Leita í fréttum mbl.is

Um ýmsar söguginningar !

 

Oft hefur ţađ vakiđ furđu mína hvađ sögulegar uppsetningar hafa orđiđ ađ föstum viđmiđum í sögu okkar án ţess ađ full vissa sé til stađar hvort um raunverulegar stađreyndir sé ţar ađ rćđa. Ţađ er stundum ţví líkast sem einhver rómantísk hughrif hafi ráđiđ textanum og svo hefur hver étiđ upp eftir öđrum og enginn vitađ međ vissu hvađ hann var ađ segja !

 

Viđ höfum alla tíđ eignađ Snorra Sturlusyni ýmis ritverk ţó viđ höfum ekkert sem sannar ţađ í raun ađ hann hafi veriđ ţar höfundurinn. Kannski skrifađi Styrmir fróđi Kárason sum ţessara verka og ţá hugsanlega í skjóli Snorra. Snorri er 62 ára gamall eđa ţar um bil ţegar hann er drepinn.  

 

Alla ćvi stóđ hann í auđsöfnun og veraldarvafstri og mađur fćr varla séđ hvenćr hann hefđi átt ađ sinna ritverkum sem hlutu ađ taka drjúgan tíma. En samt fćr hann ţennan höfundarstimpil ţó enginn viti međ vissu hvort hann verđskuldar hann eđa hafi yfirleitt getađ litiđ upp frá auragrćđginni ?

 

Ingólfur Arnarson er jafnan skilgreindur fyrsti landnámsmađurinn ţó vitađ sé ađ hann var ţađ ekki. Ţar spilar auđvitađ inn í dćmiđ ađ hann var landnámsmađur Reykjavíkur, en ţađ er ekki ţađ sama. Íslendingar eiga ţađ til ađ vera miklar ,, höfđingjasleikjur “ og fyrsti landnámsmađurinn mátti ţví ekki vera venjulegur almúgamađur, hann varđ ađ vera eitthvađ meira. Náttfari kom ţví ekki til mála frekar en einhver tómthúsmađur á Blönduósi. En ţar varđ sá fyrsti auđvitađ ađ vera danskur kaupmađur !

 

Gunnar á Hlíđarenda gekk á gerđa eiđa og sneri međ ţeim hćtti aftur. Hann sveik samninga og enginn veit hvađ dró hann til ţess í raun ? Var hann kannski enn haldinn af girndarráđs-lönguninni til Hallgerđar eftir allt sem á undan var gengiđ ? Var hún kannski í raun og veru ,,fagra hlíđin hans” ?

 

Viđ Íslendingar lofum stöđugt hetjuna sem sveik eiđa sína, en Kolskeggur bróđir hans sem átti miklu betri og mannsćmdarlegri hlut ađ málunum er flestum gleymdur. Ég met hann ţó meira en Gunnar fyrir orđ hans er ţeir brćđur skildu. En ţau voru ţessi : ,,Hvorki vil ég á ţessu níđast né öđru ţví sem mér er til trúađ o.s.frv !

 

Viđ látum líka mikiđ međ sjálfstćđisbaráttu okkar og samt höfum viđ enn dönsk konungsmerki á alţingishúsinu sem aldrei hafa veriđ tekin niđur ? Hvers vegna í ósköpunum eru slík ţrćlahaldaratákn ţar enn í dag ? Hefđu Benedikt Sveinsson eldri, Skúli Thoroddsen, Bjarni frá Vogi og ađrir ţekktir forustumenn sjálfstćđisbaráttunnar viljađ sjá ţađ ? Ekki trúi ég ţví. Spyrja má ţví : Til hvers var eiginlega barist ? Sjálfsagt hafa eftirsitjandi Danasleikjur í valdastöđum ráđiđ ţví ađ svona var stađiđ ađ málum. En slíkt hefđi varla getađ gerst hjá annarri ţjóđ !

 

Kaţólska kirkjuvaldiđ var ađ miklu leyti slćmt fyrir ţjóđina, einkum ţó ţegar á leiđ og Jón Arason var gildur fulltrúi ţess á sínum tíma. Hann var enginn ţjóđfrelsis-leiđtogi. Hollusta hans var ekki bundin viđ innlent vald, hún lá öll suđur í Róm – páfinn var hans konungur í einu og öllu !

 

Ţegar danska konungsvaldiđ snerist gegn pápískunni, fylgdi Jón ekki međ. Hann var sami gallharđi páfatrúarmađurinn til síđasta dags. Síđari tíma yfirgangur konungsvaldsins skapađi svo smám saman ţá sögulegu gyllingu fyrir kaţólskuna sem hún átti litla inneign fyrir. Ţá var Jón Arason gerđur ađ ţjóđfrelsismanni, ţvert ofan í allar stađreyndir, og ţar viđ situr !

 

Gissur biskup Einarsson hefur á sama veg aldrei veriđ metinn sem skyldi af íslenskri ţjóđ vegna ţess ađ hann var međ siđbótinni og ţar međ á móti kaţólskunni. Tryggi Ţórhallsson sýndi ţó fram á í riti sínu um Gissur ađ hann var miklu ţjóđrćknari og betri mađur en flestir hafa haldiđ. En ţađ verđur líklega seint viđurkennt sem stađreynd í íslenskri sögu !

 

Margt fleira mćtti rekja hér, enda af nógu ađ taka, en ég ćtla ađ láta stađar numiđ viđ ţetta. Ţeir sem á annađ borđ vilja skođa og rannsaka geta gert ţađ út frá ţessum punktum, en ţeir eru vafalaust fáir !

 

Flestir virđast ţeirrar gerđar ađ gleypa ţađ sem fyrir ţá er sett án nokkurra athugasemda og láta sögulegar ginningar og gyllingar sig litlu skipta. En rangfćrslusagnfrćđi er aldrei af ţví góđa, hversu rómantísk sem hún kann ađ ţykja !

 

 

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 33
  • Sl. sólarhring: 78
  • Sl. viku: 1170
  • Frá upphafi: 316856

Annađ

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 872
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband