Leita í fréttum mbl.is

Um lýđrćđisţroska !

 

 

Viđ Íslendingar erum oft mjög seinir til ađ vinna úr hugmyndafrćđilegum spursmálum og látum flest í ţeim efnum löngum dragast langt úr hófi. Ţađ sannast til dćmis í afstöđunni til endurskođunar og breytinga á stjórnarskránni. Ţar virđist enginn leggja í ađ ganga afgerandi til verka !

 

Pólitískur ţroski er hinsvegar nauđsynlegur ţáttur sem ţarf hugsunarlega ađ vera til stađar í hverju lýđrćđissamfélagi, ef vel á ađ fara. Sá ţroski situr oft eftir og einkum ţegar ćsingur hleypur í málin og skemmir heilbrigđa framvindu. Fólk ţarf ađ geta fengiđ einhvern tíma til ađ hugleiđa málin óáreitt og komast ađ niđurstöđu međ sjálfbćrum hćtti !

 

Slíkt fyrirkomulag eflir pólitískan ţroska hvers og eins og gerir fólk heilsteyptara og skilningsbetra á ţá ţjóđlegu ábyrgđ sem ćtlast er til ađ kjósendur beri. Ţá er stefnt ađ ţví sem stefna ber !

 

Ég hef lengi taliđ ţađ mikla nauđsyn, ađ kosningabaráttu séu settar vissar skorđur af tillitssemi viđ kjósendur. Ađ henni ljúki á einhverjum tilteknum tíma, til dćmis sólarhring fyrir kjördag, og fólk fái svigrúm til ađ vega og meta í friđi fyrir áreiti hvađ ţađ hyggst gera viđ sitt atkvćđi. Međ slíku fyrirkomulagi vćri jafnt kjósendum sem lýđrćđinu sýnd sú virđing sem vera ćtti til stađar viđ kosningar !

 

En sumir virđast nú ţannig gerđir ađ ţeir vilja andskotast međ áróđur fram á síđustu stund og hundelta fólk nánast inn í kjörklefana. Ţađ eru ekki mannasiđir. Og ţađ sem meira er, viđ drögum lýđrćđiđ niđur í svađiđ međ slíku háttalagi. Ţađ ćtti hver mađur međ heilbrigđa hugsun ađ geta séđ !

 

Margt bendir til ţess í seinni tíđ ađ íslenski lýđrćđisţroskinn muni fara sömu leiđ og íslenski geirfuglinn. Menn virđast bera ć minni virđingu fyrir lýđrćđinu og réttinum til ađ fá ađ kjósa. Ţađ er hćttuleg framvinda !

 

Ţađ er löngum sagt, ađ enginn viti hvađ hann hefur átt fyrr en hann hefur misst ţađ. En ţađ á ekki allt ađ ţurfa ađ deyja sem ekki getur flogiđ á eigin vćngjum. Allir hafa eitthvađ fram ađ fćra í heilbrigđu samfélagi !

 

Viđ vitum hinsvegar ađ hjá sumum eru óheiđarlegar ađferđir engin hindrun ef ná skal árangri. ,,Tilgangurinn helgar međaliđ” segja sumir. Heiđarleikinn virđist vera á förum úr samfélaginu og kannski einkum vegna ţess ađ ć fleiri komast á ţá skođun ađ ţađ borgi sig ekki ađ vera heiđarlegur. Slík afstađa er vođi fyrir hvert samfélag !

 

En hver vill búa í ţjóđfélagi ţar sem ţađ borgar sig ađ vera óheiđarlegur ?

Hver vill vera ţar sem allir stela og svíkja ? Hver vill leita ađ öryggi sínu ţar ? Ef viđ verndum ekki samfélag okkar og kosti ţess, hver gerir ţađ ţá ?

 

Ţurfum viđ ekki öll ađ sýna lýđrćđisţroska og hafa heilbrigđan metnađ fyrir ţví ađ bćta samfélag okkar, heildinni til gagns og ţrifa ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 172
  • Sl. sólarhring: 312
  • Sl. viku: 1603
  • Frá upphafi: 318426

Annađ

  • Innlit í dag: 159
  • Innlit sl. viku: 1245
  • Gestir í dag: 159
  • IP-tölur í dag: 157

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband