Leita í fréttum mbl.is

Ógeđslega íhaldshćkjan !

 

 

 Pólitíska furđuflćkjan

fram og aftur berst.

Ógeđslega íhaldshćkjan

er ţar sýnu verst !

 

Vinstri grćningjar hafa nú gengiđ í gegnum einar kosningar eftir ađ hreyfingin gekk á mála hjá íhaldinu. Ţar töpuđu ţeir ţremur ţingmönnum og pólitísk stađa ţeirra veiktist ađ miklum mun !

 

Alţýđuflokkurinn gekk í gegnum ţrennar kosningar sem hćkja íhaldsins á hinum svokölluđu og rangnefndu viđreisnarárum. Flokkurinn varđ minni og minni og síđast ţurrkađist hann nćrri ţví út !

 

Í kringum 700 atkvćđi í Reykjavík gerđu honum samt kleyft ađ hanga á kjördćmakosnum ţingmanni. Annars hefđi flokkurinn falliđ út af ţingi sem hefđi átt ađ vera hverjum sönnum vinstri manni á ţeim tíma mikiđ fagnađarefni. En af hverju hékk hann inni, ţađ er stóra spurningin ?

 

Margir töldu ađ kratar hefđu fengiđ mestan hluta ţessara 700 atkvćđa ,,ađ láni” frá íhaldinu, enda var vitađ fyrir kosningar ađ ţeir stóđu tćpt og íhaldiđ vildi fyrir hvern mun halda hćkjunni !

 

Nú eru vinstri grćningjar komnir inn á ţessa sömu feigđarbraut. Ţeir hafa ţegar misst ţrjá ţingmenn eftir ţessar fyrstu hćkjukosningar, nćst tapa ţeir vonandi öđru eins ef ekki meira fylgi og viđ ţriđju kosningarnar gćtu ţeir ţá sem hćgast ţurrkast út og vonandi gera ţeir ţađ !

 

Sumum virđist ekki eiginlegt ađ vera sjálfum sér samkvćmir. Ţađ sést best á forustu vinstri grćningja. Hún hefur ekkert ađ bjóđa nema óheilindi !

 

Engin ćrlegheit felast í ţví ađ styđja framagirni og eiginhagsmunapot sem tekur sýnilega ađeins miđ af persónulegri upphafningu. Svikafénađur er ekkert nema ógeđ eins og allt sem siglir undir fölsku flaggi. !

 

Ţađ verđur ógnardýrt fyrir almenning ţessa lands, ađ íhaldiđ geti ráđskast međ ríkisfjármálin alls í 8 ár, en ţađ er okurverđiđ sem krafist er fyrir ađ Katrín Jakobsdóttir fái ađ vera áfram forsćtisráđherra. Ferilskrá hennar og frami virđist ţađ eina sem máli skiptir hjá hćkjuforustunni !

 

Bjarni toppskarfur íhaldsins er og verđur áfram stórskađlegur í forhertri ríkisfjármálastefnu sinni fyrir sérhagsmunina. Í ţví felst meiri hćtta en nokkur gćti ímyndađ sér. Varđveisla almannahagsmuna er langt frá ţví ađ vera hans sérgrein. Hann er gagnvart ţeim hagsmunum verri en margfaldur minkur í hćnsnakofa !

 

Íhaldiđ fćr nú gífurleg tćkifćri fyrir helbláa sérhagsmunastefnu sína og allt er ţađ fyrir atbeina og á ábyrgđ vinstri grćningjanna !

 

Oft lögđust kratar lágt hér á árum áđur til ađ ţjóna íhaldinu og ţađ sama hefur Framsókn stundum gert. Alltaf hefur slíkt veriđ á kostnađ heilbrigđra félagslegra framfara og almannaheilla !

 

Nú virđast vinstri grćningjar ćtla ađ fara jafnvel lengra í ţjónkun viđ íhaldiđ en umrćddir flokkar hafa gert og setja nýtt met í svívirđunni. En sem betur fer eru skuldadagarnir ţegar farnir ađ sýna sig !

 

Ţađ er illt og verra en illt, ţegar meint hugsjónastefna breytist í andstćđu sína og fólk verđur ţađ blint í sjálfselsku sinni ađ ţađ sér ekkert annađ !

 

Hugsanlega hefur Skalli ţó séđ í hvađ stefndi og forđađ sér, enda er barniđ sem hann kom á legg orđiđ ađ algerum umskiptingi !

 

Yfirlýstur vinstri flokkur sem ćtlar sér ađ sitja í hćgri stjórn í 8 ár og selur sig til svo öfugsnúinnar ţjónustu er ekki lengur ţađ sem hann segist vera !

 

Hann er ţvert á móti orđinn hćkja fyrir afturhaldiđ í landinu og til skammar á allan hugsanlegan máta. Sic Transit Gloria mundi !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 24
  • Sl. sólarhring: 198
  • Sl. viku: 1455
  • Frá upphafi: 318278

Annađ

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1107
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband