Leita í fréttum mbl.is

Ađ ganga ,,óbundinn" til kosninga !

 

 

 

 

Hvađ skyldi nú ţessi yfirlýsing ţýđa sem er fyrirsögn ţessa pistils ? Ţessi yfirlýsing sem er svo algeng fyrir kosningar og á víst ađ tákna í munni ţeirra er svo mćla - óskaplega víđsýna og frjálsmannlega afstöđu ?

 

En nei, ţarna er nú ekki neitt af ţví taginu. Slík yfirlýsing er ekkert nema ómerkilegt pólitískt klókindabragđ ţar sem frambođsađilar áskilja sér rétt til ađ semja viđ hvern sem er – til ađ ná völdum. Inni í ţeim gjörningi felst međal annars ţađ ađ svíkja hugsjónir eigin flokks og stefnu – fyrir völd !

 

Menn ţurfa ekki annađ en ađ líta á núverandi ríkisstjórn, sem situr međ mjög vafasamt umbođ frá kjósendum eftir stórgallađar kosningar. Ţar er ömurlegt dćmi um ţađ hvernig völd eru tekin framyfir yfirlýsta stefnu og meintar hugsjónir. Og gildandi lög verđa ađ gjalti í skollaleiknum. Ţar er skýrt dćmi um ţađ hvađ ţađ ţýđir ţegar frambođsađili segist ganga óbundinn til kosninga !

 

Sú yfirlýsing felur fyrst og síđast í sér svik viđ vćntanlega kjósendur. Frambođsađilar ţora ekki ađ segja hvađ ţeir eru međ í huga, ţeir telja sig verđa ađ fara á bak viđ kjósendur, af ţví ađ ţeir ganga ekki fram af heilindum. Ţađ er óhreinleikinn og falsiđ sem rćđur för hjá ţeim !

 

Sá flokkur býr yfir heilindum ef einhver gerir ţađ, sem segir hreint út hvađ hann ćtlar ađ gera eftir kosningar, hvernig hann ćtlar ađ standa ađ málum. Menn afla sér trausts međ heilindum en falla ađ gildi er ţeir beita svikum !

 

Vinstri grćn hafa tapađ ţremur ţingmönnum eftir eitt kjörtímabil sem taglhnýtingur íhaldsins. Ţađ tók ţrennar kosningar viđ sömu skilyrđi ađ ţurrka Alţýđuflokkinn nánast út af ţingi. Vinstri grćn eru nú á ţeirri svikabraut. Ţau fylgja ekki lengur stefnu eđa hugsjón, ţau gangast bara fyrir völdum án nokkurra annarra markmiđa. Eru orđin ţrćlar valdsins !

 

Flokkar sem sitja á svikráđum segjast ganga óbundnir til kosninga. Ţađ á ekki hvađ síst viđ um vinstri flokka. Ţá eru ţeir međ ţađ í huga ađ mynda stjórn međ íhaldinu. Ţessvegna ţora ţeir ekki ađ segja sannleikann gagnvart kjósendum sínum. Sannleikurinn á aldrei samleiđ međ svikum en lygin er ţar gróin viđ gerđirnar !

 

Ţegar flokkar haga sér međ slíkum hćtti eru ţeir í raun og veru ađ segja :

 

Flokkurinn međ felldum gildum

fćst viđ sína eigin hagi.

Óbundinn af öllum skyldum,

ekki í neinu mannfélagi !

 

Framsókn gengur alltaf óbundin til kosninga og er alltaf opin í báđa enda. Ţessvegna er flokkurinn fyrir löngu orđinn viđskila viđ ţćr hugsjónir sem komu honum á framfćri viđ ţjóđarsálina á sínum tíma. Ţar er ekkert eftir sem gefur veganesti til framtíđar ţegar á allt er litiđ !

 

Íhaldiđ svíkur ekki stefnu sína ţví hún er inngróiđ fyrirbćri og vond sem slík og verđur alltaf holdgetinn hryllingur. Sú stefna sem auđvaldiđ fylgir á fulla samleiđ međ eigingirni og sérgćsku mannseđlisins, ekki síst ţar sem ţađ er fundiđ spilltast fyrir !

 

Stefna íhalds og auđvalds höfđar til alls ţess sem dregur mannsandann niđur og villir alla heilbrigđa sýn til ţjóđfélagslegra gilda. Efnishyggjan rústar ţar öllu ţví sem andlegt er. Eftir ţví sem íhaldiđ verđur öflugra í landinu eftir ţví verđur samfélagiđ snauđara ađ mannfélagslegum gćđum !

 

Ţađ skilst ţví hvađ er í gangi ţegar flokkar sem segjast standa fyrir almennum mannréttar sjónarmiđum vilja ganga í takt viđ sérgćskuöflin í ţjóđfélaginu. Ţađ er hin óhreina valdasýki sem hefur náđ tökum á ţeim og forustu ţeirra. Ţeir vilja ekki vera heftir af hugsjónum og stefnufestu !

 

Ţeir vilja skođa markađinn og taka besta ,,bođinu“ sem ţar fćst – bođi Mammons sem alltaf er andstćtt hagsmunum samfélagslegra gilda og allrar alţýđu í landinu. Ţeir eru ţannig merktir Kölska í bak og fyrir !

 

Ađ segjast ganga óbundinn til kosninga undirstrikar ţví tćkifćrissinnuđ sjónarmiđ úrkynjađrar flokksforustu sem situr á svikráđum viđ allt ţađ sem hún ţó ţykist standa fyrir. Ekkert getur réttlćtt framgöngu af slíku tagi !

 

Slík málsmeđferđ er fyrirlitleg í alla stađi og ćtti eđlilega hvergi ađ hljóta stuđning fólks sem er annt um samfélag sitt og lífiđ í landinu og ekki síst eigin sjálfsvirđingu !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 743
  • Sl. sólarhring: 762
  • Sl. viku: 1879
  • Frá upphafi: 319303

Annađ

  • Innlit í dag: 674
  • Innlit sl. viku: 1512
  • Gestir í dag: 646
  • IP-tölur í dag: 629

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband