Leita í fréttum mbl.is

,,Um evrópska kristnifóbíu !”

 

 

Á síðustu áratugum hefur farið í vöxt meðal evrópskra þjóða einhverskonar andúð á kristinni trú. Þar kynda bálið allskyns fordómar og kristindómnum er kennt um býsna margt af því sem aflaga hefur farið. Þó ættu allir að vita hvernig mannskepnan hefur alltaf hagað sér og svívirt og svikið trú jafnt sem góðar hugsjónir á öllum tímum og komið þannig óorði á bestu hluti !

 

Að baki þessum andkristnu viðhorfum býr ekki sérlega mikill söguskilningur hvað þá ærleg sannleiksleit. Enda eru þau öllu fremur tilkomin sem einhver ákærandi afleiðing af innfluttum viðhorfum. Þau falla svo í ímyndaðri víðsýnishugsun saman við uppreisnarkenndan tíðaranda í farvegi fjölmenningar !

 

En allt hefur þetta sína stýringu og sinn tilgang. Þegar búið er að koma evrópsku fólki til að hugsa eitthvað á þá leið að allt sé betra en kristnin, er hálfur sigur unninn fyrir hin utanaðkomandi öfl sem eru hreint ekki friðsamleg, enda eru þau leidd í afgerandi mæli af yfirtökuhugsun en ekki aðlögun !

 

Eftirleikurinn verður svo auðveldari, en hann er auðvitað að draga viðkomandi fólk í einhvern ákveðinn dilk, hugmyndafræðilega og trúarlega. Menn koma alltaf til með að aðhyllast eitthvað. Og áróðurinn sem rekinn er gagnvart fólki og krefst skoðanamyndunar er býsna einhliða. Og þrýstingurinn vex eftir því sem íbúar Evrópu láta meira undan !

 

Á sínum tíma og ekki fyrir svo ýkja löngu, var fundið upp hugtakið islamófóbía til að undirstrika meint og yfirlýst píslarvætti Múhameðstrúar-manna sem borgara á Vesturlöndum. Hinn svonefndi kristni heimur var sagður skilningslaus og umburðarlaus gagnvart islamistum og vilja tengja þá alla við slæma hluti svo sem hryðjuverk og ofbeldi !

 

Ákæruorðið islamófób var svo óspart notað um alla þá sem reyndu að halda sjálfstæði sínu og viðhafa gagnrýna hugsun. Það var notað hliðstætt hugtakinu rasisti og átti að hafa þær verkanir að þagga niður í öllum andmælendum og gerði það líka að mestu !

 

Að því kom að þessi síbylja varð til þess að fjöldi fólks varð svo hræddur við að verða kallaður islamófób að hann fór beinlínis að verða kristnifób. Vildi sem sagt ekki láta tengja sig við neitt af kristnu tagi. Ekki standa fyrir neitt af því sem hafði byggt að mestu upp þann heim sem hann þekkti !

 

Í slíkum tilfellum er oftast um að ræða þessa algengu manngerð sem slær út höndum og segir í fyrirfram tilbúnu varnarskyni og auðvitað í alhliða hlutleysisgír : ,, Hvað um mig ? Ég er bara 100% fríhyggjumaður !”

 

Já, það er nefnilega það ! Og um leið er verið að segja í yfirþyrmandi uppgjafartóni, - ég nýt að vísu margskonar mannréttinda, bý við mjög ásættanlegar aðstæður, hef það bara nokkuð gott, en ég er hreint ekki tilbúinn að lýsa því yfir, að ég vilji verja eitthvað sem kallast kristin trú eða evrópsk gildi, og eiga það á hættu að vera kallaður islamófób fyrir vikið !

 

Svona tala náttúrulega helst þeir sem eru tækifærissinnaðir út í gegn og hirða ekki neitt um það þó að þeir sýni andlegan aumingjadóm með afstöðu sinni til mála. En við skulum samt gera okkur grein fyrir því að þeir sem þannig tala eru hreint ekki svo fáir og þeim fer fjölgandi !

 

En spurningar dagsins í þessum efnum eru ósköp einfaldar, þó erfitt virðist að fá skýr svör við þeim. Hverjir eiga að verja kristindóminn ef ekki þeir kristnu ? Hverjir eiga að verja evrópsk gildi ef ekki Evrópumenn ? Og hvað verður um evrópska menningu, til framtíðar séð, ef enginn fæst á endanum til að verja hana ? Hvað um sögu okkar, bókmenntir, listir og ómetanleg tónlistarverðmæti, – á þetta allt eftir að fara á haugana vegna einhverrar svartnættishugsunar aðkominna öfgamanna ?

 

Talið er að hugtakið islamófóbía hafi fyrst komið fram á áttunda áratug síðustu aldar og þá verið notað af talsmönnum íslamskra trúarhreyfinga í Evrópu gegn feministum. Bandaríska kvenréttindakonan og rithöfundurinn Kate Millet varð til dæmis fyrir aðkasti og uppnefnd sem islamófób !

Og hver skyldi ástæðan hafa verið ? Hún leyfði sér í nafni kvenfrelsis að hvetja íranskar konur til að kasta slæðunni !

 

Franski heimspekikennarinn Robert Redeker skrifaði árið 2006 : ,,Hugtakið islamófóbía er upphaflega vopn, skapað af islamistum til að þjóna markmiðum þeirra við að neyða alræðissýn sinni upp á umheiminn, en rætur hennar er að finna í algerri andlegri myrkvun !” Hugtakið var þannig vígorð frá því fyrsta. Markmiðið var og er að gera alla gagnrýni á islam glæpsamlega og upphefja í framhaldinu sharía-lög !

 

En gagnrýni á trúarbrögð, sama hver þau eru, er og á að vera hluti af heilbrigðum mannréttindum okkar. Gagnrýni á trúarbrögð er vörn fyrir skynsemishyggjuna og hvað er skynsemishyggjan ? Hún er líftaugin í okkar veraldlega, frjálsa lýðræðissamfélagi. Eitt af því sem gerir okkur kleyft að ganga upprétt og vera manneskjur og lúta engu kúgunarvaldi !

 

En samt sofum við á verðinum og erum blind fyrir þeim hættum sem vofa yfir. Og með því skeytingarlausa framferði ölum við upp fullt af manndóms-leysingjum, flögrandi fiðrildum, fólki sem vill ekki verja sitt eigið frelsi, fólki sem forðast að hafa sjálfstæðar skoðanir, fólki sem neitar að vera ábyrgir einstaklingar í eigin samfélagi !

 

Skilaboðin út um alla Evrópu eru sem stendur - að þú mátt vera kristnifób hvar sem er, öllum er sama, enginn talar um það, það skiptir ekki máli. Þessvegna finnst þér líka gott að geta afneitað kristninni og sagst vera fríhyggjumaður – 100%. Því fylgir nefnilega engin ábyrgð !

 

En ef þú sýnir þig vera islamófób, verður þú auðvitað strax stimplaður sem bölvaður rasisti og hvergi í húsum hæfur, allra síst í fjölmenningarmettuðu umhverfi samtímans. Svo þú verður líklega að gæta þín á því að tala varlega, sjálfs þín vegna, og hegða þér eftir rétttrúnaðarlínunum – sérstaklega þó ef þú ert að allri gerð skoðanalaus aumingi !

 

En ef þú ferð niður í djúpið eftir einhver ár með sökkvandi skipi, sem þú vildir ekki taka þátt í að bjarga, enn með svefndrukkin augu hins nytsama sakleysingja, heldurðu að þú gætir þá huggað þig við það á þinni síðustu stund, að þú hafir þó alltaf verið 100% fríhyggjumaður ? Ég held ekki !

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 441
  • Sl. sólarhring: 449
  • Sl. viku: 1679
  • Frá upphafi: 317937

Annað

  • Innlit í dag: 363
  • Innlit sl. viku: 1309
  • Gestir í dag: 349
  • IP-tölur í dag: 348

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband