Leita í fréttum mbl.is

Hið ábyrgðarlausa einkaframtak !

 

 

 

Sú var tíðin að menn sem hófu rekstur þurftu að axla mikla ábyrgð. Ef illa gekk eða áraði gátu menn farið á hausinn með allt sitt. Áhættan sem fólst í því að hefja rekstur gerði það því sjálfkrafa að verkum að færri en ella fóru út í slíkt ævintýri. Það var heldur ekki á allra færi og enn síður í þá daga !

 

Það mátti því gera ráð fyrir að þeir sem tóku áhættuna og hófu rekstur hefðu nokkuð til brunns að bera og þannig vissa hæfni til hlutanna. En það breytti því ekki að ábyrgir urðu þeir að vera !

 

En þannig var það nú meðan einkaframtakið var miklum mun heilbrigðara en það virðist vera í dag. Nú virðist sem allt einkaframtak sé meira og minna á ábyrgð ríkissjóðs. Ef einhver telur sig verða fyrir áföllum eða tekjutapi í dag verður hann að fá bætur frá ríkinu !

 

Eigin ábyrgð manna á rekstri virðist þannig gjörsamlega horfin. Henni hefur verið ýtt út af borðinu, að því er virðist til hagsbóta fyrir allskyns ævintýramenn. Skattpeningurinn okkar virðist svo standa þeim til boða í hvert skipti sem þeir telja sig hafa tapað einhverju. Með þessum hætti virðist stór hluti af hinu svokallaða einkaframtaki í landinu vera í raun ríkisrekinn !

 

Sú staða er með ólíkindum ! Í ferðaþjónustunni virðast menn jafnvel geta heimtað bætur fyrir áætlaðar tekjur sem eru svo skilgreindar tapaðar. Hvernig er hægt að krefjast bóta fyrir eitthvað sem var áætlað fram í tímann, miðað við að allt gengi að óskum ? Hvar er rekstrarábyrgðin, hvar er einkaframtaksaðilinn sem á að bera ábyrgð á eigin gjörðum ?

 

Er þetta ein afleiðingin af því þegar ehf vitleysan (eigin-hagsmuna-félög) var sett á koppinn vegna hyldjúprar samúðar með sárþjáðum rekstraraðilum af samsálar félögum þeirra í stjórnkerfinu ? Voru menn þá ekki bara leystir frá því að vera ábyrgir gjörða sinna ?

 

Svipuð er rekstrarvitleysan orðin með fiskinn í sjónum sem er óveiddur, en samkvæmt kvótakerfinu eign tiltekinna útgerðarfyrirtækja. Hér áður fyrr varð að veiða fiskinn til þess að hann yrði skilgreindur sem eign !

 

Nú syndir þessi fiskur um með merkimiða og tilheyrir greifunum. Svo eru fengnir einhverjir þrælar til að veiða hann fyrir aðalinn og skiptir þá víst litlu hvert heilsufar þeirra er, ef bara er hægt að láta þá vinna !

 

Margt er sannarlega að hjá okkur, en mér blöskrar þó fyrst og fremst sú staðreynd að það virðist engin eðlileg ábyrgð vera til staðar varðandi rekstur fyrirtækja nú til dags. Ef vel gengur sýnir lífsstíllinn merkin, en ef mínusar koma til verða aðrir að borga og bjarga - skattborgarar þessa lands !

 

Ég er félagshyggjumaður að eðlisfari, en ég hef alltaf getað virt ærlegt einstaklingsframtak, enda er slíkt hverju samfélagi til styrktar. En mér sýnist ekkert vera að byggja undir slíkt einstaklingsframtak í dag. Núorðið virðast rekstraraðilar meira og minna á spenum hjá ríki og bæjarfélögum. Það er óhugnanleg framvinda mála !

 

Hvernig er hægt að láta alla þessa rekstraraðila, marga með gjörsamlega óraunhæfar skýjaáætlanir, fá bætur úr ríkissjóði, þegar þeirra ,,dreamworks” virka ekki ? Ef það á að hafa hlutina svona, er ekkert framundan nema hrun og það meira hrun en við höfum áður séð, hrun sem enginn jafnar sig á og rústar líklega samfélaginu !

 

Inn í slíkt hrun stefnum við að öllu óbreyttu og enginn virðist hafa neitt við það að athuga. Það er líklega ,,áhættan við það að búa á Íslandi” eins og einn stjórnmálamaður okkar leyfði sér að segja til skýringar á fyrra hruninu.

 

Við virðumst fljóta sofandi og andvaralaus að feigðarósi í dag, meðal annars undir gunnfánum ábyrgðarlauss einkaframtaks og það er ekkert nema stefna til hruns. Við getum ekki verið með alla rekstraraðila í landinu á framfærslu ríkissjóðs og það eru heldur engin rök sem mæla með því !

 

En það er svo sem jafnljóst fyrir því, að enginn mun bera ábyrgð á hinu endanlega hruni þegar að því kemur !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 485
  • Sl. sólarhring: 517
  • Sl. viku: 1621
  • Frá upphafi: 319045

Annað

  • Innlit í dag: 439
  • Innlit sl. viku: 1277
  • Gestir í dag: 427
  • IP-tölur í dag: 415

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband