Leita í fréttum mbl.is

,,Hiđ illa og hiđ góđa ?“

Ekkert er stöđugt í ţessari veröld okkar og allra síst Sannleikurinn. Jesú Kristur sagđi Ég er Sannleikurinn og Lífiđ og flestir hljóta ađ sjá ađ heimurinn ber Frelsaranum lítiđ vitni. Lygin virđist alfariđ orđin undirstađa margra ţjóđfélaga nútímans og hún er auđvitađ breytileg frá degi til dags. Ný lygi á bođstólum hvern dag. Svo stöđugleikinn er enginn í raun ţví undirstađan er svikul !

Í dag er pólitísk skilgreining Vesturlanda sú ađ Rússar séu vondir og verstir eins og ţeir hafa reyndar alltaf veriđ sagđir en Úkraínumenn góđir. Á Sovéttímanum voru Úkraínumenn hinsvegar hluthafar í ,,heimsveldi hins illa”, eins og Ronald Reagan kallađi Sovétríkin, og ţví ekki góđir. En nú er atburđarásin búin ađ hvítţvo ţá í augum Vesturlandabúa af allri synd eftir vondan félagsskap, en seint verđur ţví samt neitađ ađ ţar voru ţeir býsna valdamiklir lengi vel !

Ţví hverjir voru ćđstu valdamenn Sovétríkjanna lengst af ? Yfirleitt var valdamesta embćttiđ ađalritarastađa sovéska kommúnistaflokksins og auđvitađ hljóta vondir Rússakommar ađ hafa gegnt ţví alla tíđ - eđa hvađ ?

Nei, svo var nú ekki. Jósef Stalín gegndi ţví í rúm 30 ár og hann var Georgíumađur. Eftir hann, frá síđsumri 1953 til vetrarbyrjunar 1964 var Nikita Kruschev ćđsti leiđtoginn en hann var Úkraínumađur. Hann notađi völd sín međal annars til ađ fćra Krímskagann 1954 frá Rússlandi undir forrćđi Úkraínu, líklega til ađ hygla sínu heimaríki. Afleiđingarnar af ţví uppátćki eru flestum kunnar. Kruschev var alltaf mikiđ ólíkindatól. Viđ af honum tók svo Leonid Brezchnev sem var toppskarfurinn frá 1964  fram í nóvember 1982, en hann var líka Úkraínumađur !

Yuri Andropov var Rússi en tórđi ekki nema í rúmt ár í embćttinu  ! Ţá tók viđ Konstantin Chernenko sem var Úkraínumađur og sat viđ völd í rúmt ár. Mikhail Gorbachev varđ ţá ađalritari og var ţađ til 24. ágúst 1991 eđa í rúm 6 ár. Hann var Rússi. Síđast var svo Vladimir Ivashko í embćttinu í 5 daga, en hann var Úkraínumađur !

Svo hvađ segir ţetta okkur ? Ađ ,,heimsveldi hins illa” hafi veriđ undir forrćđi Úkraínumanna í full 30 ár og ríflega önnur 30 ár undir Georgíumanni. Af ţeim 69 árum sem Sovétríkin voru viđ lýđi var ćđsti valdsmađur ţeirra rússneskur ađ ţjóđerni í ađeins rúm 7 ár eđa svo. Ţađ er ţví mikil spurning hverjir hafi alltaf veriđ verstir í hópi hinna verstu ?

Hiđ illa er til stađar í mörgum öđrum ríkjum heimsins ţó Reagan talađi eins og hann gerđi. Bandaríkin sjálf eru ekki sísta dćmiđ um ţađ. Og ef viđ ćttum ađ dćma um Reagan sjálfan og ţann mann sem hann fékkst viđ í hanaslag risaveldanna, Rússann Mikhail Gorbachev, ţá myndi ég hiklaust telja ţann síđarnefnda hafa veriđ betri mann og ţađ munu fleiri gera !

Viđ skulum ţví fara varlega í ţađ ađ mála allt í hvítu og svörtu. Ţađ sem ćtlađ er hvítt er aldrei svo hvítt sem menn ćtla og ţađ svarta er aldrei eins svart og menn ćtla !

Lygin málar yfirleitt međ ţessum litum og hún virđist ţví miđur stjórna stórum hluta af heiminum, en viđ megum samt aldrei gleyma ţví ađ henni er ekki treystandi til ađ gera neitt rétt ţó margir veiti henni brautargengi, og ţađ engu síđur í vestri en austri !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 230
  • Sl. sólarhring: 297
  • Sl. viku: 1661
  • Frá upphafi: 318484

Annađ

  • Innlit í dag: 199
  • Innlit sl. viku: 1285
  • Gestir í dag: 197
  • IP-tölur í dag: 193

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband