Leita í fréttum mbl.is

Eitt lítiđ Listastrandarkvćđi !

Sjálfsagt spyr nú einhver Álfur utangátta: Hvađa Listastrandarkvćđi er ţetta, hvernig varđ ţađ nú eiginlega til ? Og ég skal svara ţví undanbragđalaust.

Ţađ varđ til nánast af sjálfu sér í sumar ţegar Skagaströnd virtist sem aldrei fyrr breytast í eitthvađ sem öllu heldur gćti heitiđ Listaströnd !

Já, Listaströnd !!!

Og ţá má spyrja, hvađ liggur ađ baki ţví áliti eđa ţeirri skođun, ađ skapađur veruleiki samtímans sé nánast látinn ćpa eftir slíkri nafnbreytingu ?

Ţađ er fyrst til ađ taka ađ allt í mannlífinu virđist orđiđ heltekiđ ýmisskonar menningar-algleymi svo ekkert annađ kemst ađ lengur. Venjulegt mannlíf hinna mörgu hverfur alveg í skuggann fyrir stöđugri uppákomu-áráttu hinna fáu, enda ganga hin veraldlegu máttarvöld í öllu á undan sem forustusauđir í ţessari međvitundarlausu menningardýrkun sem virđist tröllríđa öllu í ţjóđfélaginu og ţá ekki síđur í litla bćnum undir Borginni :

Ađ menningunni er sagđur feikna fengur

ţó fćsta geri styrkir betur gáđa.

En listafólk um allar götur gengur

og gjörningar á flestum sviđum ráđa.

Um heimafólkiđ hugsar enginn lengur

ţví hreppsnefndin sér ađra leiđ til dáđa !

Venjulegt íslenskt mannlíf ţykir greinilega lítiđ spennandi boriđ saman viđ nýju fötin keisarans og nútímalega skraddaramennsku menningargeirans. Ţar er ţess krafist án afláts,  ađ allir bugti og beygi sig fyrir fötunum sem ekki eru til ! Og fólk er nánast varađ viđ ađ vera ađ harma ţađ sem fariđ er, ţví ţađ sem komiđ hafi í stađinn sé svo miklu betra, ţó ţađ sé ekki neitt og hafi aldrei veriđ neitt og verđi líklega aldrei neitt - nema hjákátlegur hégómi, vanitatum vanitas :

Ţađ atvinnulíf sem allt viđ burtu misstum

var ekkert nema ţrćldómur og tjara.

En nú er hérna mikil kássa af kvistum

kynlegum - sem ráfa um allt og stara.

Og stefnt ađ ţví - ađ allir lifi á listum

og lykti bćđi af kúadellu og ţara !

Og eins og fyrr segir, forsjárhyggju-gúrúarnir, hitaveituhöfđingjarnir og sjóđsstjórar almennings-pyngjunnar á Skagaströnd, vita gjörla í hvađ ţeir vilja leggja peninga almennings.  Ţađ er sko ekkert álitamál, ţví menningarvitar verđa - jú, ađ standa undir nafni sem slíkir :

Og hreppsnefndin vill hlynna ađ gróđri slíkum

og hugsar stórt og talar margt í síma,

ţó minna fari fyrir anda ríkum

og fundiđ ljós sé kannski bara skíma.

En ljómi er yfir listamannaklíkum

ţó listaverkin bíđi öll síns tíma !

Ţví hvert og eitt ţessara óköruđu listaverka virđist eiga ađ segja á sínu hljóđlausa máli, í gegnum hvern vanskapađan gjörning, eins og Jóhanna jafnađarmennskunnar : " Minn tími mun koma !"

Og ţeir sem halda ţar í kenninguna og trúa blint á menninguna, láta ţví engan bilbug á sér finna og horfa hátt til vega, fullir af sannfćringu sjálfumgleđinnar :

Svo hreppsnefndin vill halda sínu striki

og hefur ennţá fé í buddu sinni.

Ţar sjálfsmatiđ er steikt í stjörnu bliki

sem stćlist viđ hin alţjóđlegu kynni.

Hún galar eins og hani á hćsta priki

sem heldur ađ hann stjórni tilvistinni !

Og ţegar svo er komiđ virđist alţjóđleg og heimsleg hugsun farin ađ gera vart viđ sig svo um munar, hjá toppum tilverunnar í litlum bć norđur viđ Dumbshaf. Ţá er einnig stutt í ţađ, ađ stórveldisvitundin hjá ţeim og menningarháklassa-algleymiđ gíri ţá upp í ađ bjóđa fulltrúum annarra forustuvelda til fagnađar og veisluhalda heima á Listaströnd:

Og sendiherrum stórvelda hún stefnir

í stađlćg vé og borgar kostnađ allan.

Og svo til veislu vitanlega efnir

og vandar sig međ rćđuflutning snjallan.

Ţví snobbinu margir eru undirgefnir

og alltaf hringir víđa - sauđabjallan !

Og Ísland í dag er nú ekki ţađ sem ţađ var, og ekki Skagaströnd heldur, enda eru hjörtu mannanna sjaldnast yljuđ upp međ hitaveitu og enn síđur hitaveitu međ innbyggđum reikningsskekkjum.

Margt hefur gengiđ á í skiptum fastsetu-yfirvaldanna hér á Ströndinni og almennings ađ undanförnu og ţađ er fariđ ađ valda mikilli kólnun í samskiptum, samfara víđtćku og vaxandi vantrausti. Stađan varđandi ţađ er ţví eftirfarandi :

Ţó listafólk um allar götur gangi

og gjörningar á flestum sviđum ráđi,

og menningin viđ sumum ilmi og angi,

er andinn hvergi er ţjóđarsálin dáđi.

Ţví traustiđ liggur dautt á víđavangi

viđ verri stöđu mála en nokkur spáđi !

Viđ nćstu hreppsnefndarkosningar verđur trúlega borinn fram alveg nýr MADO-elítulisti og ţví hefur veriđ haldiđ fram ađ hann eigi ađ heita LISTALISTINN !

Hvađ annađ ?

 

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 118
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband