Leita í fréttum mbl.is

Á ađ nýta Covid sem kúgunartćki ?

 

Ţađ gerist ţegar menn halda ađ allt sé í himnalagi, ekkert ami ađ og ţađ sé bara kominn enn einn dagur međ venjuleg umsvif og ávinning, ađ jörđin fer ađ ganga í bylgjum eins og í San Francisco 1906, eđa ađ ţađ kemur flóđbylgja eins og austur í Asíu fyrir nokkrum árum og sópar öllu međ sér, eđa ađ eldur brýst upp úr jörđinni eins og í Vestmannaeyjum og glóandi hraunstraumar taka ađ renna ađ mannabústöđum međ ađsteđjandi ógn !

 

Og ţađ getur veriđ fjölmargt fleira sem getur falliđ yfir heilu ţjóđasamfélögin í einu vetfangi, án ţess ađ nokkur viđvörun sé gefin og ţúsundir mannslífa geta horfiđ á augnabliki. Covid-veiran segir okkur á ógnvekjandi og miskunnarlausan hátt hvađ efnahagskerfi heimsins eru í raun varnarlaus ţegar allt kemur til alls, enda eggin ađ verđa öll í sömu körfunni. Ein veira rćđst til atlögu og allt er í vođa um afkomu ţjóđa um allan heim. Ćtlađ öryggi er alltaf ađ sýna sig vera falskt og óáreiđanlegt !

 

En ţegar efnahagsáföll dynja yfir sem afleiđingar af einhverju slíku, hugsa margir sér sýnilega til hreyfings. ,,Hvernig getum viđ grćtt á ástandinu” virđast ţungavigtarmenn hinnar samviskulausu fjármála-samtryggingar hugsa međ sér um leiđ og ţeir setja  hákarlapólitík sína á fullan eiginhagsmuna-snúning !

 

Og sú pólitík er síđan látin básúna bođskapinn ađ ofan og hver er hann ? Jú, svohljóđandi forstjóra-bođskapur : – Viđ viljum fá meira skipulag, meiri hagrćđingu. Viđ viljum ná meiri afköstum út úr fólkinu. Viđ viljum lćkka launin. Og svo segja ţeir viđ sjálfa sig : ,,Ţó ađ viđ séum međ ofurlaun er ekkert vit í ţví ađ fólkiđ sé međ ofurlaun. Ţá verđur ekki hćgt ađ greiđa neinn arđ !”

 

Og einkaframtakiđ ofursjálfbćra vill enn og aftur skríđa inn fyrir ţröskuldinn hjá Ríkinu. Jafnvel ţó stutt sé síđan hástemmt forstjóratal hljóđađi upp á góđa stöđu og grobb ţví samfara, er nú engin leiđ fćr nema ađ klóra í skattpeninginn og láta almenning borga !

 

En ţegar einhver ađili í samfélagsfjölskyldunni virđist vera kominn međ allt of háar hugmyndir um sjálfan sig og heldur ađ hann sé ómissandi, heldur ađ hann geti sett fram endalausar kröfur og rekiđ sitt bú á annarra fé og kostnađi, er hann orđin ógn fyrir heilbrigđa fjölskylduhagsmuni !

 

Og hvađ er ţá til ráđa ? Á viđkomandi ađili ađ komast upp međ frekjuna og yfirganginn ? Á hann ađ fá ađ halda fjölskyldunni í gíslingu ? Á hann ađ fá ađ ganga í samfélagssjóđinn á forsendum eigin reiknings ţegar honum sýnist og greiđa svo hákörlum arđ á veltuárum og gefa skít í almannaheill ? Er ţađ ţannig sem viđ Íslendingar viljum standa ađ málum í okkar ţjóđfélagi á ţví Herrans ári 2020 ?

 

Eiga blóđugir mannćtuhákarlar ađ fá ađ éta hér niđur lífskjör og áunnin réttindi alţýđu manna án ţess ađ snúist sé til varnar af dug og hörku ? Ţarf almennt launafólk ekki ađ drífa sig ađ ţví ađ skilja hvađ er raunverulega í gangi – og lífeyrissjóđaleiđtogar eins og Drífa líka !

 

Á einhver Boga dregin hagnađarlína ađ fá ađ ráđa samfélags-sáttmálanum og grafa undan öllum friđi hér ? Nei, enginn er ómissandi og ţegar sumir sýnast vera međ ţađ í huga ađ fara langt yfir strikiđ, hegđa sér ţannig ađ ţeir teljast ekki lengur hćfir í eigin fjölskyldum, ţá verđur ađ ganga ađ ţví međ hörku ađ hreinsa til og vísa óvćrunni á dyr !

 

Svonefndur erkibiskups-bođskapur heyrist víđa en honum á ekki ađ hlýđa og síst af öllu ţegar almenn frelsismál ţjóđarfjölskyldunnar eru annarsvegar. Hákarla-samţykktir lokađra funda bođa almennu launafólki ekkert réttlćti og hafa aldrei gert. Sérgćskan má ekki fá ađ kćfa manngćskuna, međ tilbeiđslu sinni viđ upphrúgađ altari Mammons !

 

Ţjóđarviljinn ţarf ađ endurvígjast ađ krafti og manndómi og hann verđur á öllum tímum ađ hlýđa ţeirri skyldu sinni ađ rísa gegn ţeim myrkraöflum sem brugga launráđ gegn almennum og áunnum mannréttindum lýđrćđis og frelsis í ţessu landi. !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 96
  • Sl. viku: 1272
  • Frá upphafi: 317466

Annađ

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 970
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband