Leita í fréttum mbl.is

,,Allt er í heiminum hverfult !”

 

Stađa mála í heiminum í dag er nokkuđ sérstök, og í henni felst ýmislegt sem segir okkur ađ viđ ţurfum ađ endurmeta líf okkar og skilgreiningar okkar á ţeim gćđum sem viđ höfum lengi notiđ og taliđ sjálfsögđ !

 

Nú hljótum viđ ađ vera farin ađ sjá, ađ ţađ er margt sem enganveginn er sjálfsagt í ţeim efnum og ţá getum viđ leitt huga okkar ađ ţví ađ minnast ţess, ađ víđa um heim er fólk sem ţarf ađ berjast hart fyrir mörgu af ţví sem viđ höfum taliđ sjálfsagt !

 

Fólk á Vesturlöndum hefur lengi notiđ velsćldarmeira lífs í efnalegum skilningi en ađrir hér á jörđ, en hefur ţađ orđiđ ađ betri manneskjum fyrir vikiđ ? Mér hefur löngum sýnst, ađ ţar sem sérgćskan fćr ađ vađa uppi, ţar fari náungakćrleikurinn yfirleitt lóđrétt niđur á viđ. Allt verđur ţannig virt til verđs, manngildi lítils metiđ en auđgildi ţeim mun meira !

 

Veskiđ er látiđ segja til um persónulega stöđu hvers og eins og framkoma fólks viđ hvert annađ hefur ađ miklu leyti ráđist af ţví. Ţannig hefur ţađ lengi veriđ og spillt samskiptum sem ella gćtu veriđ betri. En fólk hefur vanist stöđugt meira á ađ sleikja upp fyrir sig og sparka niđur fyrir sig !

 

En nú ţarf heimurinn ađ glíma viđ ţessa Covid-19 veiru. Og ţađ merkilega er, ađ hún fer sýnilega ekkert eftir ţeim lögmálum sem virđast ráđa öllu í okkar kapitalíska umhverfi. Hinir auđugu eru í jafnmikilli hćttu og ađrir, ţeir sýkjast ekki síđur og jafnvel öllu fremur !

 

Sú stađreynd gengur eiginlega ţvert gegn öllu í venjulegum kapitalískum hugsunarhćtti, sem gengur út frá ţví ađ veskiđ eigi alltaf ađ geta bjargađ. En svo kemur í ljós ađ hinir ríku geta ekki keypt sig frá hćttunni !

 

Ţvílíkt virđingarleysi er ţetta af Covid-19 ađ taka ekkert tillit til ţess hvađ vćgi manna er misjafnt í ţessum heimi. Sumir myndu nú líklega meira en fúsir til ađ líta á ţetta veirustand sem einhverja bölvađa kommaplágu !

 

En af hverju segi ég ađ ţeir ríku séu jafnvel í meiri hćttu ? Jú, ţeir ferđast meira, hafa efni á ţví. Ţeir leika sér međal annars á skíđum í öđrum löndum og eiga jafnvel önnur heimili í útlöndum. En ţegar kreppir ađ ţeim erlendis, flýja ţeir ,,heim” í gamla öryggiđ og taka veiruna međ sér !

 

Covid-19 er mannkyns-hćttulegt fyrirbćri og ţađ er enganveginn víst ađ hún renni bara yfir sem tiltölulega tímabundinn faraldur ? Hún getur herjađ á mannkyniđ mánuđum saman, hún getur stökkbreyst og komiđ fram í öđrum og enn hćttulegri myndum en ţeirri sem viđ blasir í dag. Hún getur orđiđ viđlođandi vandamál í heiminum á nćstu árum og heimsótt okkur aftur og aftur. Viđ vitum ekkert um ţađ hvar viđ höfum hana ?

 

Viđ stöndum ţannig frammi fyrir ţeim veruleika, ađ ţrátt fyrir öll okkar hálofuđu vísindi og margrómađ tćknistig, virđumst viđ ekki sérlega burđug í glímunni viđ ţetta illskeytta fyrirbćri eđa eiga ţar margra kosta völ. Og hvađan skyldi svo ţessi veira vera komin ?

 

Er hún kannski eitthvađ sem á ćttir ađ rekja til tilrauna sem gerđar hafa veriđ í veirufrćđi í einhverjum ţeim stofnunum ţar sem vísindamenn leika sér ábyrgđarlaust dags daglega međ fjöregg mannkynsins ?

 

Viđ vitum svo fátt í raun og veru - og hvernig á annađ ađ vera í heimi ţar sem flest fólk ver ľ hlutum af ćvitíma sínum alfariđ í ţađ verkefni ađ eignast peninga. Og telur gildi sitt felast ađ öllu leyti í eignum og auratali, lyftir sérgćskunni í hćđir og sendir náungakćrleikann norđur og niđur !

 

Í slíkum heimi ţykir auđvitađ ekkert gott á seyđi, ţegar eitthvađ óţekkt fyrirbćri tekur hann allan í gíslingu, herkví eđa sóttkví, og virđir hvorki kóng né prest. Skapar hćttu fyrir alla, jafnvel ţá sem telja auđgildi sitt svo mikiđ, ađ ţeir eigi samkvćmt kapitalískum stöđlum ađ vera ósnertanlegir !

 

Covid-19 veiran virđist hinsvegar sjálfstćđari en nokkur ,,self made man.” Hún er sjáanlega algerlega óháđ mannfélagslegum viđmiđum, virđir greinilega ekki efnalega stöđu manna, og fer sínu fram hvađ sem hver segir. What a terrible devil !

 

Viđ getum sjálfsagt lengi velt ţessu öllu fyrir okkur, en kjarni málsins er - hvađ ćtlum viđ ađ gera í málinu ? Ţegar og ef ţetta gengur yfir, hvađ ţá ? Ćtlum viđ ađ lćra eitthvađ af ţessu ? Sjáum viđ ástćđu til ađ breyta einhverju frá fyrri háttum og hugleiđa eitthvađ hvort viđ höfum komiđ rétt fram viđ ađra og hegđađ okkur vel sem manneskjur ?

 

Má líta á ţessa veirusýkingu sem einhverja viđvörun um ađ ávanabundnir lífshćttir okkar séu okkur ekki sérlega heilsusamlegir ? Eđa ćtlum viđ bara ađ hjakka áfram í sama farinu og hugsa eins og Lúđvík XV, ,, Syndafalliđ kemur eftir minn dag !”

 

Já, ćtli ţađ verđi ekki raunin ! Ţađ er líklega enginn fús til ađ fara í hreingerningu sem krefst ţess ađ einhverjum ţćgilegheitum verđi fórnađ í nafni ábyrgđar sem eiginlega er hvergi til !

 

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 236
  • Sl. viku: 1210
  • Frá upphafi: 318506

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 900
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband