Leita í fréttum mbl.is

,,Ţćgđarkisugengiđ !”

 

 

Ţađ hefur löngum ţótt fylgja nokkuđ vinstri flokkum, ađ talsverđ breidd hefur veriđ til stađar í afstöđu til mála og umrćđa oft innan ţeirra međ frjálsasta móti. Ţar hafa menn tekist á um ýmis atriđi mála og stundum hefur ţađ skiliđ á milli og leitt til klofnings !

 

En ţegar menn eiga ekki lengur samleiđ til lausna er lítiđ viđ ţví ađ gera. Flokksagi hefur löngum veriđ meiri á hćgri vćng stjórnmálanna, og mönnum sem hafa brotiđ gegn honum hefur yfirleitt veriđ refsađ ţannig ađ ţađ hefur orđiđ öđrum víti til varnađar !

 

Áriđ 2009 var Vg enn flokkur í nokkrum vexti og bundu margir vonir viđ ađ hann gćti ýmsu góđu til vegar komiđ. Fólk sem vildi ýmsu breyta og afnema alls konar sérréttindi og gangandi misréttismál frá fyrri tíđ, taldi aukiđ svigrúm til ađ koma ýmsum samfélagsmálum í höfn réttlćtisins á ţeim tíma. Ţá var Vg međ margt róttćkt fólk innan sinna rađa, fólk sem vakti tiltrú og virtist ganga fyrir hugsjónum !

 

En sú hugsjónamynd var ekki lengi höfđ uppi viđ. Ţeir sem vildu halda í hana voru nokkuđ skyndilega trođnir niđur innan flokksins og af hverju ? Jú, einrćđisgjörn prímadonna krata fór ađ tala niđur til samstarfsflokksins í ríkisstjórn og rćddi ţar um erfiđleika viđ ađ smala villiköttum !

 

Ţá ákvađ formađur Vg, líklega í einhverju ósjálfrćđiskasti, ađ láta undan og níđast á stefnu flokksins til ţess eins ađ ţóknast prímadonnunni og flokki hennar. Viđ ţađ fór verulegur óhugur um marga sem fylgt höfđu Vg og taliđ flokkinn fram ađ ţví trúverđugan, enda urđu afleiđingarnar nöturlegar í meira lagi !

 

Skemmst er frá ţví ađ segja, ađ Steingrímur J. ásamt Katrínu, sem fylgdi honum náttúrulega í einu og öllu, sviku ţannig međ svívirđilegum hćtti stefnu Vg varđandi ESB og hreinsuđu í framhaldinu svonefnda villiketti úr flokknum, ţađ er ađ segja ţá sem höfđu sjálfstćđa hugsun. Lauk ţví ferli svo ađ eftir sátu eintómar ţćgđarkisur sem mjálmuđu í takt viđ ţau. En viđ ţessa kleppslegu krataţjónkun fór náttúrulega lífiđ og sálin úr Vg !

 

Og síđan hefur andleysiđ eitt veriđ til stađar í umrćddu flokksgreyi,í kjarnalausu kompaníi sjálfumgleđinnar, viđ valdagírug viđhorf forustufólks,sem hefur slitiđ sig frá öllum fyrri rótum. Ţar er ekkert sem stendur undir sér lengur eđa kallar á virđingu !

 

Ţetta eftirsitjandi ţćgđarkisuliđ Vg virđist sem stendur einna iđnast viđ ađ skíta í flest sem ţađ áđur ţóttist standa fyrir og aumari skriđdýrsháttur hefur varla sést hér á landi til stjórnmálahóps um langt skeiđ, ţó oft hafi gefiđ á bátinn í ţeim efnum. Jafnvel Nató er orđiđ gođ á stalli í véum flokksins !

 

Í Vg sýnist ţví ekkert vera eftir, nema viljalaust undirmálsliđ sem virđist tilbúiđ ađ fylgja útbrunnum foringjum hvert sem er, – jafnvel fyrir björg !

Ţar virđist engin sjálfstćđ vitund vera lengur fyrir hendi og Sankti Steingrímur og Heilög Katrín leggja nú sjáanlega ein allt til í hugsun fyrir ţetta vesćla ţćgđarkisugengi sem auđvitađ er virkilega glatađ Vg !

 

En auđvitađ er hugsunartillag ţessa tćkifćrissinnađa-hćgrisleikjupars sem virđist alfariđ ráđa, af ţeim vanefnum veitt, ađ virđingin fyrir flokksnefnunni er á hröđu undanhaldi frá ţví sem var á tímum villikatta og frjálsrar hugsunar. Ţađ er mikil afturför !

 

Svo virđist sem öll framhaldstilvera ţessa ţćgđarkisu-gengis sé nú ađ fullu og öllu í höndum íhaldsins og er sú stađa sannarlega algjör andstćđa ţess veganestis sem lagt var af stađ međ í upphafi hinnar hugsjónalegu og yfirlýstu vinstrisóknar Vg áriđ 1999 !

Horfin er dýrđin, glötuđ er vegsemdin, sic transit gloria mundi !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 93
  • Sl. viku: 1183
  • Frá upphafi: 316782

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 887
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband