Leita í fréttum mbl.is

Ađ vera núll í Nató !

 

 

 

Mikiđ lifandis ósköp er ég feginn yfir ţví ađ viđ Íslendingar skulum ekki vera milljónaţjóđ. Ef viđ vćrum ţađ vćri líklega engin ţjóđ veraldar eins herská og viđ. Heiminum er ţađ ţví líkast til mikil blessun ađ viđ skulum ekki vera fleiri ?

 

Af hverju segi ég ţetta ? Einkum vegna ţess hvađ viđ virđumst vilja vera miklir gerendur í styrjöldum og átökum erlendis sem koma okkur lítiđ sem ekkert viđ !

 

Í stađ ţess ađ standa góđ skil á skyldu okkar viđ eigin ţjóđ, virđumst viđ alltaf vilja vera í ţví hlutverki ađ bjarga heiminum og bćtum ţó yfirleitt bara sprekum á ófriđareldana sem eru oftast nćgir fyrir !

 

Ţađ er eins og stendur í gamalli sögu um hugleysingja einn, sem sagđist bara ólmur vilja fara í stríđ ţegar hetjublóđiđ hans afa hans fćri ađ ólga í honum, en auđvitađ var engin inneign til stađar í honum fyrir ţví frekar en víkingablóđinu í Íslendingum ţegar ţeir tapa sér í umrćđu um stríđ !

 

Íslendingar ţekkja ekki stríđ – sem betur fer – nema í gegnum sjónvarpsskjáina. Ţeir fylgjast međ stríđi úr stofunum sínum, eins og fótbolta-kappleik, og ćpa og arga hver upp í annan á međan !

 

Og ţeir taka afstöđu ! Mikiđ lifandis ósköp er ţeim gjarnt ađ taka afstöđu, flestir án ţess ađ vilja vita nokkuđ eđa reyna ađ kynna sér málin !

 

Mikiđ hefur hernađarsaga heimsins líklega fariđ á mis viđ mikla stríđsforingja, ţar sem engir íslenskir hershöfđingjar hafa veriđ í forustuliđi Nató. Ţar hefur bara núlliđ eitt gilt til ţessa. Viđ höfum nefnilega aldrei veriđ neitt nema núlliđ eitt – í Nató !

 

Rosalega hefđu nú menn eins og Herbjörn Bjarnason getađ unniđ sér mikinn orđstír međ hershöfđingjahúfu og orđuröđ á brjóstinu allt niđur á maga. Ţađ er ekkert lítiđ sem sumir fara á mis viđ í lífinu !

 

Viđ sáum um daginn einn háttsettan Nató-markađan hollending breiđa úr sér í sjónvarpinu á Arctic Circle og fara mikinn, ţví ţótt hann vćri fulltrúi lítillar ţjóđar fann hann sig líklega mjög gildan í hinu stóra samhengi. En ţó hefđi Herbjörn áreiđanlega stađiđ sig ţar mun betur. Hann hefđi líka veriđ sem fćddur í hlutverkiđ !

 

En ţví miđur, Íslendingar fá ekki ađ ráđa neinu hjá Nató, ţeir eiga bara ađ vera međ og hlýđa og ţađ gera íslensk stjórnvöld alltaf međ hundslegri auđmýkt. Ţá breytni hafa ţau sýnt í veruleika alla tíđ og síđast prímadonnan eina og sanna í úthverfum fyrri fötum !

 

En stríđ er auđvitađ ekki fótboltaleikur heldur rammasta alvara ţar sem mannslífin fara oftast fyrir lítiđ. Friđsöm smáţjóđ ćtti auđvitađ ekki ađ sundra eigin friđi yfir slíkum hörmungum, en spyrja má hinsvegar, erum viđ friđsöm smáţjóđ og kunnum viđ ađ hegđa okkur sem slík ?

 

Fer ekki eitthvađ óraunverulegt og óekta hetjublóđ ađ ólga í okkur býsna mörgum ţegar viđ ,,horfum á“ stríđiđ, eins og ţađ er matreitt ofan í okkar ? Og ef svo er, af hverju fara ţá ekki nokkur hundruđ Íslendingar af stađ sem sjálfbođaliđar til ađ skakka leikinn ? Menn međ víkinga og hetjublóđ í ćđum ?

 

Eđa eru stóru vígorđin, mćlt í hita leiksins fyrir framan sjónvarpiđ, kannski bara innihaldslaus sem slík og framleidd af heilaţvegnu hugarfari sem stimplast ađ jöfnu á núll og Nató ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 321
  • Sl. sólarhring: 359
  • Sl. viku: 1457
  • Frá upphafi: 318881

Annađ

  • Innlit í dag: 294
  • Innlit sl. viku: 1132
  • Gestir í dag: 292
  • IP-tölur í dag: 286

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband