Leita í fréttum mbl.is

Bandalag réttlćtisins

Í bókinni Mađurinn međ stálhnefana er glćpalýđur búinn ađ yfirtaka allt valdakerfi í tiltekinni borg og spilling allsráđandi. Viđ ţćr ađstćđur lćtur höfundurinn nokkra sómakćra borgara stofna leynileg baráttusamtök gegn óvćrunni og eru ţau nefnd Bandalag réttlćtisins. Ţađ endar svo međ ţví ađ réttlćtiđ sigrar og sigur er unninn á glćpamönnunum.

Í bókinni Morđstöđin hf fer Jack London mjög merkilega leiđ í svipuđum efnum varđandi hreinsun á spilltu ţjóđfélagi. Hann lćtur mann stofna fyrirtćki sem sérhćfir sig í ţví ađ taka ţá menn endanlega úr umferđ sem hafa unniđ sér dauđasök međ ţví ađ níđast á ţjóđfélaginu í krafti valdastöđu og sérréttinda.

Ţađ er stofnađ til réttarhalds í hverju tilviki og ferill viđkomandi manns yfirfarinn af stökustu nákvćmni, sótt og variđ. Ef líflátsdómur er kveđinn upp er tilteknum manni í ţjónustu fyrirtćkisins faliđ ađ sjá um framkvćmd verksins. Ţeir sem taka verkin ađ sér eru háskólaprófessorar og ađrir hámenntađir menn, sem hafa ákveđiđ ađ verja borgaralegt öryggi og ţjóđfélagslegt réttlćti međ ţví ađ hreinsa illgresiđ burt úr mannlífsgarđinum međ valdbeitingu af ţessu tagi !

Ţessi bók Londons er ađ sjálfsögđu mikiđ umhugsunarefni, en ađ mínu mati skemmir hann athyglisverđa hugmynd sína međ ţví ađ láta forustumann og stofnanda fyrirtćkisins eyđileggja ţađ innan frá međ ţví ađ fella dauđadóm yfir sjálfum sér og krefjast síđan sjálfsvarnarréttar síns. Í framhaldinu tekur hann svo sína eigin starfsmenn af lífi. Kannski hefur London haft ţar til viđmiđunar hiđ fornkveđna spekimál, ađ ţeir sem beita sverđi muni fyrir sverđi falla.

En ţađ er hinsvegar spurning hvenćr og viđ hvađa ađstćđur almennir borgarar eigi ađ stofna einhverskonar Bandalag réttlćtisins og hvort sú stađa geti komiđ upp ađ ţörf verđi talin á ţví ađ stofna fyrirtćki af ţví tagi sem Jack London hugsađi sér  ?

Ţađ gćti í fyrsta lagi veriđ tímabćrt ţegar trú manna á réttlćti yfirvalda er ekki lengur til stađar og búiđ ađ drepa niđur nánast allt traust í ţeim efnum. Sú stađa virđist t.d. ţegar uppi hér á landi !

Ţađ gćti veriđ tímabćrt ţegar enginn jafnréttisstuđull er viđhafđur í úrlausnarmálum gagnvart borgurum ţjóđfélagsins. Sú stađa virđist líka uppi í málum af hálfu stjórnvalda hérlendis !

Ţađ gćti veriđ tímabćrt ţegar misréttiskerfi hefur veriđ sett upp á sérgćskuforsendum í einhverju ţjóđfélagi. Ţađ var t.d. ótvírćtt gert hér međ bölvuđu kvótakerfinu !

Ţađ gćti líka veriđ tímabćrt ţegar bankar einhvers lands eru gerđir ađ bastillum ranglćtisins gagnvart mannréttindum almennra borgara og hverju höfum viđ stađiđ frammi fyrir, - almennir borgarar ţessa lands  -  ađ undanförnu ?

Lýđrćđislegt heróp hefur hrópađ ţađ út um alla Evrópu í marga áratugi, ađ allar bastillur beri ađ rífa niđur. Ţar eigi ekki ađ standa steinn yfir steini !

Hvernig stendur ţá á ţví ađ slíkar bastillur ranglćtisins hafa veriđ reistar bćđi hérlendis og erlendis á ţeim hinum sama tíma, helgađar Mammon og öllum ígildum andskotans ?

Ţađ er lítiđ lýđrćđi fólgiđ í ţví ađ hafa hugsjónina alltaf í orđi en ekki á borđi.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki heiđrađ lýđrćđiđ í verki međ ţeim hćtti ađ ţađ hafi samrćmst fjálglegum yfirlýsingum ţeirra fyrr og síđar.

Ţađ er vont ađ vera Íslendingur ţegar búiđ er ađ eyđileggja forsendur okkar til ţess ađ geta aliđ međ okkur heilbrigt ţjóđarstolt. Mér finnst ţađ afskaplega vont, en vonandi kemur ađ ţví ađ viđ heimtum ţćr forsendur aftur og ţá verđum viđ ađ sýna ţá ábyrgđ ađ ganga framvegis vel um okkar ţjóđargarđ.

Ég hef alltaf veriđ yfirlýstur vinstri mađur, en ég hef séđ mér til mikilla vonbrigđa margan vinstri manninn hegđa sér síst betur - í ráđherrastól - en hćgri menn hafa yfirleitt gert. Og ég tel ađ vinstri mađur sem hegđar sér engu skár en hćgri mađur, sé í raun og veru enginn vinstri mađur og geti jafnvel talist verri en nokkur hćgri mađur, ţví júdasar-eđliđ og áráttan er alltaf sending beint úr opnu helvíti.

Hver mađur sem er fullur af eigingirni ćtti auđvitađ, sérgćsku sinnar vegna, ađ vera kjaftfastur í kolbláum eiginhagsmunaflokknum, og ég man eftir nokkrum mönnum í gamla Alţýđubandalaginu sem áttu í raun og veru hvergi annarsstađar heima en í spillingarhúsakynnum hćgri manna.

Ég skildi aldrei hvađ slíkir menn voru ađ gera í Alţýđubandalaginu, nema ţá til ţess eins ađ skemma ţađ vísvitandi innanfrá.

Og einhvernveginn finnst manni ţegar mađur skođar málin, ađ hér á árum áđur hafi nú veriđ í öllum flokkum einhverjir ţjóđlega hugsandi menn međ gagnlegar hugmyndir.

Ađ minnsta kosti var ţađ svo - fyrir daga frjálshyggjućđis stóra Ţjóđarógćfu-flokksins, ađ mađur taldi sig stundum geta gefiđ sér ţađ, ađ til vćru ţeir menn til hćgri sem hugsanlega vćri hćgt ađ bera eitthvađ traust til á íslenskum mannskilnings-forsendum. En sú stađa er sannarlega ekki fyrir hendi í dag.

Menn ţeir sem enn tilheyra ţeim flokki, geta ekki lengur notiđ neins trausts sem hagsmunagćslumenn fyrir íslenska ţjóđarhagsmuni. Ţeir hafa  gjörsamlega fyrirgert ţví trausti og ţađ skilja allir nema blindir blámenn í björgum Valhallar.

Ţjóđarógćfuflokkarnir báđir, sá stóri og sá litli, eyđilögđu nefnilega ríkishagsmuni Íslands og velferđarstöđu ţjóđarinnar !

Ţeir gerđu ţađ vegna ţess ađ ţjóđlega hugsandi menn voru ekki lengur í forustu ţeirra, engir voru ţar til ađ bremsa vitleysuna af. Ţarna voru ađeins frjálshyggjusinnađir framagosar og eiginhagsmunapotarar, - ótíndir spílavítisgaurar, menn sem hefđu líklega seint veriđ taldir hćfir til ţátttöku og starfa í Bandalagi réttlćtisins.

Innblásin orđ, ćttuđ frá Cicero hinum rómverska, eru einkunnarorđ Missouri fylkis í Bandaríkjunum. Í bandarískri sögu eru ţau trúlega arfur frá tímum sjálfstćđisbaráttunnar og hljóđa ţannig á latínu -  Salus Populi Suprema Lex Esto,  - á ensku - Let the Welfare of the People Be the Supreme Law, - á íslensku - Látum Velferđ Ţjóđarinnar vera Ćđstu Lögin.

Einkunnarorđ af ţessu tagi hafa sjaldnast veriđ mikils metin af íslenskum stjórnvöldum og síst af öllu eftir 1991, en ţurfa svo sannarlega ađ standa í fullu gildi á ţví Íslandi sem viđ ţurfum lífsnauđsynlega ađ sjá rísa í komandi tíđ.

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 128
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband