Leita í fréttum mbl.is

Ađgreiningar-andi sérgćskunnar !

 

 

Ţađ er međ ólíkindum hvađ manninum er gjarnt ađ kenna öll verk viđ einstaklinga hvort sem einhver rök liggja til ţess eđa ekki. Meira ađ segja má sjá ţess merki í Biblíunni sjálfri. Opinberunin er kennd viđ Jóhannes ţó hún sé opinberun Jesú Krists eins og segir í upphafi bókarinnar !

 

Lúther mćlti sjálfur gegn ţví ađ nokkur kirkja vćri viđ hann kennd. Hann sagđi : ,, Ég biđ yđur ađ blanda ekki mínu nafni í máliđ. Ţér megiđ ekki kalla yđur lúterska, heldur kristna. Hver er Lúther ? Mín kenning er ekki mín. Ekki hef ég látiđ krossfestast fyrir neinn !

 

Ekki vildi Páll láta neina kenna sig viđ Pál eđa Pétur, heldur Krist. Hvernig sćmdi mér ţá, sem er ekki annađ en vesalt duft og aska, ađ gefa börnum Krists nafn mitt ?

Hćttiđ, vinir mínir, ađ hanga í ţessum flokksnöfnum og vera međ ţessar ađgreiningar……….. burt međ ţađ allt saman ! Vér skulum kalla oss kristna, eftir honum sem vér höfum kenninguna frá !”

 

Ţannig talađi Lúther, en ţrátt fyrir ţessi orđ hans eru mótmćlendakirkjur enn í dag kenndar viđ hann og talađ um Lútherstrú. En ţađ er engin Lútherstrú til sem slík. Bođun Lúthers fól í sér kröftug andmćli innan kristinnar kirkju gegn kenningarlegum rangfćrslum sem ţar voru farnar ađ ráđa lögum og lofum. Mótmćli Lúthers og annarra leiddi til siđbótarvakningar innan kirkjunnar sem ekki var vanţörf á. Siđbótarkenningin er Krists !

 

John Wesley stofnađi ekki til neinnar nýrrar trúar. Hann var vakningar-prédikari innan kristninnar, innblásinn Guđs mađur. Eftir lát hans varđ Meţódistakirkjan til sem síđan setti fram sín ađgreiningaratriđi !

 

Ţannig er ţađ um allan heim kristninnar. Jafnvel hvítasunnusöfnuđir viđhafa ýmsar ađgreiningar og hefđi mađur ţó taliđ ađ ţannig söfnuđir ćttu ađ vita betur. En allir söfnuđir virđast haldnir af ţeim anda, ađ vilja undirstrika einhverja kenningarlega sérstöđu sína, líklega til ađ eigna sér međ mannasetningum kenningarlegt vald. Sú afstađa er ekki af ţví góđa !

 

Ađ treysta Guđi er örlagamál í lífi hvers manns. Savonarola segir í einni prédikun sinni af funandi andagift : ,, Hugsađu aldrei, ađ frestun Guđs ţýđi neitun. Haltu áfram ! Haltu fast viđ ţitt ! Gefstu ekki upp ! Ţolgćđiđ er ómetanlegt. Ef enginn er óvinurinn er enginn bardaginn, ef enginn er bardaginn, er enginn sigurinn, ef enginn er sigurinn er engin kórónan !”

 

Hvar vilja menn taka sér stöđu ? Hverju vilja ţeir fylgja ? Er ţađ ekki spurningin mikla ? Allt of margir láta draga sig inn í eitthvađ sem fer međ ţá ađ lokum ţangađ sem ţeir vilja ekki fara. Ţá eru ţeir komnir undir utanađkomandi vald og ţar međ orđnir ţrćlar annarlegs hugarfars. Ţá hafa ţeir glatađ samviskufrelsi sínu !

 

Ţađ gildir varđandi alla hluti í lífinu ađ menn ţurfa ađ varđveita eigiđ hugarfrelsi. Allir menn ţurfa ađ gćta ţess ađ halda ţví frelsi sínu á lífsleiđinni og gefa ţađ í engu undir vald annarra. Engar mannasetningar eiga ađ fá ađ leggja ţađ í kenningarlega fjötra !

 

Viđ erum ekki fćdd til ađ verđa ţrćlar. Viđ erum fćdd til frelsis !

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 109
  • Sl. viku: 1613
  • Frá upphafi: 319577

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1291
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband