Leita í fréttum mbl.is

Ekkert ólöglegt stríð í álfunni einu !

 

 

 

Það er athyglisvert hvað fólk hérlendis sem og annarsstaðar í Evrópu virðist alltaf hrökkva illa við þegar einhver stríðsátök verða í álfunni einu ! Það er hinsvegar allt annað viðhorf til stríðs á öðrum stöðum í heiminum – bara að það sé ekki í Evrópu !

 

Hvernig stendur á því að fólk virðist líta svo á að það sé nánast allt í lagi að verið sé að drepa fólk í stríði, bara ef það sé ekki í álfunni einu - Evrópu ? Og ef til stríðsátaka kemur samt sem áður í Evrópu, þá þykir það alveg voðalegt ef einhver er drepinn !

 

Í álfunni einu eiga menn líklega að vera orðnir svo þroskaðir og menningarsjóaðir að þeir eigi jafnvel að geta háð stríð með svo mannlegum hætti og svo snyrtilega - að enginn verði drepinn !

 

Ef einhverja þarf að tukta til í Evrópu í þágu friðarins, eins og til dæmis á Balkanskaganum hér um árið, þá á bara að láta Nató sjá um það. Enginn er sagður færari til að halda uppi lögum og reglu !

 

Og sé þá óhjákvæmilegt að drepa einhverja svo friður haldist, á Nató auðvitað að sjá um það. Það hefur ,,license to kill“ ef út í það er farið. Sá sem drepinn er af Nató hlýtur að hafa átt það skilið !

 

Nató er okkar James Bond ! Þegar vondu mennirnir fara að derra sig eins og þeir hafa eðli og art til, á hikstalaust að kalla 007 út í þarfir friðarins, James okkar Bond eða ígildi hans frá góðugæja-stöðinni Nató. Hann reddar öllu með ,,license to kill !“

 

Mikið er Jens Stoltenberg annars reffilegur maður. Maður á eiginlega erfitt með að trúa því að hann sé Norsari. Manni finnst alltaf að hann hljóti að vera Bandaríkjamaður. Röksemdafærslan hjá manninum er til dæmis afskaplega amerísk og þó alveg ótrúlega sérstök og slær nýjan tón !

 

Og nú vitum við það ef við höfum ekki vitað það áður. Ef Úkraínumenn gera eitthvað af sér, skjóta eldflaug annað en hún ætti að fara, fremja einhvern smá stríðsglæp eða fara í einhverju rangt í málin, þá er ekki við þá að sakast. Það er allt Rússum að kenna af því þeir réðust á landið !

 

Úkraínumenn eru í þeirri stöðu að þeir geta ekkert af sér brotið. Þeir eru í neyðarvörn og þeim leyfist því allt. Þeir hafa 100% syndakvittun frá Nató upp á það og betra öryggisvottorð er áreiðanlega ekki til í þessari voluðu veröld okkar !

 

Það er líka ljóst að ef Rússar hefja stríð þá er um að ræða ólöglegt stríð. Aðeins Nató hefur þá stöðu að geta hafið löglegt stríð. Það eiga allir sæmilega greindir menn að vita og viðurkenna !

 

Ef Rússar telja að þeir þurfi að hefja stríð einhverra hluta vegna, verða þeir því að sækja um leyfi til þess til lögmæts réttarhafa slíkra leyfa, að vestrænum skilningi, sem er að sjálfsögðu Nató !

 

Stundum hefur verið talað um stríðs-æsingamenn, en það gildir ekki þegar um Úkraínu-stríðið er að ræða. Volodimir Zelensky er því alls ekki stríðs-æsingamaður, hann er landvarnarmaður !

 

Þó hann virðist ekki sjá annað en kjarnorkustyrjöld til að bjarga Úkraínu, breytir það engu, því hann er löglegur landvarnarmaður af fyrstu gráðu. Það er alfarið Rússum að kenna, ef hann er í máli sínu að biðja um kjarnorkustríð !

 

Við íbúar Vestur-Evrópu vitum alveg að allur ófarnaður innan álfunnar einu er Rússum að kenna. Við erum alin upp við það viðhorf og það hlýtur eiginlega að vera rétt og getur ekki verið annað en rétt, enda hefur það alltaf verið rétt !

 

Ríkisstjórn Íslands samþykkir það viðhorf, alþingi samþykkir það, sjálfstæðis-flokkurinn og öll útibúin hans samþykkja það, samfylkingin samþykkir það, og það sem gildir öllu mest og umfram allt er að Nató samþykkir það !

 

Við Íslendingar höfum náttúrulega aldrei verið sjálfbjarga. Við höfum alla tíð verið eins og óskilabörn á hjarni eymdar og volæðis. Þetta hafa menn alltaf vitað í Valhöll, hjá Heimdalli og öðrum íslenskum mannfrelsis-stofnunum sem aðhyllast hægri umferð í öllu !

 

Fyrst björguðu Norðmenn okkur með konungsvaldinu sínu, svo hjálpuðu Danir okkur undir annað konungsvald, svo komu Bretar til liðs á bak við tjöldin og síðan Bandaríkjamenn á sama hátt í kjölfarið !

 

Það er mikill náungakærleikur vafinn inn í alla þá sögu eins og góðir og réttsýnir íslenskir sagnfræðingar hafa margsinnis undirstrikað og bent á í hinum sígildu ritum sínum !

 

Og síðast en ekki síst, voru svo hin miklu friðar og björgunarsamtök vestrænnar samvinnu stofnuð undir nafninu Nató og það hefur áreiðanlega að öllu leyti orðið okkur óskilabörnunum á ysta hjara til frekara lífs !

 

Sennilega hefur Natóbandalagið bara verið stofnað vegna okkar Íslendinga – eða allavega fyrst og fremst. Aðrir sem eru þar í skjóli eru því eiginlega í skjóli okkar Íslendinga en við hinsvegar í skjóli Nató. Já, þannig hlýtur það eiginlega að vera !

 

Ó, hvað það er nú gott að eiga einhvern að sem hugsar um mann, já og hugsar fyrir mann. Hvar værum við Íslendingar eiginlega staddir ef við gætum ekki allar stundir hvílt öruggir og óttalausir í hlýjum kærleiksfaðmi Nató ? Þá væri staðan sannarlega ekki geðsleg því þá væru bölvaðir Rússarnir komnir um allt !

 

Það er því engin spurning að lendi menn í klandri í álfunni einu, er það Rússum að kenna. Þeir eru minkarnir í hænsnakofunum okkar. Þeir eyðileggja friðinn sem þar á að vera og spilla öllu. Þeir eru alhliða eggjaþjófar í öllum hænsnakofum álfunnar einu !

 

Rússar sitja austast í álfunni á ótæmandi orkubirgðum, sem við - hinir saklausu íbúar Vestur-Evrópu - hefðum auðvitað átt að fá áfram á sömu útsölukjörunum. Þeir geta aldrei verið almennilegir !

 

Það er aldrei neitt réttlæti til þar sem Rússar eru annarsvegar. Þeir eru vondir menn, eins og allir góðir menn segja, enda kunna þeir ekki að meta neitt gott, hvorki Nató né annað !

 

Þannig er nú það ! Og nú þegar fótbolta-veislan mikla er að byrja, bíða hin góðu Vesturlönd og fleiri í ofvæni eftir skemmtuninni langþráðu. Skítt með þessa sex til sjö þúsund verkamenn sem hafa látið lífið vegna illrar meðferðar, kúgunar og misréttis við þrælahalds - undirbúning veisluhaldanna !

 

Er það mannfall ekki bara ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir þá miklu skemmtun sem í vændum er ? Það er heldur ekki eins og þetta hafi verið Evrópumenn !

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 710
  • Sl. sólarhring: 729
  • Sl. viku: 1846
  • Frá upphafi: 319270

Annað

  • Innlit í dag: 644
  • Innlit sl. viku: 1482
  • Gestir í dag: 619
  • IP-tölur í dag: 603

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband