Leita í fréttum mbl.is

Draumur eđa veruleiki ?

 

 

Nokkuđ hef ég pćlt í draumi sem sótti mig heim eina nóttina skömmu eftir ţingkosningarnar síđastliđiđ haust. Ekki vil ég segja ađ ég hafi beinlínis fengiđ martröđ, ţó sumir kynnu ađ halda ţađ, en samt var ţessi draumur óţćgilegur, ađ mér fannst. Hann eiginlega sannfćrđi mig um ţađ ađ nokkuđ sem mig hafđi all-lengi grunađ vćri í raun og veru sannleikur !

 

Mér fannst ég vera staddur einhversstađar á heldur óyndislegum stađ. Ţađ var eitthvađ ţar á sveimi sem olli mér andlegri vanlíđan. Ţetta var herbergi, nokkuđ stórt, sem ég hafđi aldrei komiđ í áđur og kem vonandi aldrei inn í aftur. Tveir menn sátu ţar viđ stórt borđ og töluđu saman í lágum hljóđum !

 

Ţađ var eitthvađ pukurslegt viđ atferli ţessara manna og yfir ţeim var eitthvađ sem mér fannst í draumnum vera óhreint í meira lagi. Ekki vissi ég ţó hvađ var ţarna í gangi, en hafđi á tilfinningunni ađ ţađ vćri eitthvađ sem illa ţyldi dagsins ljós. Mér fannst eiginlega sem einhver myrkraverk vćru ţarna á seyđi !

 

Og allt í einu opnađist ţađ fyrir mér hverjir mennirnir voru ? Ţetta voru formenn íhalds og Framasóknar, tveggja ţeirra flokka sem myndađ höfđu síđustu ríkisstjórn. Einhvernveginn voru ţeir ţó ótugtarlegri en ţeir virtust alla jafna vera á sjónvarps-skjánum, en kannski fékk ég ađ sjá í gegnum ţá ţarna !

 

Einmitt ţegar ég var ađ átta mig á ţví hverjir mennirnir voru, opnuđust dyrnar ađ herberginu og inn geystist kona ein, lítil vexti en nokkuđ snaggaraleg. Ţekkti ég strax ađ ţar var á ferđ formađur ţriđja stjórnarflokksins. Spruttu ţeir sem fyrir voru skjótlega á fćtur og fögnuđu komugesti. Bersýnilegt var ađ ţarna hafđi veriđ bođađ til einhvers fundar ţessara flokksformanna !

 

Svo sá ég ţessa tvo menn snúast í kringum konuna af mikilli stimamýkt. Kom í ljós ađ ţeir vildu halda áfram stjórnarsamstarfinu, en breyta samsetningu stjórnarinnar međ tilliti til ráđherraskipunar, og stilla ţannig upp nýjum valdahlutföllum sem vćru í betra samrćmi viđ niđurstöđur kosninganna. Virtust ţeir hafa einhverjar áhyggjur af ţví hvernig ţeirri málaleitan yrđi tekiđ af ţriđja hjóli stjórnarvagnsins, sem ţó lítiđ vćri, varđ ađ vera međ ?

 

Vildi annar ţeirra fá forseta alţingis og heilbrigđis-ráđuneytiđ til sín en hinn fá eitt ráđherrasćti í viđbót vegna velgengni í kosningunum. ,,Vćri ekki bara best ađ hafa ţađ ţannig,” sagđi hann brosleitur !

 

Greinilegt var ađ mönnunum var ţetta mikiđ hjartans mál. En báđir sögđu ţeir sannfćrandi hvor í kapp viđ annan: ,,En ţú fćrđ ađ vera áfram í forsćtinu, hafđu engar áhyggjur af ţví, viđ viljum ekki breyta neinu međ ţađ !”

 

Sú snaggaralega leit á ţá og brosti, svo reis hún snarlega á fćtur og sagđi : ,,Ţá höfum viđ ţađ ţannig, ef ég fć ađ vera áfram í forsćtinu skiptir engu máli međ allt hitt !” Ţeir brostu út ađ eyrum og fullvissuđu hana um ađ hún gćti veriđ 100% örugg međ ţađ !

 

Hún leit međ áberandi ánćgjusvip á ţá á móti og sagđi hressilega: ,,Ţá er sem sagt allt í lagi međ áframhaldiđ hjá okkur og ţakka ykkur fyrir almennilegheitin !”Svo sveif hún á dyr og var greinilega afar sátt međ sinn hlut !

 

Mennirnir tveir horfđu á hurđina lokast á eftir henni. Svo tókust ţeir mjög lukkulegir í hendur og fóru ađ ráđslaga hvernig ţeir ćttu ađ hafa hlutina. Ţađ var aldeilis munur ađ hafa frítt spil međ ţađ !

 

Ég horfđi stíft á ţá og skyndilega rann ţađ upp fyrir mér ađ ţeir myndu vera staddir í ţingflokksherbergi íhaldsins og ţar međ skildi ég um leiđ hversvegna mér hafđi fundist stađurinn svo óyndislegur. Ţarna gat náttúrulega engum ćrlegum manni liđiđ vel !

 

Svo hrökk ég upp og hugleiddi ţađ sem fyrir mig hafđi boriđ. Allt var ţađ svo ljóslifandi fyrir hugarsjónum mínum ađ ég fann kaldan hrollinn lćđast um bak mitt og brjóst. Svo nöturlegt fannst mér ţađ sem ég hafđi horft upp á !

Svo hugsađi ég međ mér, var ţetta draumur eđa gerđist ţetta í raun og veru ?

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 29
  • Sl. sólarhring: 107
  • Sl. viku: 1232
  • Frá upphafi: 318528

Annađ

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 921
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband