Leita í fréttum mbl.is

Nýja NATO - Hugleiđingar ađ gefnu tilefni

Nú eru ţegar liđin nokkur ár frá ţví ađ Nýja Nato steig sín fyrstu skref á styrjaldarbrautinni. Og ljót voru ţau skrefin og ógeđsleg, eins og allt sem snýr ađ manndrápum. Gamli stofnsáttmálinn var ţá ţegar úr sögunni hvađ yfirstjórnina snerti, valdakjarnann sjálfan, ţađ er ađ segja Bandaríkin, en undirađildar ţjóđirnar, hin ríkin, héldu ţó áfram ađ ímynda sér ađ hann vćri í gildi. Ţađ var hin tálbeitta hugsvölun ţeirra.

En valdakjarninn í hinu fyrrverandi varnarbandalagi vestrćnna ţjóđa var búinn ađ breyta skipulaginu. Ţađ hafđi veriđ haldinn útbreiđslufundur viđ eldinn niđri og oddvitinn stóđ ţar auđvitađ á sínum stađ, í ţvögunni miđri, svo tekin sé líking af kvćđi Davíđs Stefánssonar “ Vér skipuleggjum “.

Mergur málsins er ţví ađ gamla Nato er horfiđ og reglur ţess međ ţví. Bandalagiđ átti um tíma í miklum erfiđleikum međ ađ finna fótfestu og hlutverk í breyttum heimi eftir ađ kalda stríđinu lauk. Ţađ varđ ţví ađ skilgreina hlutverk Nató upp á nýtt og brátt birtist ţađ umheiminum enn naktara og augljósara en áđur, en ţađ er einfaldlega ađ tryggja bandarísk yfirráđ og áhrif um veröld alla.

Ţađ eru nóg vopn til í geymslum Sáms frćnda og vafalaust nóg frambođ af hershöfđingjum sem vilja ólmir fá ađ nota ţau. Til hvers er ađ hlađa öllum ţessum morđtólum upp, ef ţađ má aldrei nota ţau, segja generálarnir í Washington, vafalaust stórhneykslađir á sína vísu !

Nú eru Sovétríkin ekki lengur til ađ halda aftur af stríđsmönnum Pentagon-klíkunnar, nú er hćgt ađ leika sér án ţess ađ eiga beint á hćttu kjarnorkustríđ. Ţannig virđist viđhorfiđ vera ! Varnarbandalag er ţví taliđ úrelt hugtak í dag, ţar sem enginn árásarađili er fyrir hendi sem óttast ţarf. Og hershöfđingjarnir kunna sér ekki lćti. Ţeir hafa ţví breytt skipulaginu, búiđ til árásar-bandalag, enda finnst ţeim ţađ miklu flottara. Nú er svigrúm til ađ nota tćkin og tólin og sjá almennilega hvernig ţau virka. Ţađ er sko munur en í gamla daga.

Og Nýja Nato hefur ţví sturtađ stofnsáttmála Gamla Nato niđur um gullhúđađa klósettiđ í Pentagon sem var sérstaklega hannađ fyrir ţá ćđstu…. engar reglur, takk, ţćr flćkja bara máliđ ! En fyrir Breta og Ţjóđverja og annađ undirmálsliđ yfir í henni Evrópu er sjálfsagt ađ gera máliđ huggulegra međ ţví ađ tala hlýlega um gamla stofnsáttmálann. Hann var nú einu sinni undirritađur hér á árum áđur af fulltrúum allra ţessara friđelskandi ţjóđa sem eru svo sannar og sjálfum sér samkvćmar. Og auđvitađ gerđu ţćr ţađ í góđri trú – til ađ bjarga heiminum !

En í veruleikanum er Gamla Nato dottiđ út, en Nýja Nato siglir fyrir ţöndum herseglum inn í sitt tvíeflda og endurhannađa hlutverk – ađ gćta hagsmuna heimsveldis Pentagon og Wall Street-manna í hvívetna !

Nú skal gert út á nýja nýlendustefnu. Auđlindir jarđar mega ekki vera í höndum einhverra ómerkilegra undirmálsţjóđa. Olía, demantar og gull, allt á ţetta auđvitađ ađ tilheyra ţeim sterkasta ! Ţannig hljóma raddirnar frá Pentagon, Washington og Wall Street. Og samkvćmt herfrćđinni er ţađ sóknin sem gildir en ekki vörnin. Allir skulu fá ađ sjá og viđurkenna, ađ Kaninn er stćrstur, voldugastur og mestur  ! Ţađ er Stórkaninn sem rćđur landakortum heimsins í dag.

Nýja Nato á ađ sjá til ţess ađ Sámur gamli hafi allsstađar úrslitavöld. Heimsherlögreglan er í nánd viđ teikniborđiđ og hún verđur hönnuđ í hvívetna í anda Pinochets og hans líka. En ţví miđur verđur ekki friđvćnlegra í henni veröld viđ ţetta nýja skipulag, heldur ţvert á móti – ţađ segir sig sjálft.
Sá sem vill ráđa yfir öllum, ţarf nefnilega stöđugt ađ fćra sönnur á ađ hann hafi styrkinn til ţess. Ţađ verđa  ţví vafalaust fleiri sem munu hljóta ţau örlög ađ verđa sprengdir í loft upp, og jafnvel aftur á steinöld, á nćstu árum. Írakar og Serbar verđa ekki ţeir einu !

Ef eitthvert ríki á nú sögulega samsvörun viđ assýríska heimsveldiđ, ţá eru ţađ Bandaríki Norđur Ameríku sem virđast  algjörlega hafa snúiđ baki viđ hugsjónum og gildum Washingtons, Adams, Jeffersons og Lincolns – allir ţessir menn myndu trúlega snúa sér viđ í gröfum sínum ef ţeir sću atburđarás heimsmálanna í dag. Barniđ sem ţeir ólu upp er orđiđ ađ ófreskju í augum tugmilljóna manna út um allan heim. Ţađ hefur nánast breyst í andstćđu sína. 

Ţađ er skiljanlegt ađ Kofi Annan hafi notađ tćkifćriđ á síđustu dögum sínum sem ađalritari S. Ţ. til ađ vara Bandaríkin viđ afleiđingum óbreyttrar stefnu.

En ţađ er kannski ekki svo ýkja langt í skuldadagana, ţar sem ţví hefur veriđ spáđ, ađ ógnaratburđir muni leika Bandaríkin svo, ađ ţau muni sundrast ađ mestu og ofurvald ţeirra hverfa.Valdshroki ţeirra er orđinn ađ höfuđsynd, ţví heimsvaldastefna er dauđastefna, ekki síst fyrir ţann sem heldur henni fram.

Ţađ er risafingur ađ rita á veggi um allan heim dóminn yfir Bandaríkjunum –  Mene tekel upharsin !Honum verđur ekki áfrýjađ eđa breytt úr ţessu.

Rúnar Kristjánsson.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 128
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband