Leita í fréttum mbl.is

Um tómlćtisástand allrar tilveru !

 

 

Fólk sem lifir nú á 21. öldinni, reynir eins og ţađ frekast getur ađ tala um tíma síđustu aldar sem eitthvađ sem aldrei komi aftur, hinar blóđugu heimsstyrjaldir og nánast alla atburđarás ţess tíma. Ţađ virđist líta á síđustu aldaskil sem kaflaskipti í sögu mannkynsins, hiđ ljóta sé ađ baki og betri tíđ framundan, en ţví miđur, fátt er fjćr sanni !

 

Mađurinn er nákvćmlega sama siđleysisskepnan í dag og hann hefur alltaf veriđ. Eđa hvađ kennir manninum betri siđi í dag ? Sennilega enn fćrra en gerđi ţađ áđur. Hann er í uppreisn gegn öllum siđalögmálum og vill vera frjáls og undanţeginn öllum bođum og bönnum. En mađur sem er haldinn ţeirri andfélagslegu hugsun ađ hann sé sinn eiginn guđ er samfélagslega hćttulegur og ţannig virđast margir vera í dag !

 

Úrkynjun er alltaf raunverulegur möguleiki í tengslum viđ mannlífiđ. Og ţađ sýnir sig glöggt í samtíđinni. Ţegar velmegunarstig er orđiđ ţađ hátt ađ ţađ gerir litlar kröfur til mannsins um ađ standa sig, koma fljótt í ljós ýmis úrkynjunar-einkenni. Ţađ ţarf ekki ađ fara víđar en bara smáhring um Norđurlöndin til ađ sjá ţetta.

 

Viđ virđumst t.d. ekki vera ađ skapa neitt í dag í skáldskap og listum sem jafnast á viđ verk fyrri tíma höfunda, sem börđust nánast viđ hungurmörk í gamla daga. En ţađ er samt sannarlega látiđ eins og svo sé !

 

Hvađ myndi Michelangelo segja um stöđuna í dag ? Ég held ađ honum myndi lítast afskaplega illa á hana. Og hvers vegna ? Einkum vegna ţess ađ ađeins lítill hluti ţeirra sem kalla sig listamenn í dag eru trúlega í raun og veru listamenn og tilbúnir ađ fórna einhverju fyrir listina !

 

En ţess er ekki krafist nú á tímum og velsćldarsamfélag svokallađra listamanna sýnist öllu heldur vera til stađar í dag. Ţar virđist fólk ţrífast ágćtlega međ fullan kviđ viđ flottar ađstćđur. Ţađ lifir á styrkjum og stuđningi hvern dag og virđist ekki hafa tíma til ađ skapa neitt !

 

Og samfélagiđ borgar fyrir ţađ allt, en svo lítiđ virđist koma ţar á móti ađ ég held ađ ţađ framlag sé varla ţess virđi ađ á ţađ sé minnst. Íslenskt listalíf virđist svo til allt vera á opinberu framfćri í dag og einmitt ţessvegna verđur ekkert til sem einhverju máli skiptir og svipađ ástand er á allt of mörgum sviđum. Viđ erum ekki í framför, viđ erum í afturför !

 

Ţađ er lifađ á ímyndađri list í svo mörgu og verkin sem stöđugt er talađ um ađ skapa verđa aldrei til. Hvađ ćtti svo sem ađ ţrýsta á sanna listsköpun í yfirstandandi lognmollu nćgtanna ? Og líklega eru bara 10% bókađra listamanna raunverulegir listamenn sem gćtu hugsanlega skapađ eitthvađ ?

 

Allmargt fólk fćđist auđvitađ sem fyrr međ mikla listrćna hćfileika, en ég held ađ ţađ sé ađ stórum hluta eyđilagt međ ţví međvitundarleysi gagnvart list sem rćđur greinilega ferđinni í dag. Ţađ dregst međ í hópferđ heimskunnar eins og fjármálalífsađallinn gerđi fyrir hrun. Ţađ má ekki skemma skemmtunina ţó allt sé á kolvitlausu stími út í svartnćtti svikalogns og blindrar sérgćsku !

 

Og hvert stefnir ţjóđarskútan, hún stefnir auđvitađ beint inn í skerjagarđ skítmennskunnar eins og fyrir hrun. Okkur virđist hreint ekki viđbjargandi vegna ţeirra blekkinga sem viđ beitum okkur sjálf !

 

Og verst er svo ţađ ađ viđ eigum enga frambćrilega forustumenn frekar en fyrri daginn. Ţađ er sjáanlega engin bitastćđ framtíđarsýn í gangi hjá ţví liđi sem stjórnar !

 

,,Aha, ţjóđfélagiđ, ţađ lafir (kannski) međan viđ lifum !“ virđist ţetta ferilskráarfasta forustufólk hugsa, ef ţađ hugsar ţá, og svo stingur ţađ höfđinu í sand mannhrokans og gerir lítiđ sem ekkert ađ gagni !

 

Og allar mannlegar dyggđir segja međ sínum hćtti viđ slíka forustu, yfir öll andleg sviđ mannshugans : – ,,Skammist ţiđ ykkar !”


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 292
  • Sl. viku: 1338
  • Frá upphafi: 317978

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 1023
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband