Leita í fréttum mbl.is

Siđspilling valdhrokans !

 

 

 

,,Ljót og móti lögum öll

lýđrćđis var fórnin.

Á nú ţing viđ Austurvöll

umbođsvafa-stjórnin !”

 

Framkvćmdavaldiđ hefur á liđnum árum jafnt og ţétt gengiđ á rétt löggjafarvaldsins og gert sjálfstćđi ţess ađ engu og nú er svo komiđ ađ ţađ er fariđ ađ sporđrenna heilu ţingi eins og ekkert sé !

 

Jafnvel ţeir menn innan stjórnarliđsins sem hafa veriđ taldir öđrum skárri, virđast ekki sjá neitt athugavert viđ ţađ hvernig skilist var viđ síđustu kosningar. Ţađ er sárt ađ sjá hvernig valdaspillingin fer međ menn !

 

Nefndin sem átti sýnilega bara ađ kasta ryki í augu almennings, mun hafa lokiđ sínu verki í samrćmi viđ ţađ sem ćtlast var til af henni.

Hún var látin vera ,, ađ störfum” ţangađ til málin róuđust, en aldrei var efi um ţađ hver hennar niđurstađa yrđi. Ţađ er sjálfu sér mikiđ umhugsunarefni hvernig haldiđ hefur veriđ á málum !

 

Mađur sá sem var formađur ţeirrar nefndar er nú forseti alţingis og sú stađreynd er líklega vottur ţess ađ hann hafi ţótt standa sig vel í mjög svo vandasömu starfi - ađ áliti stjórnarmeirihlutans !

 

En eru menn orđnir svona samdauna pólitískum spillingarađgerđum gagnvart lýđrćđislegum gildum, ađ ţeir sjá ekki brotin sem veriđ er ađ fremja – eđa hvađ veldur ?

 

Og ţađ má gjarnan halda ţví til haga, ađ hér er veriđ ađ tala um ţá menn sem helst hefđi veriđ hćgt ađ vćnta skilnings frá í ţessum efnum. Hinir sem verri menn hafa ţótt, hafa náttúrulega veriđ glatađir í ţessu sem öđru !

 

Er ţađ ekki ömurlegt ađ hugsa til ţess ađ til ţess ađ réttlát málsmeđferđ sé virt og geti fengist á Íslandi verđur ađ senda málin til erlends dómsvalds !

 

Hvar er stolt Íslendinga ţegar ţannig er stađiđ ađ málum ? Ţegar trođiđ er á ţeim gildum sem öll okkar helstu gögn vitna um sem sannhelg, ţjóđleg réttindi ? Erum viđ ţá bara eins og hundar sem snúa aftur til spýju sinnar ?

 

Síđustu kosningar voru eyđilagđar sem sá réttindagjafi sem ţćr áttu ađ verđa og hefđu átt ađ vera. Óhćfir vörslumenn kjörgagna settu vafastimpil á allt ferliđ. En ţeir sem áttu ađ sjá mistökin og vita hver var eina leiđin til ađ leiđrétta ţau og höfđu völdin til ţess, reyndust ţó verri ţegar til kom.

 

Ţeir misbuđu lýđrćđisgildum okkar og létu fylgismenn sína á ţingi samţykkja niđurskurđ á ţeim međ ţeim hćtti sem er hrein svívirđa.

Kosningarnar 2021 geta ţví aldrei orđiđ viđurkenndar sem eđlilegur gjörningur í heilbrigđu lýđrćđisríki !

 

Eina vonin um leiđréttingu á ţví stjórnarfarslega ofbeldi sem átt hefur sér stađ, er sem fyrr segir, bundin viđ erlent dómsvald. Íslenskt dómsvald er ekki fćrt um ađ koma ţar nćrri. Ţađ hefur ekkert traust til ţess međal ţjóđarinnar og síst á međal ţeirra ađila sem láta sig máliđ mest varđa !

 

Svo enn einu sinni verđum viđ ađ fara međ réttlćtismál okkar út úr landinu til ađ ţau geti veriđ dćmd af dómstóli sem gengiđ er útfrá ađ muni heiđra ćrleg gildi.

 

Allt ferli af slíku tagi virđist orđiđ vafa bundiđ hérlendis og í klóm illskeytts framkvćmdavalds sem virđist í stöđugt auknum mćli vera fariđ ađ telja sig ofar lögum landsins !

 

Viđ búum nú á Íslandi viđ umbođsvafa-ríkisstjórn ! Ţađ er óholl stađa fyrir ţjóđina og ţađ lýđrćđi sem öllum borgurum hér átti og á ađ vera skylt ađ verja og halda uppi. Slík stađa mála mun hefna sín héđan í frá !

 

Ţađ er okkur ţjóđlega séđ til skammar og sér í lagi illskeyttu framkvćmdavaldinu, ađ ekki skuli vera hćgt ađ fá neina leiđréttingu réttlćtismála hér innanlands. Engin lýđrćđisţjóđ ćtti ađ ţurfa ađ búa viđ slíkt og láta slíku forsmán yfir sig ganga !

 

Hvar er ţjóđin sem hreykti sér lengi af ţví ađ einu sinni var sagt hér á alrćmdu kúgunarţingi : ,, Vér mótmćlum allir !” ?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 388
  • Sl. viku: 1339
  • Frá upphafi: 317318

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1041
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband