Leita í fréttum mbl.is

Leitađ í gömlu skotgrafirnar !

 

Ţađ sannast enn á ný í Úkraínustríđinu, ađ leiđtogar Evrópu eiga engin ráđ önnur ţegar alvarlegur ágreiningur verđur milli ríkja, en ađ koma sér niđur í gömlu skotgrafirnar. Alţjóđleg samtök sem áttu ađ draga úr hćttu á árekstrum, eins og Sameinuđu ţjóđirnar hafa fyrir löngu tapađ allri tiltrú !

 

En hvađ er ţá til ráđa ? Af hverju fer ţetta alltaf svona ? Fyrri heimstyrjöldin átti ađ vera síđasta styrjöldin og Ţjóđabandalagiđ var stofnađ til ţess ađ svo yrđi. Pólitíkusar eyđilögđu bandalagiđ á fáeinum árum međ gjörspilltu framferđi sínu og gengu svo frá málum ađ seinni heimsstyrjöldin varđ óţverrafćtt afkvćmi ţeirrar fyrri !

 

Eftir seinni heimsstyrjöldina var fariđ í sama leiđangur. Sameinuđu ţjóđirnar voru stofnađar til ađ koma í veg fyrir styrjaldir, en eftir nokkur ár var sú tilraun til friđar eyđilögđ líka í gegnum gjörspillta pólitík ţar sem enginn lyfti hreinum skildi eđa talađi sannleika !

 

Og nú eru Sameinuđu ţjóđirnar ónýtt verkfćri sem hefur veriđ sett út í horn í áhaldahúsi Vesturveldanna og enginn metur ţađ til nokkurs nýtanlegt í dag. Og međ hverjum deginum sem líđur nálgast mannkyniđ sitt eigiđ sjálfsmorđ.Sjálfstortímingarandinn fer međ algerri kćruleysisvímu sinni hamförum um alla jörđina !

 

Svíţjóđ sem hefur notiđ meiri friđar í tvćr aldir en nokkur önnur Evrópuţjóđ vegna hlutleysisstefnu sinnar, telur nú hag sínum best borgiđ innan hernađarbandalags. En ţađ er ekki reynsla Sögunnar sem veldur ţeirri viđhorfsbreytingu heldur pólitískar skođanir ţeirra sem nú fara međ völdin í landinu. Og áróđurinn segir ađ fólk sé miklu öruggara fyrir vikiđ !

 

Churchill kallađi Svíţjóđ á sínum tíma ,,litla hugleysingjalandiđ“ af ţví ađ Svíţjóđ lét ekki teyma sig í dilk hernađarhyggjunnar. En Svíţjóđ sigldi sínum bát farsćllega í gegnum styrjaldar-umrótiđ í álfunni og komst ađ mestu leyti heil í höfn frá ţví. Leiđtogar landsins sýndu ábyrgđ og festu fyrir ţjóđarhag og voru sjálfir í brúnni viđ stjórn !

 

En nú er annar andi ráđandi ţar á bć og varla 200 ára friđur framundan í lífi Svía, ef ađ líkum lćtur. Ţjóđfélag sem verđur markađ hernađarhyggju breytist međ ýmsum hćtti og ekki til hins betra !

 

Annars verđur hver ţjóđ ađ taka ábyrgđ á sínum örlögum og kannski eru valdaöfl Evrópu enn sem fyrr međ ţađ í fórnfrekri hugsun sinni ađ sćlt verđi sameiginlegt fall. En hvernig á slíkt fall ađ geta orđiđ sćlt ţegar kjarnorkuveldi fara ađ takast á um valdahlutföllin í álfunni ?

 

Ţegar hernađarhyggjan rćđur ferđ, ţyrpast menn niđur í gömlu skotgrafirnar. Ţegar áhrif hennar dvína, vegna ţess ađ hún leysir aldrei neitt, koma menn upp úr ţeim og fara ađ talast viđ. Ţá tekur vonin viđ um tíma ţar til ţeir komast aftur á skriđ sem vilja eyđileggja og tortíma !

 

Ţannig hafa málin gengiđ til ţessa. En ţađ hljóta flestir ađ sjá ađ leiđir ţćr sem menn ţykjast hafa veriđ ađ fara til friđar undanfarna áratugi hljóta ađ vera rangar. Ávinningurinn er svo smár og heilindin lítil sem engin !

 

Menn eru líka oftast á villugötum og vilja vera ţađ, sjá ekki ţađ sem er ađ skella yfir ţá. Rétt fyrir frönsku byltinguna 1848 sagđi Alexis de Tocqueville í rćđu : ,, Ég held ađ viđ sofum á eldfjalli !“

 

Hann taldi svo vera en valdamennirnir sáu ekki neitt. Ţeir skildu ekki stöđu mála og hćtturnar sem ţar voru ađ koma fram. Ţeir sáu ţćr ekki ţó ţćr vćru farnar ađ ýta viđ öđrum. Og svo kom örlagadómurinn yfir ţá, pakkađur inn í hernađarhyggju og blóđsúthellingar !

 

Og hver er svo stađa mála núna ? Nú virđist öll Evrópa sofa á eldfjalli – kjarnorkueldfjalli !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 398
  • Sl. sólarhring: 416
  • Sl. viku: 1636
  • Frá upphafi: 317894

Annađ

  • Innlit í dag: 332
  • Innlit sl. viku: 1278
  • Gestir í dag: 320
  • IP-tölur í dag: 319

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband