Leita í fréttum mbl.is

AF HVERJU ER FRAMSÓKN REFSAÐ ?

Aftur og aftur hafa foringjar Framsóknarflokksins verið spurðir að því í fjölmiðlum hversvegna nánast allar skoðanakannanir bendi til þess að þeir muni fá mjög slæma útkomu í komandi þingkosningum. Og aftur og aftur svara þeir því að þeir skilji það alls ekki. Jafnframt kvarta þeir hástöfum yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn fái þakkir fyrir allt sem stjórnvöld hafi gert en þeir ekki. Það liggur við að þeir spyrji eins og Frelsarinn: “ Hvar eru hinir níu ?”

Það er mjög skiljanlegt að forustumenn Framsóknarflokksins veigri sér við að koma með skýringar á umræddu atriði. Þeir vita nefnilega að skýringarnar eru  þess eðlis að það þjónar enganveginn markmiðum þeirra að halda þeim á lofti.

Í fyrsta lagi hefur stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar frá 1995 einkennst af yfirburðum fyrrnefnda flokksins varðandi alla stefnumótun. 

Framsókn seldi sig til fylgilags við íhaldið fyrir nokkra ráðherrastóla, einn banka o.s.frv.o.s.frv., og hefur síðan lafað með sem hækja - eins og kratar áður.

Gömul einkavæðingaráform Bláliða hafa því náð fram að ganga með stuðningi Framsóknar - fyrir veittan ágóðahlut.

Framsókn er því í hugum fjölmargra flokkur sem hefur svikið flest af því sem hann átti að standa fyrir og fyrir slíkt framferði er flokkum refsað þar sem það er hægt. Þar sem lýðræði gerir það mögulegt.

En af hverju fær íhaldið miklu betri útkomu í skoðanakönnunum en Framsókn – spyrja margir - liggja ekki sömu verkin eftir þessa aðila ?

Jú, en verkin eru metin með mjög ólíkum hætti af fylgismönnum flokkanna.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki verið að svíkja með sama hætti og Framsóknarflokkurinn. Hann hefur verið grundvallarstefnu sinni trúr – að hygla þeim ríku á kostnað almennings. Það hefur alltaf verið meginatriði í stefnu íhaldsins að leika varðhund fyrir auðstétt landsins – hinn ráðandi kolkrabba.
Þeir sem hafa kosið flokkinn hafa alltaf verið sáttir við þá stefnu, kannski vegna þess að þótt þeir telji sig stóra karla vita þeir hver passar upp á þá, eða þeir eru pólitískir ungliðar sem eiga sér þann draum helstan að verða ríkir og færir um að troða á öðrum,  - og svo eru alltaf þeir sem eru lítilla sæva og sanda og ánægðir með það eitt að nöguðu beini sé hent fyrir fætur þeirra af og til.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að framkvæma það eitt undanfarin ár sem hann hefur til fleiri ára stefnt að. Hann vantaði bara lengi vel tilsniðna hækju til að koma leikbrögðum sínum í gegn. Framsókn gaf sig í það auma hlutverk !

Fyrir 1980 voru reyndar borgaraleg frjálslyndisöfl til í Sjálfstæðisflokknum sem gátu verið mjög þjóðleg á sína vísu, en ákveðin atburðarás á þeim tíma kvað þau nánast niður. Eftir það náði frjálshyggjan að leggja flokkinn algerlega undir sig og síðan hefur hann verið smitberi þeirrar farsóttar.

Kjósendur íhaldsins eru samt að yfirgnæfandi hluta sáttir við sinn flokk. Þeir eru fyrst og fremst sérréttindahluti þjóðarinnar, þeir sem njóta og hafa notið sérréttinda  fyrir atbeina flokksins og þeir sem stefna að því í framtíðinni að verða sérréttindaaðilar með sama hætti. Gagnvart slíku liði þýðir ekkert að tala um þjóðlegar félagsdyggðir, samstöðu heildarinnar, hugsjónir samhjálpar og stuðning við fátæka. Í Sjálfstæðisflokknum eru mestanmegnis einstaklingar sem hafa allan sinn hugsunargang rígnegldan við eigin hagsmuni, annað kemst hreinlega ekki að. En þeir hafa þó jafnan vitað að þeir þurfa á félagslegu tæki að halda til að vernda sína hagsmuni.

Þessvegna og aðeins þessvegna er Sjálfstæðisflokkurinn til !

Kjósendur hans þurfa aldrei að líta svo á að flokkurinn svíki sína stefnu og sitt fólk. Hann er hagsmunabandalag sérréttindaliðsins, þeirra manna sem telja að þeir eigi alltaf rétt á einhverju umfram náungann. Þessvegna eru svokallaðir sjálfstæðismenn innmúraðir og ófrávíkjanlegir í hollustu sinni við flokkinn eins og þungavigtarmaður einn orðaði það víst í títtnefndum tölvupósti.
En þó að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið að svíkja með sama hætti og Framsókn, það er að segja sína kjósendur, þá hefur hann verið að svíkja samt.

Hann hefur verið að svíkja þjóðina, heildarhagsmuni velferðarkerfisins, öryrkja og aldraða, kynslóðina sem byggði á árum áður upp velferð þessarar þjóðar, hann hefur verið að svíkja byggðir landsins í gegnum svívirðubrask kvótakerfisins, hann hefur verið að innleiða stóraukna mismunun og vaxandi stéttaskiptingu í þjóðfélagi okkar og spillt félagslegum verðmætum og gæðum af fullkomnu miskunnarleysi frjálshyggjunnar. Og kjósendur hans virðast yfirleitt alveg sáttir við þetta framferði, enda er það trúlega í samræmi við sálarlega innréttingu þeirra allflestra.

Kjósendur íhaldsins sjá því enga ástæðu til að refsa sínum flokki. Hann er alltaf að gera það sem þjónar hagsmunum yfirstéttaraflanna og fylgifiska þeirra.

En Framsóknarflokkurinn, sérstaklega í tíð Halldórs Ásgrímssonar, hefur tekið þátt í því með ýmsum hætti að brjóta niður þá félagslegu uppbyggingu sem gerð var á fyrri árum með fullum stuðningi hans og jafnvel undir forustu hans.

Það er álit fjölda fólks um land allt.

Þessvegna hefur mörgum blöskrað framferði Framsóknarflokksins á síðustu árum og þessvegna hafa menn fengið skömm á Framsóknarflokknum. Menn sjá þennan yfirlýsta félagshyggjuflokk algerlega í þjónustu Sjálfstæðisflokksins eða öllu heldur í klónum á honum, og telja hann hafa svikið sínar hugsjónir vegna persónulegra valdadrauma forustumannanna.

Þessvegna er verið að refsa Framsókn og þessvegna á að refsa Framsókn.

Það er lýðræðislegt skylduverk hins almenna kjósanda við þessar kosningar sem framundan eru, að segja við forustumenn Framsóknarflokksins með atbeina kjörseðilsins – “ Svona viljum við ekki að menn hegði sér. Þið eigið þessa refsingu skilið og reynið að draga réttan lærdóm af ráðningunni annars fáið þið enn verri rass-skellingu næst !

Rúnar Kristjánsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 126
  • Sl. viku: 1175
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 882
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband