Leita í fréttum mbl.is

Um Natósagnfrćđi og nýlendusókn í austur !

 

 

 

Íslendingar hafa löngum veriđ miklir sagnamenn. Í sveitum landsins hér áđur fyrr voru víđa til bćndur sem voru ađ margra hyggju meiri og betri sagnfrćđingar en sumir ţeir frćđingar á ţessu sviđi sem hampa ţar flestum gráđum nú til dags. Ţeir vildu nefnilega bara hafa ţađ sem sannara reyndist !

 

Nú er öldin önnur og andinn annar. Ţađ er líka fariđ ađ skera frćđigreinar niđur í ýmsa yfir og undirflokka sem eiga ađ tákna ákveđin sérsviđ og svo fá menn auđvitađ sínar sérgráđur upp á ţađ. Ţađ má aldrei vanta til ađ undirstrika gildi hvers og eins á ţeirri menntadýrkandi hugaröld hégómans sem viđ lifum á !

 

Ein undirgrein sagnfrćđinnar nú til dags eđa öllu heldur yfirgrein er svokölluđ Natósagnfrćđi. Ţeir sem leggja sig eftir henni verđa ţannig auđvitađ Natósagn-frćđingar. Ţeirra hlutverk virđist vera ađ skođa söguna í ţví ljósi sem Nató gefur á viđfangsefnin !

 

Krafan um rétttrúnađar-sjónarmiđ virđist ţar vera töluvert meira höfđ uppi viđ og gilda meira en einföld sannleiksleit gömlu bćndanna í anda Ara hins fróđa og annarra frumherja íslenskrar sagnaritunar !

 

Viđ ćttum ţannig ađ geta séđ ađ svo-kallađir undir og yfirflokkar sérsviđa í sagnfrćđi geta veriđ varasamir fyrir ţá sem vilja leita sannleikans. En líklega er ţeim ađ fćkka međ hverju árinu sem ţađ gera, ţar sem engar kröfur eru gerđar til slíkrar ástundunar og jafnvel heldur amast viđ henni. Sannleiksleit á nefnilega aldrei neina samleiđ međ imperíalískum sjónarmiđum í sögutengdum áróđri !

 

Sannleikurinn um Úkraínu-stríđiđ er til dćmis afar lítiđ til umrćđu. Umrćđan snýst öll um meinta grimmd og hrottaskap Rússa, yfirgang ţeirra og ágang gagnvart réttmćtu frelsi friđelskandi nágranna-ţjóđar sem ţar ađ auki er náin frćndţjóđ ţeirra !

 

En af hverju eru Rússar svona vondir viđ Úkraínumenn og af hverju er aldrei fjallađ beint um hina raunverulegu undirrót stríđsátakanna í hinni litríku fjölmiđla-umrćđu Vesturlanda ? Er ţađ kannski vegna ţess ađ sannleikurinn er annar en látiđ er í veđri vaka ?

 

Fyrir rúmum 30 árum var sćmilega friđvćnlegt í heiminum vegna ţess ađ honum hafđi ađ mestu veriđ skipt upp í áhrifa-svćđi austurs og vesturs. Skilgreining ţar ađ lútandi var í öllum meginatriđum virt af ráđandi öflum beggja vegna borđsins. En svo liđađist sovéska ríkjasambandiđ í sundur og upplausn fylgdi í kjölfariđ !

 

Allt í einu urđu kapítalistar einir um hituna í öllum málum, ekki síđur í austri en vestri. Mikil gróđaveisla varđ í kringum brunaútsölur á ríkiseignum í hinum fyrrverandi Sovétríkjum og alls kyns rćningjar óđu ţar uppi og urđu moldríkir á svipstundu. Enginn var ađ hugsa um ríkis-hagsmuni Rússlands sem var ţó líklega ađalerfingi ţrotabúsins. Og ţannig gekk  síđan ránskapurinn fyrir sig í nokkur ár !

 

Ţegar frá leiđ ţóttust vestrćnir ráđamenn sjá ađ Rússland vćri ekki svo ýkja burđugt ţar sem Sovétríkin vćru úr sögunni. Gamla sovéthrćđslan fór ţví ađ renna af ţeim. Ţeir fóru síđan ađ velta fyrir sér nýjum möguleikum til aukinna áhrifa og valda í austri. Obama Bandaríkjaforseti sagđi meira ađ segja, svo seint sem eftir hernám Krímskagans 2014, ađ Rússland vćri bara miđlungsríki sem vćri ađ reyna ađ spila sig meira en ţađ vćri !

 

Viđ ţessar ađstćđur ţóttust Vesturveldin sjá ýmis sóknarfćri í breyttri stöđu og hugđust eins og Hitler forđum hefja sókn í austur og nćla sér ţar í aukin völd og nýlendur til frekara arđráns !

 

Ţau hafa eignast bandamenn í úkraínskum ráđamönnum sem vilja ganga á mála hjá ţeim. Ţeir munu flestir hafa fengiđ sín laun fyrir ţann stuđning en örlög úkraínsku ţjóđarinnar virđast ekki á nokkurn hátt hafa veriđ innifalin í hinu viđskiptalega valdaframsali !

 

En í allri sinni margmilljarđa dollara fjárfestingasókn í austur virđist skamm-sýnum ráđamönnunum í Brussel og Washington hafa međ öllu yfirsést sú stađreynd, ađ ţađ hlyti ađ koma ađ ţví ađ Rússar nćđu vopnum sínum aftur og nú ţegar hefur ţađ komiđ í ljós og sannast međ ţeim hćtti ađ allur heimurinn stendur á öndinni vegna ástandsins !

 

Framhald mála eftir aldamótin 2000 leiddi nefnilega til ţess ađ Rússland var eftir 2010 aftur orđiđ gildisbćrt stórveldi undir eigin nafni og vildi sem önnur stórveldi umfram allt halda sinni áhrifa-stöđu alveg óbreyttri. Ásókn Vestur-veldanna til austurs og fjárhagsleg yfir-taka ţeirra á ríkiskerfinu í Úkraínu hefur hleypt svo illu blóđi í Rússa ađ ţeir segjast nú til í allt. Hvađ ţýđir sú yfirlýsing ţeirra ?

 

Hverjir eru í raun ađ ráđast á hvern ? Natósagnfrćđin segir auđvitađ ađ Rússar hafi ráđist á Úkraínu, sem er rétt svo langt sem ţađ nćr, en fjármálaleg innrás Vesturveldanna í landiđ til yfirtöku á auđlindum ţess er samt orsökin !

 

Ţađ var veriđ ađ breyta Úkraínu í leppríki Vesturveldanna međ ţegjandi samţykki úkraínskra ráđamanna, en ekki endilega međ sama samţykki úkraínsku ţjóđarinnar sem slíkrar. Ţarna er ţví enn um ađ rćđa átök austurs og vesturs um áhrifasvćđi !

 

Vesturveldin hófu ţannig ágang sem Rússar töldu sig ţurfa ađ svara međ fullri hörku og ţeir hafa sýnt ađ ţeim er alvara međ ţađ ađ líđa ekki slíkt. Viđkvćmu valda-jafnvćgi hafđi ţannig veriđ raskađ og Rússar hafa sýnt ađ ţeir munu alls ekki sćtta sig viđ ţćr breytingar á fyrra valdahlutfalli sem er veriđ ađ framkvćma !

 

Natósagnfrćđi er ekki ţeirra sterka fag nema ţá í algerlega ţveröfugum skilningi ţess hugtaks. Ţeir hafa sína andstćđu ţar á móti og Rússasagnfrćđin verđur líklega seint vestrćn frćđigrein !

 

Hvađ verđur er erfitt ađ spá um, en ljóst er ađ Efnahagssamband Evrópu og Bandaríkin telja sig verđa ađ fá nýlendur sem fyrr til ţess ađ lifa á arđráni ţeirra. Arđrán hefur alla tíđ veriđ undirstađa velmegunar Vesturlanda enda eru ţau blóđsugu-arftakar Rómverjanna gömlu !

 

Rússar munu standa ţar á móti međ bandamönnum sínum, sem vita ađ röđin kemur síđar ađ ţeim, ef Rússland heldur ekki velli. Möguleikar á stórstyrjöld eru alveg fyrir hendi ţó úkraínska eldflaugin sem hafnađi á pólskri jörđ nýlega hafi ekki náđ ađ hleypa öllu í bál og brand !

 

Samt virđist Úkraínuforseti hafa gert allt sem hann gat til ađ fá fólk til ađ trúa ţeirri stađhćfingu ađ Rússar hefđu skotiđ ţessari eldflaug og fá ţannig Nató inn í átökin sem hefđi getađ ţýtt gjöreyđingarstyrjöld. Hvađ gekk honum eiginlega til međ svo hćttulegum málflutningi fyrir örlög allrar heimsbyggđ-arinnar ?


Pólverjar létu samt ekki lokkast og sýndu fram á ađ Rússar hefđu ekki átt ţessa eldflaug, ţannig ađ skýrri hugsun pólskra stjórnvalda á ögurstund er kannski ţađ ađ ţakka ađ ekki fór verr í ţađ skiptiđ !


Stríđsćsingar hafa aldrei veriđ leiđ til neinna lausna í átakasögu ţjóđa, hvorki í gegnum Natósagnfrćđi eđa ađra villuleiđandi sagnfrćđi !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 36
  • Sl. sólarhring: 102
  • Sl. viku: 1266
  • Frá upphafi: 317460

Annađ

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 965
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband