţađ ekki ?

 

Ef yfirlýst vinstri manneskja kýs ađ sitja sem forsćtisráđherra í skjóli íhaldsaflanna í landinu á kostnađ alls ţess sem er undirstađa vinstri hugsjóna, hlýtur hún ađ vera eitthvađ annađ en vinstri manneskja. Ţađ segir sig sjálft og ţađ mun hefna sín !

 

Hćgri flokkarnir vita ađ ţeirra bakland er tryggt og gengur bara fyrir hagsmunum, en bakland VG hefur veriđ hugsjónaleg grasrót og svik viđ ţađ sem ţar gildir verđa ekki fyrirgefin eđa ţurrkuđ út. Traust sem hefur veriđ svívirt vinnst ekki svo glatt aftur !

 

Hiđ ríkjandi vantraust hjá fólki eftir hruniđ, á öllum yfirvöldum ţessa lands, getur nú náđ sömu stöđu gagnvart forustu VG og ţađ hefur haft gagnvart öllu öđru. Og skilabođin sem ţví fylgja eru slćm og ţau eru - nú er engum hćgt ađ treysta lengur !

 

Kata Kobba hefur fyrirgert trausti margra til vinstri en verđur kannski vinsćlli til hćgri fyrir ađ dansa međ ţeim Bjarna Ben og Sigurđi Inga. Fyrir suma stóla er sýnilega miklu fórnađ, en ţađ verđur erfitt fyrir hana sem komandi forsćtisráđherra og ábyrgđarmann ríkisstjórnar ađ sitja međ tvo úlfa yfir sér alla daga, ýlfrandi fyrir hönd sinna grćđgisvćddu sérgćskuhjarđa !

 

Kannski ađ ţađ verđi henni verđskulduđ refsing fyrir svikin viđ ţá sem kusu ađ treysta henni til góđra verka ?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 94
  • Sl. viku: 1183
  • Frá upphafi: 316782

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 887
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband