Leita í fréttum mbl.is

Ađ lifa í veröld veirusýkinga !

 

Nú er búiđ ađ binda heiminn svo saman međ samgöngum ađ ef einhver óáran kemur upp á einum stađ fer hún eins og örskot um veröldina alla. Ađ búa á afskekktum stađ er ţví engin vernd lengur.

Ţađ er margsannađ mál ađ ekkert er svo ađ ţví fylgi bara kostir. Ţađ er alltaf eitthvađ sem fylgir af verra taginu og stundum reynist ţađ drýgra ţegar til lengdar lćtur !

 

Veröldin hefur fariđ á hliđina út af Covid 19. Heilsukerfi heilla ţjóđa hafa raskast og riđlast og komiđ hefur skýrt í ljós hvađ öll okkar velferđ er byggđ á veikum grunni. Ţađ má lítiđ sem ekkert gerast ţá er allt í vođa og heilu samfélögin eru ráđţrota !

 

Hin kapitalíska samtrygging sem rćđur heimsverslun og efnahagsmálum víđasthvar emjar fljótt af iđrakvöl ţegar gróđinn dregst saman. Frjálshyggjan telur ekki svo mikinn skađa ađ ţví ţó einhverjir deyi. Ţar er kannski hugsađ og jafnvel sagt : ,, Ţetta er mestallt gamalt fólk og veikburđa sem hefur ekki marktćkt gildi fyrir ţeirri höfuđnauđsyn ađ hjólin haldi áfram ađ snúast !” Sjónarmiđ manna geta veriđ margvísleg og segja sannarlega sitt um hvern mann !

 

Heilbrigđisyfirvöld virđast nú fćrast ć meira í ţá stöđu ađ lenda í návígi viđ hin hagfrćđilegu efnahagsyfirvöld sem vilja láta hjólin snúast sama hvađ ţađ kostar í mannslífum. Formúlan um frambođ og eftirspurn veldur ţví ađ hvert mannslíf vegur ć minna í ţessum heimi okkar. Ţađ er jú nóg af fólki til. Frambođiđ er svo mikiđ ađ ţađ er víđa vandamál. Efnahagspostular sjá ţví ekki stóran vanda fylgja ţví ađ frambođ sem er orđiđ ađ ţeirra mati allt of mikiđ – minnki eitthvađ !

 

Ţađ virđist ţví fyrirsjáanlegt ađ félagshyggjuviđmiđ mannlegs samfélags tapi styrk ef fer sem horfir. Heilbrigđisyfirvöld munu verđa ađ gefa eftir fyrir hinum afkomukrefjandi gróđasjónarmiđum fjármagnsaflanna. Fórnarkostnađurinn verđur ekki talinn ţegar fram í sćkir. Hjólin verđa ađ snúast og í ţví efni er stađan svipuđ og í styrjöld. Ţađ verđur ađ berjast áfram, sama hvađ ţađ kostar !

 

En hér er ekki bara um efnisleg atriđi ađ rćđa. Hér er um ţađ ađ rćđa hvađ á ađ ráđa hugarfari manna viđ ţessar ađstćđur. Er veirusýking bara líkamlegt heilsuvandamál eđa nćr hún til andans og hugarfarsins ? Auđvitađ mun slík alheimsplága merkja sinn tíma og göfga fólk eđa glćpastimpla !

 

Ef viđbrögđ yfirvalda viđ Covid munu helst taka miđ af gróđakröfum auđhringa og allskyns einokunarhafa, sem í skjóli sérgćskunnar hafa rakađ ađ sér gífurlegum auđi, mun samfélagiđ líđa fyrir ţađ. Ţađ mun verđa miskunnarlausara og kaldara sem ţví nemur !

 

Covid 19 er ekki á förum. Og ţađ geta komiđ fleiri slíkar sendingar í komandi tíđ. Viđ ţurfum ađ búa okkur undir langt stríđ í ţeim efnum. En til hvers munum viđ heyja ţađ stríđ, til ađ verđa betri manneskjur – eđa verri ? Međ hvađa hugarfari munum viđ mćta til ţeirrar baráttu ?

 

Viđ erum komin inn í veruleika sem gerir sínar kröfur og sumum finnst ţćr miskunnarlausar. En ćtlum viđ ađ takast á viđ ţćr á sammannlegan hátt međ velferđ mannkynsins ađ leiđarljósi eđa á ađ fylgja ţar sérgćskufullum gróđakröfum fámennra valdahópa sem hirđa lítiđ sem ekkert um almenna velferđ ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 27
  • Sl. sólarhring: 117
  • Sl. viku: 1230
  • Frá upphafi: 318526

Annađ

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 919
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband