Leita í fréttum mbl.is

Slysaöldurnar í samfélaginu

 

Það er með ólíkindum hvernig slys eiga sér stundum stað. Það virðist oft eins og fari þá í gang ferli margra undarlegra tilviljana sem verða til þess að einhver missir lífið eða er örkumlaður fyrir lífstíð. Og það þarf ekki langan tíma til þess að allt breytist í lífi fólks og verði aldrei aftur það sama.

Öll þekkjum við einhver slík tilfelli, þar sem ljós hefur breyst í myrkur og gleði augnabliksins í nístandi sársauka. Hversu hverful eru yfirleitt öll þessi gæði sem við erum að reyna að höndla með baráttu okkar dags daglega.

Á snöggu augabragði getur allt breyst og það sem fer kemur aldrei til baka.

Maður við störf á jörð sinni ætlar að skreppa heim til bæjar á hjólinu sínu, en ekur út af við bæjarlækinn og kastast niður í grjótfarveginn þar, hlýtur mikla áverka á höfði, er fluttur með þyrlu suður, fer í aðgerð, er haldið í öndunarvél og deyr síðan án þess að nokkuð verði við því gert.

Hjón á besta aldri eins og sagt er, eru að fara norður í land til að dytta að gömlu húsi sem þau eiga þar, ætla að nota fríið sitt í það að mála það og laga til.

Þau taka barnabarn sitt með og tilhlökkun og gleði fyllir hjörtun. Á leiðinni lenda þau í árekstri, slasast öll og maðurinn svo illa að hann deyr.

Af þessu tagi eru dæmin sem við heyrum um og við verðum hrygg og finnum svo til með þeim sem verða fyrir þessum slysum, þessum samferðamönnum okkar í lífinu sem fara svona skyndilega og þá ekki síður aðstandendum þeirra, því hér á þessu fámenna landi er svo rík þörfin fyrir samstöðu fólks.

En það eru þó ekki þessi slys sem valda mestum ófarnaði í þjóðfélaginu. Þau eru samt vissulega voðaleg sem slík, en þau hafa það í för með sér að þau þjappa fólkinu saman, þau auka samkennd og vinarþel, styrkja lífsheildina, segja okkur að við þurfum að bera byrðarnar saman, benda okkur á að hugga hvert annað og vera hvert öðru til styrktar. Þau kalla fram það góða í hverjum þeim sem getur fundið til með öðrum - þeim sem líða -  og það geta flestir menn sem betur fer.

En það eru hin slysin, slysin sem gerast vísvitandi og viljandi af mannavöldum, vegna græðgi og yfirgangs, spillingar og fjárglæframennsku, sem eru í raun verri því þau hafa ekkert gott í för með sér. Þau eru ill eins og þeir sem valda þeim.

Þau sá hatri og hefndarhug um allt þjóðfélagið, tortryggni og vantrausti, þau  eru verðtrygging alls þess sem vont er, þau valda meiri óhamingju en nokkur getur ímyndað sér og skilja mjög víða eftir sig sviðna jörð í sálarlegum skilningi.

Þannig slysum hafa íslensk stjórnvöld staðið fyrir í þessu þjóðfélagi á undanförnum árum með sofandahætti og kæruleysi fyrir almannahag.

Þannig slysum hefur bankakerfið valdið með einkavæddri ágirnd sinni og fjármálaspillingu. Þannig slysum hefur bókstaflega verið hellt yfir þjóðina undanfarin ár fyrir tilverknað þeirra afla sem áttu að hlífa þjóðinni við slíkum áföllum !

Örin eftir þessi slys hafa grafið sig djúpt og munu lengi setja kvalamark sitt á íslensku þjóðarsálina og þessi slys eru og munu verða yfirvöldum þessa lands til ævarandi hneisu og skammar.

Þetta eru nefnilega slys sem hefðu aldrei átt sér stað ef menn hefðu sinnt skyldum sínum í opinberum stöðum. Öll varnartæki voru til í kerfinu og það kostaði mikið og kostar enn að hafa þau til staðar, en þeir sem áttu að sjá um að þau væru virk voru uppteknir í veislu ábyrgðarleysisins og létu allt hrynja.

Engin þjóð getur haft á framfæri sínu fokdýrt öryggiskerfi um almannahagsmuni sem skilar ekki neinu þegar til kastanna kemur !

Svo neita fulltrúar þessara sömu afla, pólitísk elíta þessa lands, að axla ábyrgð sína og menn hella afleiðingum skamma sinna yfir fólkið í landinu.

Þvílíkir slóðar og slysarokkar hafa það verið sem valist hafa til forustu í þessu landi mörg undanfarin ár, en er það annars nokkuð undarlegt ?

Það geta auðvitað engir almennilegir menn komist á toppinn í gjörspilltum stjórnmálaflokkum og þjóðhættulegu bankakerfi.....

Þar komast aðeins þeir til valda sem eru skilgetin afkvæmi viðurstyggðarinnar !

Við þurfum að komast frá hinni hagfræði-hönnuðu slysaöldu í þjóðfélaginu og binda enda á slíkt ógæfuferli og það sem af því hlýst,  - því það er nógu erfitt fyrir okkur öll að glíma við afleiðingar þeirra slysa sem enginn mannlegur máttur fær ráðið við !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 126
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband